Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Rússland hefur engin áform um að binda enda á þetta stríð“

Utan­rík­is­ráð­herra kall­aði eftir því að þjóðir heims tækju höndum saman

„Rússland hefur engin áform um að binda enda á þetta stríð“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra Í ræðu­stóli alls­herj­ar­þings­ins Mynd: Utanríksráðuneytið

Í ávarpi sínu á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna kall­aði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra eftir því að þjóðir heims tækju höndum saman í þeim til­gangi að end­ur­vekja þann anda og leiða til önd­vegis á ný þær hug­sjónir er leiddu til stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir átta­tíu árum síðan í borg­inni San Francisco í Banda­ríkj­unum.

Sagði Þor­gerður Katrín að mann­kynið skuld­aði kom­andi kyn­slóðum að berja í bresti alþjóða­sam­vinnu og alþjóða­stofn­ana sem nú væru áber­andi.

Hún færði í tal að virð­ing fyrir alþjóða­lögum sem og trú á frelsi og frið­sam­legar úrlausnir deilu­mála hefðu und­an­farin átta­tíu ár tryggt venju­legu fólki meiri vel­sæld og betra líf en ann­ars hefði verið og brýnt væri að feta þann stíg á ný.

Hún gerði einnig bakslag í virð­ingu fyrir mann­rétt­indum og alþjóða­lögum að sér­stöku umtals­efni og sagði að „sumir virt­ust jafn­vel gera sér sér­stakt far um að grafa undan grund­vall­ar­þáttum alþjóða­kerf­is­ins“ og að ein afleið­ing þessa væri „dvín­andi traust almenn­ings og til­trú á þeim leik­reglum sem ríki heims urðu ásátt um fyrir átta­tíu árum.“ Og að mati Þor­garðar Katrínar er þessi þróun afar hættu­leg:

„Veröld þar sem engar reglur gilda er ver­öld þar sem hinir sterku þvinga fram vilja sinn og hinir veik­ari verða undir.”

Sagði einnig að „hinum sterku kann að hugn­ast slík heims­sýn“ og að „góðar vís­bend­ingar eru um að svo sé. Það er hins vegar ekki ver­öld sem við getum eða ættum að sætta okkur við.”

Rússland vill alls ekki frið

Utan­rík­is­ráð­herra gerði ólög­legt inn­rás­ar­stríð Rúss­lands í Úkraínu og stöð­una í Mið-Aust­ur­löndum að sér­stöku umtals­efni.

Hún sagði að fram­ganga Rúss­lands í Úkraínu væri skýrt brot á stofnsátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna; sýnu verri væri þessi fram­ganga í ljósi þess að árás­ar­að­il­inn, Rússland, ætti fast sæti í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna. Við­leitni Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­ríkj­anna til að tryggja rétt­látan og langvar­andi frið hefði ekki skilað nægi­legum árangri; enda sýndi sig að Rússland hefði engan áhuga á slíku, heldur þvert á móti hefðu þar­lend stjórn­völd gefið í, magnað árásir sínar á óbreytta borg­ara og lyk­il­inn­viði Úkraínu, og staðið fyrir ögrandi aðgerðum yfir Eist­landi, Póllandi og Rúmeníu. og af því hlytu allar þjóðir að hafa áhyggjur:

„Tölum skýrt: Rússland hefur engin áform um að binda enda á þetta stríð. Það stig­magnar bara aðgerðir sínar, skapar skelf­ingu, rænir börnum af heim­ilum sínum. Tug­þús­und úkra­ínsk börn hafa verið numin á brott, sem er sví­virði­legur glæpur, árás á fram­tíð Úkraínu,” sagði utan­rík­is­ráð­herra og bætti þessu við:

„Almenn­ingi í Úkraínu heiti ég þessu: Ísland stendur með ykkur – ekki aðeins í þágu sam­stöðu heldur vegna þess að þið eruð í fram­línu varn­ar­bar­átt­unnar fyrir alþjóða­reglu­verki þar sem virð­ing fyrir lögum hefur betur gegn hnefarétti. Þið verðið að fá að njóta sann­gjarns og var­an­legs friðar.”

Eitt barn drepið af Ísra­els­mönnum á hverri klukku­stund

Þor­gerður Katrín sagði það afar mik­il­vægt að tala af sömu hrein­skilni um ástandið á Gaza og í Úkraínu og við öllum blasi það að þar séu framdir glæpir gegn mann­kyni sem og stríðs­glæpir; ekk­ert annað en kerf­is­bundnar þjóð­ern­is­hreins­anir:

„Þessu verður að linna. Við þurfum vopna­hlé sam­stundis, fullt aðgengi fyrir mann­úð­ar­að­stoð og að gíslum sé sleppt án skil­yrða. Við þurfum frið til handa öllu sak­lausu fólki.“

Hún árétt­aði að Íslandi hefði for­dæmt hrylli­lega hryðju­verka­árás á Ísrael 7. októ­ber 2023 og fyrir þeirri grimmd er þar birt­ist væri engin rétt­læt­ing; né væri gísla­taka nokkurn tím­ann rétt­mæt. En ekk­ert – alls ekki neitt – gæti rétt­lætt að refsa í stað­inn millj­ónum sak­lausra Palest­ínu­manna með því að „fram­kalla hung­ursneyð, standa fyrir linnu­lausu sprengjuregni og nauð­ar­flutn­ingi end­ur­spegl­aði grimmd, væri ómann­úð­legt og ólög­legt“ og sagði Þor­gerður Katrín að hrika­legt væri til þess að hugsa að á Gaza væri að minnsta kosti eitt barn drepið á hverri klukku­stund.

Utan­rík­is­ráð­herra gerði tveggja ríkja lausn­ina að umtals­efni, en sú leið er ennþá talin geta tryggt var­an­legan frið í Mið-Aust­ur­löndum. Sagði Þor­gerður Katrín að margir efuð­ust um að þessi leið væri enn raun­hæf; en að ef við snerum algjör­lega baki við henni væri verið að gefa alla von upp á bát­inn um frið og stöð­ug­leika. Sagði hún einnig að „öfga­fólk og öfl sem vilji skemma fyrir sé að finna bæði í röðum Palest­ínu­manna og Ísraela“ og að við­kom­andi hefðu lengið staðið í vegi friðar:

„Hamas á ekki að eiga neinn hlut í fram­tíð­ar­skipan mála í Palest­ínu. Að sama skapi eru leið­togar Ísraels, sem kalla eftir inn­limun [svæða Palest­ínu­manna] eða brott­rekstri Palest­ínu­manna, ekki að verja öryggi Ísraels. Þeir eru að hvetja til brota á alþjóða­lögum. Og við ætlum að nota við­eig­andi hug­tök um slíka fram­göngu: hún er hat­urs­full, ólög­leg og bein fyr­ir­staða friðar.”

Vill að næsti fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna verði kona

Þor­gerður Katrín sagði vís­bend­ingar vera víða um að það molni undan alþjóða­kerf­inu; menn leiddu hjá sér úrskurði Alþjóða­dóm­stóls­ins og ráð­ist væri beint gegn Alþjóða­saka­mála­dóm­stólnum. Á tíma þegar meiri þörf væri á því að ábyrgð­ar­skyldu væri fylgt, ekki minni, væri verið að grafa skipu­lega undan slíkri við­leitni. Það ylli von­brigðum að sjá jafn­vel vini taka þátt í slíku:

„Þessi þróun er sér­stakt áhyggju­efni fyrir lítil ríki, eins og mitt eigið, hvers til­vist byggir hreini­lega á því að til staðar sé kerfi alþjóða­laga og skuld­bind­inga, sem borin er virð­ing fyrir. Þegar hinir sterku kasta fyrir róða öllum leik­reglum steðjar hætta að öllum þjóðum,” sagði hún.

Að mati utan­rík­is­ráð­herra hafa alþjóð­leg risa­fyr­ir­tæki áhrif yfir landa­mæri ríkja, móti heilu hag­kerfin og tækja­noktun og dag­legt líf fólks án þess að í raun axla á því nokkra ábyrgð. Hún sagði að þessi „nýi heimur sé áður óþekkt áskorun fyrir mann­kyn“ og kalli á að brugð­ist sé við. Einnig sagði Þor­gerður Katrín Íslend­inga stolta af þeim árangri sem náðst hefur í jafn­rétt­is­málum heima fyrir, en a' verk væri enn að vinna, á Íslandi eins og ann­ars staðar. Hún nefndi að rík­is­stjórn Íslands, sem lyti for­ystu þriggja kvenna, væri stað­ráðin í að feta þann stíg fram veg­inn.

Og utan­ríks­ráð­herra sagði líka í ávarpi sínu að á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem senn þarf að velja nýjan fram­kvæmda­stjóra þegar kjör­tíma­bili Antonio Guterres lýkur, væri komin tími til að kona veld­ist í for­ystu stofn­un­ar­innar. Ráðherra sagði það sorg­legt að fylgj­ast með því hvernig víða hefði verið blásið til her­ferðar hat­urs gegn jað­ar­hópum eins og hinsegin fólki:

„Tölum afdrátt­ar­laust: konur eru ekki vanda­málið. Hinsegin fólk er ekki vanda­málið. Minni­hluta­hópar eru ekki vanda­málið. Vanda­málið liggur hjá þeim sem stuðla vilj­andi að sundr­ungu og ótta.”

Að mati hennar þá stafar „lýð­ræð­inu sjálfu ógn af þess­ari þróun“ og að einmitt þess­vegna muni Ísland, sem aðild­ar­ríki mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna, tala áfram skýrt og skor­in­ort og segja:

„Jafn­rétti er ekki umsemj­an­legt. Það er ekki hægt að semja um það hvort sér­hver mann­eskja njóti virð­ingar” sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta