Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Gnarr biður Guð að blessa Grindavík

„Ekki er að spauga með íslenskt sjó­manns­blóð, ólg­andi sem hafið og eld­fjallaglóð“

Jón Gnarr biður Guð að blessa Grindavík
Jón Gnarr Þing­mað­ur­inn grínaktugi er fullur iðr­unar Mynd: Víkingur

Leik­ar­inn, þing­mað­ur­inn og fyrr­ver­andi borg­ar­stjór­inn, Jón Gnarr, hefur beðist inni­legrar afsök­unar á orðum sínum sem hann lét falla í Vikunni með Gísla Marteini á föstu­dags­kvöld en þau tengd­ust Grind­vík­ingum. Það gerði Jón í færslu sem hann birti á Facebook í morgun.

Jón segir ekki hafa verið ætlun sína að gera lítið úr fólki eða sýna van­virð­ingu, heldur hitt að vekja athygli á áhrifum nátt­úru­ham­fara á mann­líf og sál.

„Mikið finnst mér leið­in­legt að heyra þetta. Það var ekki ætlun mín að gera gera lítið úr eða sýna fólki van­virð­ingu, heldur þvert á móti. Mér var efst í huga hvað við megum okkur oft lít­ils gagn­vart ógn­ar­kröftum nátt­úru­afl­anna og hvernig það að upp­lifa jarð­hrær­ingar getur kippt undan okkur fót­unum og haft djúp­stæð áhrif á okkur,” skrifar hann.

Jón rifjar upp fund sinn með Grind­vík­ingum síð­asta sumar:

„Þessi hjón sem ég vísa til hitti ég ásamt hópi af Grind­vík­ingum síð­asta sumar. Ég hitti þau fyrir utan bens­ín­stöð­ina á Blöndu­ósi. Maðurinn lýsti þessu svona fyrir mér, hvernig húsið þeirra hefði færst til. Það var aug­ljóst að þetta hafði haft mikil áhrif á hann. Og hann sagði þetta, að hann myndi aldrei vilja fara aftur heim til Grinda­víkur. Ég var ekki að búa þetta til.“

Hann segir mark­mið sitt hafa verið að sýna sam­kennd:

„Ég vildi sýna með­líðan og sam­kennd og skiln­ing á þeirri áfallastreituröskun sem svona getur fylgt. Ég var sjö ára þegar gaus í Eyjum. Pabbi var lög­reglu­maður og tók þátt í björg­un­ar­starf­inu nótt og dag. Að sjá þetta í sjón­varp­inu og vita af pabba þarna var óhugn­an­legt.“

Jón lýsir tengslum sínum við Grinda­vík og Svarts­engi og segir sig bera hlý­hug til bæj­ar­ins og íbú­anna:

„Ég vann í Svarts­engi við lóða­fram­kvæmdir sem ungur maður og kom þá dag­lega til Grinda­víkur. Ég hlóð meðal ann­ars hraun­hleðsl­urnar sem stóðu við veg­inn til hita­veit­unnar. Ég heim­sótti Grinda­vík síð­asta vetur og sá þá að þessir garðar mínir voru allir hrundir til grunna. Ég heim­sótti bæinn og átti fundi með fjölda fólks og heim­sótti fyr­ir­tæki og á ekk­ert nema hlýju til Grinda­víkur og allra Grind­vík­inga. Og ég held að allir Íslend­ingar geri það.“

Að lokum biðst Jón afsök­unar á orðum sínum:

„Ég biðst inni­legrar afsök­unar hafi orð mín verið óvar­lega sögð. Ég skil að þetta er við­kvæmt, fólk er stolt og finnst lítið gert úr sér. „Ekki er að spauga með íslenskt sjó­manns­blóð, ólg­andi sem hafið og eld­fjallaglóð.“ Fyr­ir­gefið mér kæru vinir ef ég hef sært ykkur, það var ekki ætl­unin. Ég ber mikla virð­ingu fyrir dirfsku, æðru­leysi og þraut­seigju Grind­vík­inga og hef fulla trú á því að við náum saman, með tím­anum, að end­ur­reisa bæinn og vinna okkur út úr þessu, ekki bara efna­hags­lega heldur til­finn­inga­lega líka. Guð blessi Grinda­vík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi