Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Greta Thunberg meðal aðgerðasinna sem Ísraelsher hefur handtekið

Ísraelar segj­ast ætla að reka aðgerð­ar­sinn­ana úr landi á fimmtu­dag­inn.

Greta Thunberg meðal aðgerðasinna sem Ísraelsher hefur handtekið
Greta Thunberg Greta hefur verið hand­tekin af Ísraelum Mynd: Greta Thunberg / Instagram

Ísra­elski her­inn réð­ist um borð í nokkra af bátum frið­ar­flot­ans sem er á leið til Gaza í þeirri von um að hægt sé að koma hjálp­ar­gögnum til íbúa Gaza sem upp­lifa nú hung­ursneyð ofan á þjóð­ar­morð. Sænski aðgerð­ar­sinn­inn Greta Thunberg er meðal þeirra sem hefur verið rænt af ísra­elska hernum.

Að minnsta kosti tutt­ugu ísra­elsk her­skip réð­ust í kvöld um borð í minnst sex skip svo­kall­aðs Frels­is­flota, sem var á leið til Gaza-svæð­is­ins með aðgerða­sinna, blaða­menn, heil­brigð­is­starfs­menn og neyð­ar­birgðir um borð. Um var að ræða annað skip en það sem íslenska aðgerða­konan Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína, siglir með en skip hennar kemur ekki á svæðið fyrr en eftir um það bil viku.

Samkvæmt frétt Guardian nálg­uð­ust her­skipin flot­ann þegar hann var staddur utan við strendur Egypta­lands. Þar til­kynnti ísra­elski sjó­her­inn að skipin væru að sigla inn á haf­svæði sem sætti her­kví. Farþegum var sagt að vildu þeir koma birgðum til Gaza yrðu þeir að sigla til hafn­ar­borg­ar­innar Ashdod í Ísrael.

Að sögn far­þega skip­aði sjó­her­inn áhöfnum að stöðva vélar bát­anna. Á beinu streymi frá þil­förum mátti sjá far­þega sitja í hring með björg­un­ar­vesti, en útsend­ingar margra hafa síðan verið rofnar.

Blaða­maður mið­ils­ins Drop Site News, sem var um borð í skip­inu sem her­sveit­irnar fóru um borð í, greindi frá því að far­þegum hefði verið skipað að fleygja far­símum sínum í sjó­inn. Rit­stjórn mið­ils­ins hefur misst sam­band við blaða­mann­inn.

Frels­is­flot­inn sam­anstendur af um 40 bátum og um 500 þátt­tak­endum, þar á meðal aðgerðasinnum, lög­mönnum og stjórn­mála­mönnum. Meðal þeirra eru Svíinn Greta Thunberg, leik­konan Susan Sarandon og írski leik­ar­inn Liam Cunningham. Magga Stína siglir með öðru skipi sem lagði af stað í gær og er enn langt frá svæð­inu sem Ísrael skil­greinir sem „hættu­svæði“, þar sem þeir stöðva skip þrátt fyrir að þau séu utan lög­helgi rík­is­ins.

Ísra­elska utan­rík­is­ráðu­neytið stað­festi í yfir­lýs­ingu að nokkrir bátar flot­ans hefðu verið stöðv­aðir og að far­þegar þeirra yrðu fluttir til hafnar í Ísrael.

Sendi­herra Ísraels hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, Danny Danon, segir að aðgerða­sinnar um borð í hjálp­ar­flot­anum til Gaza verði vísað úr landi þegar gyð­inga­há­tíðin Yom Kippur lýkur á fimmtu­dag.

„Við munum ekki leyfa neinum sýnd­ar­mennsku­við­burði nálægt virku stríðs­svæði að brjóta gegn full­veldi okkar. Þeir sem reyndu að fara ólög­lega inn á land­svæði Ísraels verða taf­ar­laust vísað úr landi eftir Yom Kippur,“ sagði Danon í yfir­lýs­ingu.

Hann bætti við að Ísrael hefði „ítrekað boðið leiðir til að koma aðstoð frið­sam­lega til Gaza,“ en hélt því fram að flot­inn hefði „engan áhuga á hjálp – aðeins ögrun.“

Ísrael heldur áfram að stöðva megnið af hjálp­ar­gögnum frá því að kom­ast til Gaza, þar sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa varað við mann­gerðri hung­ursneyð og víð­tæku hungri vegna umsát­urs­ins um svæðið.

Hér fyrir neðan má sjá mynd­skeið þar sem sýnir Gretu Thunberg tala um að verið sé að ræna þeim og að Ísrael sé að brjóta með því alþjóða­lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta