Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nær helmingur Eflingarfélaga býr við fátækt

Staða Efl­ing­ar­fé­laga er veru­lega verri en staða félags­fólks í öðrum aðild­ar­fé­lögum ASÍ og BSRB

Nær helmingur Eflingarfélaga býr við fátækt
Fátækt er raun­veru­leg á Íslandi Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: perfectlab/Shutterstock

Ný skýrsla Vörðu, rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins, sýnir að um 40% Efl­ing­ar­fé­laga búa við skort á efn­is­legum og félags­legum gæðum, sem þýðir að þau lifa við fátækt. Staða Efl­ing­ar­fé­laga er veru­lega verri en staða félags­fólks í öðrum aðild­ar­fé­lögum ASÍ og BSRB, þar sem um 20% búa við sam­bæri­legan skort.

Alls eiga 45% Efl­ing­ar­fé­laga erfitt með að ná endum saman, þar af eiga tæp 8% mjög erfitt með það. Til sam­an­burðar eiga 28% félags­fólks ann­arra stétt­ar­fé­laga erfitt með að ná endum saman, þar af 3,5% mjög erfitt. Aðeins rúm 40% Efl­ing­ar­fé­laga telja sig geta mætt óvæntum 100 þús­und króna útgjöldum án þess að skulda sig, á meðan tæp­lega 64% ann­ars launa­fólks telja sig geta það.

Fjöl­margar mæl­ingar á efn­is­legum skorti sýna að Efl­ing­ar­fé­lögum gengur mun verr:

  • 27% eiga ekki aðgang að bíl, borið saman við 7% ann­ars launa­fólks.
  • 24% hafa ekki efni á kjöti eða fisk annan hvern dag, borið saman við 12% ann­ars launa­fólks.
  • 25% geta ekki greitt alla reikn­inga á eindaga, borið saman við 8% ann­ars launa­fólks.
  • 52% geta ekki skipt út slitnum hús­gögnum, borið saman við 30% ann­ars launa­fólks.
  • 36% hafa ekki efni á árlegu viku­fríi að heiman, borið saman við 23% ann­ars launa­fólks.

Einnig eru per­sónu­legar þarfir og tóm­stundir fyrir áhrifum:

  • 17% eiga ekki tvö pör af skóm, borið saman við 8% ann­ars launa­fólks.
  • 23% geta ekki skipt út slitnum fatn­aði, borið saman við 9% ann­ars launa­fólks.
  • 53% hafa ekki efni á að sinna tóm­stundum eða áhuga­máli, borið saman við 33% ann­ars launa­fólks.
  • 41% geta ekki varið smá­vegis pen­ing í sjálfa sig viku­lega, borið saman við 33% ann­ars launa­fólks.
  • 44% hafa ekki efni á að hitta vini eða fjöl­skyldu í mat eða drykk mán­að­ar­lega, borið saman við 34% ann­ars launa­fólks.

Í heild­ina má segja að yfir sjö þús­und Efl­ing­ar­fé­laga búi við veru­legan skort. Samkvæmt skýrsl­unni telst fólk sem býr við skort í 7 eða fleiri af 13 mæli­kvörðum á efn­is­leg og félags­leg gæði vera í veru­legum skorti.

  • 20% Efl­ing­ar­fé­laga búa ekki við neinn skort, borið saman við 38% ann­ars launa­fólks.
  • 17% búa við almennan skort, borið saman við 11% ann­ars launa­fólks.
  • 22% búa við veru­legan skort, borið saman við 10% ann­ars launa­fólks.

Skýrslan sýnir að staða Efl­ing­ar­fé­laga í íslensku sam­fé­lagi er bæði alvar­leg og veru­lega lak­ari en ann­ars launa­fólks. Um 13.000 félags­menn Eflingar eru fastir í fátækt­ar­gildru, þar af líða ríf­lega 7.000 veru­legan skort, á meðan staða um það bil 5.000 ann­arra Efl­ing­ar­fé­laga er brot­hætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara