Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kántrí goðsögnin Alan Jackson yfirgefur sviðið vegna veikinda

Söngv­ar­inn hefur til­kynnt um lokatón­leika sína á næsta ári

Kántrí goðsögnin Alan Jackson yfirgefur sviðið vegna veikinda
Alan Jackson Alan mun syngja sitt síð­asta á næsta ári Mynd: Tony Norkus/Shutterstock

Kántrí-goð­sögnin, Alan Jackson, hefur til­kynnt að hann muni halda síð­ustu stór­tón­leika sína árið 2026, þar sem lang­vinn bar­átta hans við Charcot-Marie-Tooth-sjúk­dóm­inn (CMT), hrörn­un­ar­sjúk­dóm sem hefur áhrif á tauga­kerfið, hefur gert honum æ erf­ið­ara að koma fram.

„Þetta hefur verið löng og merki­leg veg­ferð,“ sagði Jackson í yfir­lýs­ingu til People 8. októ­ber, „og hún hefur leitt mig á staði sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér.“

Hinn 66 ára tón­list­ar­maður mun ljúka ferli sínum á sviði með tón­leik­unum Last Call: One More for the Road, The Finale, sem fara fram 27. júní 2026 á Nissan-leik­vang­inum í Nas­hville, heima­borg hans í Tennessee.

„Ég get ekki ímyndað mér betri stað til að halda lokatón­leika og þakka aðdá­endum mínum fyrir allt en í Nas­hville,“ sagði Jackson. „Þar byrj­aði þetta allt, í Music City, þar sem Kántrí tón­listin lifir og dafnar.“

Á svið með honum stíga fjöl­margir gestir, þar á meðal Luke Bryan, Miranda Lambert, Carrie Underwood og Keith Urban, auk ann­arra. Bryan sagði í færslu á Instagram að honum væri mik­ill heiður að taka þátt:

„@officialalanjackson hefur mótað mig í gegnum tón­list­ina sína í gegnum árin. Ég hlakka ótrú­lega mikið til að taka þátt í síð­ustu tón­leikum þessa félaga úr Georgíu á næsta ári.“

Tón­leik­arnir verða þó ekki aðeins kveðju­há­tíð fyrir Jackson heldur einnig tæki­færi til að vekja athygli á CMT-sjúk­dómnum. Einn dollar af hverjum seldum miða rennur til CMT Research Foundation, sem styrkir rann­sóknir á sjúk­dómnum.

Jackson greind­ist með CMT árið 2011 en opin­ber­aði veik­indin fyrst árið 2021.

„Ég er með þennan tauga­sjúk­dóm sem ég erfði frá föður mínum,“ sagði hann í við­tali við Today Show. „Það er engin lækn­ing til, og sjúk­dóm­ur­inn hefur haft áhrif á mig í mörg ár.“

Hann bætti við að hann fyndi sífellt meira fyrir ein­kenn­unum:

„Ég veit að ég er far­inn að missa jafn­vægi á sviði og stundum detta ég næstum, jafn­vel þegar ég stend við hljóð­nem­ann. Það er orðið mjög óþægi­legt.“

Þrátt fyrir það und­ir­strikar Jackson að CMT sé ekki lífs­hættu­legur sjúk­dómur.

„Hann mun ekki drepa mig,“ sagði hann. „En hann teng­ist bæði vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dómum og Park­in­sons­veiki.“

Jackson segir að veik­indin hafi gefið honum færi á að líta yfir feril sinn og skilja eftir það sem honum þyki mestu skipta:

„Ég hef alltaf trúað því að tón­listin sjálf sé það mik­il­væg­asta, lögin. Ef ég á að skilja eitt­hvað eftir mig, þá vona ég að það sé það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta