Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Æðsti lögfræðingur IDF handtekinn vegna leka sem skók Ísrael

Yifat Tomer-Yerus­halmi fannst eftir að leitað var að henni við strendur Tel Aviv.

Æðsti lögfræðingur IDF handtekinn vegna leka sem skók Ísrael
Yifat Tomer-Yerus­halmi Her­lög­fræð­ing­ur­inn hefur verið hand­tek­inn Mynd: Samsett

Fyrr­ver­andi aðal­lög­fræð­ingur ísra­elska hers­ins, Yifat Tomer-Yerus­halmi, hers­höfð­ingi, fannst á lífi og hefur nú verið hand­tekin en leit hófst af henni í gær.

Hún sagði af sér í síð­ustu viku eftir að hafa játað að hafa leyft leka á mynd­bandi til fjöl­miðla, þar sem sjá mátti alvar­legt ofbeldi í garð palest­ínsks fanga.

Í gær var greint var frá því að hún væri týnd, og lög­regla hóf umfangs­mikla leit að henni á strönd norðan við Tel Aviv en bif­reið hennar fannst þar nærri.

Síðar fannst hún á lífi og við góða heilsu, að sögn lög­reglu, en var þá hand­tekin.

Myndbandsleki veldur miklum titringi

Mynd­bandið, sem birt­ist í ágúst 2024 í ísra­elskum fjöl­miðlum, sýnir vara­liða á Sde Teiman her­stöð­inni í suð­ur­hluta Ísraels taka palest­ínskan fanga til hliðar, umkringja hann með skjald­borg til að blokka sýn og berja hann síðan, og stinga hann í enda­þarm með beittu áhaldi.

Fanginn hlaut alvar­lega áverka og þurfti með­ferð lækna.

Fimm vara­liðar voru síðar ákærðir fyrir alvar­legt ofbeldi og lík­ams­meið­ingar. Þeir hafa neitað sök og nöfn þeirra hafa ekki verið birt.

Í gær komu fjórir þeirra fram fyrir utan Hæsta­rétt í Jer­úsalem, grímu­klæddir til að hylja and­lit sitt, ásamt lög­mönnum sínum sem kröfð­ust þess að mál­inu yrði vísað frá.

Lög­mað­ur­inn Adi Keidar, sem starfar hjá hægri-sinn­uðu sam­tök­unum Honenu, sagði að málið væri „gallað, hlut­drægt og upp­spuni frá upp­hafi til enda“.

Fanginn fluttur til Gaza í fangaskiptum

Á mánu­dag kom fram að fang­inn, sem um ræðir í mál­inu, hefði verið sendur til Gaza í októ­ber síð­ast­liðnum í fanga­skiptum milli Ísraels og Hamas, þar sem skipst var á gíslum beggja hópa.

Í síð­ustu viku hófst saka­mála­rann­sókn á lekum mynd­bands­ins. Tomer-Yerus­halmi var send tíma­bundið í frí frá störfum meðan á rann­sókn stóð.

Á föstu­dag til­kynnti varn­ar­mála­ráð­herr­ann Israel Katz að hún myndi ekki snúa aftur til starfa. Stuttu síðar sagði hún af sér.

Í afsagn­ar­bréfi sínu tók hún ábyrgð á öllum gögnum sem hefðu verið send til fjöl­miðla frá deild hennar.

„Ég sam­þykkti að birta ákveðið efni til fjöl­miðla í þeirri við­leitni að bregð­ast við röngum áróðri gegn rétt­ar­kerfi hers­ins,“ sagði hún.

Með því vís­aði hún til full­yrð­inga hægri-sinn­aðra stjórn­mála­manna um að ásak­anir um pynt­ingar á palest­ínska fang­anum væru til­bún­ingur.

„Það er skylda okkar að rann­saka í hvert skipti sem rök­studdur grunur vaknar um ofbeldi gagn­vart fanga,“ bætti hún við.

Harðorð viðbrögð stjórnvalda

Eftir afsögn­ina for­dæmdi varn­ar­mála­ráð­herr­ann hana harð­lega:

„Sá sem dreifir blóð­sökum gegn her­mönnum IDF er ekki hæfur til að bera ein­kenn­is­bún­ing hers­ins,“ sagði Katz.

For­sæt­is­ráð­herr­ann Benjamin Net­anyahu tók í sama streng í gær og sagði að atvikið á Sde Teiman væri „mögu­lega sú alvar­leg­asta áróð­ur­sárás á Ísra­els­ríkið frá stofnun þess“.

Nokkrum klukku­stundum síðar greindu fjöl­miðlar frá því að Tomer-Yerus­halmi væri horfin, sem vakti ótta um að póli­tískt hneyksli væri að breyt­ast í harm­leik.

Eftir mikla leit fannst hún síðar örugg og heil á húfi í Herzliya.

Yfir nótt­ina greindi lög­regla frá því að tveir ein­stak­lingar hefðu verið hand­teknir vegna gruns um „leka og önnur alvar­leg sak­brot“. Í ísra­elskum fjöl­miðlum var greint frá því að um væri að ræða Tomer-Yerus­halmi og fyrr­ver­andi her­sak­sókn­ara, Matan Solomosh ofursta.

Myndbandsmálið klífur Ísrael í tvennt

Atvikið á Sde Teiman hefur orðið tákn um djúp­stæðan klofn­ing milli hægri og vinstri í Ísrael.

Á hægri vængnum er lek­inn for­dæmdur sem „rógur“ gegn hernum og jafn­vel túlk­aður sem land­ráð. Þegar her­lög­regla fór í her­stöð­ina í júlí 2024 til að yfir­heyra 11 vara­liða, brut­ust öfga­hægri­s­inn­aðir mót­mæl­endur, þar á meðal að minnsta kosti þrír þing­menn úr stjórn­ar­sam­starfi Net­anya­hus, inn á svæðið til að sýna stuðn­ing sinn.

Á vinstri vængnum er ákvörðun Tomer-Yerus­halmi um að gera mynd­bandið opin­bert lofuð sem eini tíma­punkt­ur­inn þar sem hún hafi í raun staðið undir ábyrgð emb­ættis síns.

Vinstri­s­inn­aðir líta á mynd­bandið sem óyggj­andi sönn­un­ar­gagn um þá mis­þyrm­ingu sem palest­ínskir fangar hafa sætt eftir árásir Hamas 7. októ­ber 2023.

Í októ­ber í fyrra birti rann­sókn­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna skýrslu þar sem full­yrt var að þús­undir fanga, bæði barna og full­orð­inna, hefðu orðið fyrir „kerf­is­bundnu ofbeldi, lík­am­legum og and­legum mis­þyrm­ingum og kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem jafn­gildir stríðs­glæpum og glæpum gegn mann­kyn­inu“.

Ísra­els­stjórn hafn­aði þessum ásök­unum alfarið og sagð­ist „fylgja alþjóða­lögum í einu og öllu“ og hafa „rann­sakað hvert ein­asta til­vik vand­lega“.

Hér má sjá brot úr hinu umtal­aða mynd­bandi í umfjöllun The Guardian en við­kvæmir eru varaðir ein­dregið við áhorfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta