Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sarah Ferguson „á barmi taugaáfalls“

„Hún er algjör­lega nið­ur­brotin. Hún er mann­eskja, móðir, hún gengur í gegnum hel­víti.“

Sarah Ferguson „á barmi taugaáfalls“
Sarah Ferguson Fergie er sögð á barmi tauga­á­falls Mynd: KIRSTY WIGGLESWORTH / AFP

Samkvæmt nýjum fregnum er Sarah Ferguson, fyrr­ver­andi eig­in­kona Andrésar prins, „á barmi tauga­á­falls“ eftir að hafa afsalað sér notkun kon­ung­legs tit­ils sem hún hefur haft í fjöru­tíu ár.

Vinur hennar hefur opin­berað að hún sé „á barmi tauga­á­falls“ þar sem „eyði­lagðar“ dætur hennar séu nú dregnar inn í hneykslið sem blossað hefur upp vegna tengsla hennar við barn­a­níð­ing­inn Jeffrey Epstein.

Sarah, sem var gift Andrési prins árum saman, eyddi árum í að verja hann þegar hann féll í ónáð og stóð stöðugt við hlið hans, jafn­vel þótt þau væru löngu skilin, og deildi áfram heim­ili með honum.

Nú er það hins vegar sam­band hennar sjálfrar við Epstein sem hefur orðið henni að falli. Nýlega kom í ljós tölvu­póstur sem hún hafði sent Epstein eftir að hafa opin­ber­lega lýst því yfir að hún hefði slitið öll tengsl við hann. Í póst­inum kall­aði hún hann sinn „æðsta vin“. Talsmenn hennar sögðu að hún hefði sent póst­inn af ótta við hót­anir gagn­vart fjöl­skyldu sinni.

Afleið­ing­arnar létu ekki á sér standa. Fjöldi góð­gerð­ar­sam­taka sem hún hefur lengi tengst slitu tengslin við hana og sögðu „óvið­eig­andi“ að hún héldi áfram að koma fram fyrir þeirra hönd.

Í kjöl­farið kom síðan yfir­lýs­ing frá Andrési þar sem hann til­kynnti að hann og Sarah myndu bæði „gefa upp alla kon­ung­lega titla og heið­urs­merki til fram­búðar“ eftir að hann átti tíu mín­útna sím­tal við eldri bróður sinn, Karl III kon­ung, sem lýst var sem „þreyttum og reiðum“. Andrew hafnar öllum ásök­unum sem gerðar hafa verið á hendur honum.

Samkvæmt kon­ung­legum sér­fræð­ingi sem hefur talað við vin hennar er Sarah nú á barmi tauga­á­falls vegna ástands­ins.

Phil Dampier sagði: „Mér er sagt að hún hafi verið á barmi tauga­á­falls,“ og bætti við: „Ég get upp­lýst að eldri systir hennar, Jane, hafi nýlega flogið frá Ástralíu til Bret­lands til að styðja hana.“

Í sam­tali við Woman’s Day bætti hann við: „Söruh líður mjög illa og það kemur varla á óvart. Hún þurfti stuðn­ing og Jane hefur staðið við hlið hennar þegar hún þurfti á því að halda. Hún og Andrés vita að þau bera ábyrgð, en þau finna engu að síður fyrir því að í þau sé nú sparkað mis­kunn­ar­laust þegar þau liggja niðri. Það er erfitt að sjá hvað fram­tíðin ber í skauti sér.“

Auk þess hafa nýjar, sjokker­andi ásak­anir komið fram þessa vik­una, meðal ann­ars þær að þegar Epstein var lát­inn laus úr fang­elsi árið 2009 hafi Sarah og dætur hennar, Beta Dís prinsessa og Evgenía prinsessa, „fagnað“ með hinum dæmda barn­a­níð­ingi.

Vinur Sarah, Lizzie Cundy, hefur nýverið varið hana í við­tali í Jeremy Vine Show og sagt að Sarah sé „í hel­víti“ og sé algjör­lega „nið­ur­brotin“ vegna tölvu­pósta­hneyksl­is­ins sem varð til þess að hún missti góð­gerð­ar­sam­tök sín.

„Sarah er algjör­lega nið­ur­brotin yfir því að hafa misst góð­gerð­ar­sam­tökin,“ sagði Cundy. „Sér­stak­lega sam­tökin gegn krabba­meini, þar sem hún sjálf fékk nýlega grein­ingu. Hún er algjör­lega nið­ur­brotin. Hún er mann­eskja, móðir, hún gengur í gegnum hel­víti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife