Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir af Ghislaine Maxwell á leið í jógatíma valda reiði fórnarlamba

„Við lifum með örum sem gróa aldrei á meðan hún fær að stunda jóga og garð­yrkju á meðan hún afplánar.“

Myndir af Ghislaine Maxwell á leið í jógatíma valda reiði fórnarlamba
Frá mót­mælum Millj­ónir Banda­ríkja­manna hafa kraf­ist þess að Epstein-skjölin verði birt Mynd: ROBERTO SCHMIDT / AFP

Barn­a­níð­ing­ur­inn Ghislaine Maxwell, sem afplánar 20 ára dóm fyrir man­sal, hefur verið mynduð á leið í jóga­tíma í hinu „mjúka“ fang­elsi þar sem hún dvelur nú.

Mynd­irnar hafa æst upp fórn­ar­lömb hennar sem voru þegar reið yfir því að hún skyldi vera hafa verið flutt í hið svo­kall­aða Camp Cupcake aðeins þremur árum eftir að hún hlaut dóm­inn. Flutn­ing­ur­inn brýtur gegn reglum banda­rískra fang­elsa sem segja að kyn­ferð­is­brota­menn megi ekki afplána í lág­marks­ör­ygg­is­fang­elsi eins og Federal Prison Camp Bryan í Texas.

Maxwell var flutt frá úreltu fang­elsi í Tallahassee í Flórída aðeins viku eftir að hún tjáði sig á jákvæðan hátt um fræga vin­áttu Donalds Trump við barn­a­níð­ing­inn Jeffrey Epstein, fyrr­ver­andi kærasta sinn.

Eitt fórn­ar­lambanna sagði:

„Ghislaine eyði­lagði svo mörg líf og nú er henni umb­unað með flutn­ingi í klúbbafang­elsi. Þetta er hrein­asta óvirð­ing við þolendur. Við lifum með örum sem gróa aldrei á meðan hún fær að stunda jóga og garð­yrkju á meðan hún afplánar.“

Kona bætti við: „Hve lengi hún þarf að sitja inni nú ræðst af vini hennar Trump.“

Trump, sem nú stendur frammi fyrir stærstu póli­tísku ógn­inni við for­seta­tíð sína, hefur dregið til baka lof­orð sitt um að birta opin­ber gögn um Epstein. Hann heldur nú fram að þau inni­haldi ekk­ert og að málið sé til­bún­ingur, aðeins nokkrum vikum eftir að Elon Musk hélt því fram að nafn for­set­ans væri í skjöl­unum.

Þolendur Epstein hafa kraf­ist þess að gögnin verði gerð opin­ber, studdir af millj­ónum Banda­ríkja­manna, þar á meðal kjós­endum Trump. Epstein lést í fang­elsi árið 2019, en tveimur árum síðar var Maxwell sak­felld fyrir aðstoð við að mis­nota ungar stúlkur.

Nýlegar myndir sýna Maxwell ganga um fal­lega snyrta fang­els­i­slóð­ina í Texas, oft með jógamottu undir hand­legg. Hún heldur sig til hlés, í gráum fanga­bún­ingi, og fer ýmist í vinnu eða lík­ams­rækt. Heim­ildir segja að hún fari hvergi án regn­hlífar sinnar, jafn­vel ekki að næt­ur­lagi.

Camp Bryan, sem venju­lega hýsir hvít­flibba­glæpa­menn og væga brota­menn, hefur nú breyst í „virki“ eftir komu Maxwell. 12 feta skjól­veggir hafa verið reistir og sér­sveit fang­elsa vaktar svæðið með hálf­sjálf­virkum riffilum og hagla­byssum, sveit sem venju­lega er aðeins kölluð út við upp­þot eða gísla­tökur.

Aðrir fangar segja að þeir séu að „borga fyrir syndir Maxwell“. Einum fang­anum var jafn­vel refsað harð­lega fyrir að láta fjöl­skyldu sína senda smá athuga­semd í fjöl­miðla um Maxwell en hún var taf­ar­laust flutt í annað fang­elsi í Houston.

Yfirvöld segja að flutn­ingur Maxwell hafi verið „rútína“, en hátt­settur emb­ætt­is­maður dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins hefur and­mælt því og full­yrt að reglur hafi verið brotnar til að „þagga niður í henni“.

Maxwell, dóttir gjald­þrota auð­kýf­ings­ins Roberts Maxwell, von­ast nú eftir for­seta­náðun svo hún geti um frjálst höfuð strokið.

Bæði hún og Epstein tengd­ust frægum ein­stak­lingum víða um heim, þar á meðal Andrési prins. Einn þol­and­inn, Virginia Giuffre heitin, hélt því fram að hún hafi verið neydd til að stunda kyn­líf með Andrési þegar hún var 17 ára í íbúð Maxwell í London. Andrés hefur alltaf hafnað ásök­unum og full­yrt í við­tali við BBC árið 2019 að hann muni ekki eftir að hafa hitt Maxwell.

Breski fjöl­mið­ill­inn Mirror fjall­aði um málið en þar má sjá nýjar ljós­myndir af Maxwell á leið í jóga­tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta