Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Átján úr sömu fjölskyldunni drepin í árás Ísraelshers

„Von hefur breyst í svart­nætti“

Átján úr sömu fjölskyldunni drepin í árás Ísraelshers
Gaza Algeng sjón frá Gaza síð­ustu tvo árin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Að minnsta kosti 100 Palest­ínu­menn voru drepnir í stór­felldum loft­árásum Ísra­els­hers á Gaza í nótt, þar af 18 úr sömu fjöl­skyld­unni. Þetta kemur fram í umfjöllun frétta­rit­ara Al Jazeera í Gaza-borg, Hani Mahmoud.

„Frá því í morgun höfum við séð að sú stutta von um rósemi hefur breyst í örvænt­ingu. Him­inn­inn er fullur af orr­ustu­þotum, drónum og njósn­a­flug­vélum,“ skrifar Mahmoud og bætir við að Gaza-búar ótt­ist nú að þær árásir sem hófust í gær­kvöldi muni halda áfram næstu daga.

Segir Mahmoud að nóttin hafi verið ein sú mann­skæð­asta frá því að Ísraelar hófu þjóð­ar­morðið, eftir árás Hamas-liða 7. októ­ber, 2023.

„Ríkjandi stemn­ing hér er skelf­ing og ótti þar sem Gaza hefur lifað eina mann­skæð­ustu nótt­ina hingað til og fyrir marga er þetta óhugn­an­leg áminn­ing um fyrstu vikur þjóð­ar­morðs­ins, hvað varðar umfang og eyði­legg­ingu sem gríð­ar­stórar sprengjur yfir Gaza-borg ollu.“

Að minnsta kosti 100 eru taldir hafa lát­ist í árás­unum í nótt og eins og áður eru konur og börn í meiri­hluta fórn­ar­lambanna.

„Af þeim 42 sem lét­ust í mið­hluta Gaza voru 18 úr einni og sömu fjöl­skyld­unni … þrjár kyn­slóðir sem lét­ust í einni árás á heim­ili þeirra, börn, for­eldrar og afar og ömmur,“ skrifar Mahmoud og bætir við að í Gaza-borg hafi spreng­ingar ómað alla nótt­ina og valdið skelf­ingu í heilu íbúð­ar­hverf­unum, „lýst upp him­in­inn og juku ótt­ann“.

Þá segir frétta­rit­ar­inn að staðan á þeim sjúkra­húsum sem enn virka að ein­hverju leiti sé mjög erfið. Þar séu gangar fullir af fórn­ar­lömbum, harmi slegnum fjöl­skyldum og blóði drifnum eft­ir­lif­endum.

„Umbreyt­ingin frá von um að vopna­hléið héldi áfram og færði fólki frið í hug­ann hefur breyst í svart­nætti,“ skrifar Mahmoud og bætir að lokum við:

„Ef vopna­hlé lítur svona út, er stórt spurn­ing­ar­merki við það hvort það geti staðið og virkað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta