Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýgift par gagnrýnt eftir að hafa deilt myndböndum frá fellibylnum Melissa

„Hversu ótengd veru­leik­anum getur mann­eskja verið?

Nýgift par gagnrýnt eftir að hafa deilt myndböndum frá fellibylnum Melissa
Felli­byl­ur­inn Melissa Melissa gengur nú yfir Jamaíka og Kúbu Mynd: Shutterstock

Nýgift hjón, Alicia og Chase, voru á brúð­kaups­ferð í Excellence Oyster Bay hót­el­inu í Falmouth á Jamaíka þegar felli­byl­ur­inn Melissa gekk yfir og gestum var fylgt í neyð­ar­skjól.

Parið hefur sætt harðri gagn­rýni á net­inu eftir að Alicia deildi mynd­böndum á TikTok af upp­lifun þeirra á felli­bylnum. Notendur hafa sakað þau um að vera „algjör­lega úr takti við raun­veru­leik­ann“ og lýstu mynd­bönd­unum sem „dystópískum“ þar sem starfs­fólk hót­els­ins þjón­aði þeim á meðan heim­ili starfs­mann­anna væru mögu­lega rústir einar.

Alicia, sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur frá New York og birtir efni á TikTok undir not­anda­nafn­inu @aliciad729, sagði í fyrstu færslu sinni að ástandið væri „mjög rólegt akkurat núna“ en að storm­ur­inn myndi skella á síðar um dag­inn. Hún sýndi starfs­fólk halda áfram að þjóna gestum, en það vakti reiði margra áhorf­enda.

Hún sagð­ist hafa fengið fyr­ir­mæli um að pakka í neyð­ar­tösku og sýndi hvað hún setti í hana: vatn, hand­spritt og lyf. Ef storm­ur­inn versn­aði yrði þeim fylgt í skjól.

Síðar útskýrði hún að þau mættu ekki taka ferða­tösk­urnar með sér heldur væru heppin með að koma nauð­synjum fyrir í snyrti­tösku Chase. Hún sýndi gesta­her­bergi þar sem skýli höfðu verið sett upp og skrif­aði: „Hér verðum við örugg­lega í ein­hvern tíma.“

Starfs­fólk kom með mat til fólks í skjól­inu og vakti það enn frek­ari gagn­rýni á net­inu.

„‚Morg­un­matur, hádegis og kvöld­matur verður færður til okkar. Sendið bænir‘ – hversu ótengd veru­leik­anum getur mann­eskja verið???? Oj,“ skrif­aði einn not­andi.

„Aumingja þú… á meðan þau þjóna þér geta þau verið að missa fjöl­skyldu, vini og heim­ili,“ sagði annar.

Í nýj­ustu upp­færslu sýndi Alicia hlað­borð með snakki og drykkjum og svo mál­tíð sem þau fengu á rekkj­unum: kúskússalat, humarpasta og jafn­vel jarð­ar­berja­osta­köku í eft­ir­rétt. Hún end­aði mynd­bandið á að sýna þau með þum­al­fing­ur­inn á lofti og skrif­aði „Södd & örugg“.

Ekki þau einu sem fá skammir

Önnur banda­rísk ferða­kona, Jourdain sem birtir efni undir @travelwithjourdain, hefur einnig verið gagn­rýnd harð­lega vegna mynd­banda frá Sandals South Coast hót­el­inu. Hún sagði frá því að gestir hefðu þurft að halda sig inni í her­bergjum í tvo til þrjá daga og að mat væri nú pant­aður deg­inum áður.

Jourdain sýndi ríku­legan morg­un­verð sem hún fékk, pylsur, kart­öflur, beikon og egg, auk girni­legra sæl­gæt­is­rétta. Hún kvart­aði þó yfir að sal­atið sem hún fékk væri án sósu.

Það reitti marga til reiði og Jourdain slökkti á athuga­semdum. Hún hefur síðan sagt að hún sé þakk­lát fyrir þjón­ust­una og mat­inn á meðan á hætt­unni stendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife