Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trump sagður hafa sofnað á vandræðalegu augnabliki

„Er hann að æfa svefn og öndun? Þetta er ótrú­lega fyndið.“

Trump sagður hafa sofnað á vandræðalegu augnabliki
Donald Trump Frétta­mynd árs­ins? Mynd: ANDREW CABALLERO-REYNOLDS / AFP

Eins og fram hefur komið í fréttum leið yfir gest í Hvíta hús­inu á meðan Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, stóð fyrir kynn­ingu á ódýr­ari megr­un­ar­lyfjum í Banda­ríkj­unum. Sem betur fer gripu tveir aðrir gestir mann­inn áður en hann lenti á gólf­inu, og síðar sagði Trump að mað­ur­inn væri „í fínu lagi“.

Það var þó Trump sjálfur sem stal sen­unni sam­kvæmt fjöl­miðlum erlendis, bæði vegna skorti á við­brögðum og að hann hefði sofnað í miðri ræðu Dr. Mehmet Oz. Á net­inu birt­ist sem sagt mynd­skeið þar sem svo virð­ist sem Trump sé steinsof­andi á sama tíma og Dr. Mehmet Oz, sem var að kynna lyfin, sagði: „Fólk getur sofið aftur.

Einn áhorf­andi skrif­aði: „Er hann að æfa svefn og öndun? Þetta er ótrú­lega fyndið.“

Annar bætti við: „Hann lítur út fyrir að vera alveg sof­andi. Geturðu ímyndað þér hvað repúblikanar myndu segja ef Joe Biden gerði þetta á blaða­manna­fundi?“

Stuðn­ings­menn Trump svör­uðu hins vegar fullum fetum: „Ég þekki mann sem er bara að hvíla augun þegar ég sé ein­hvern. Hann er að hlusta, ég lofa þér því.“

Annar sagði: „Hann er bara búinn á því eftir að hafa unnið 20 klukku­stundir á dag fyrir banda­ríska þjóð­ina.“

Dr. Oz tal­aði einnig um kosti þess að skrifa undir samn­ing um megr­un­ar­lyf og sagði: „Þeir geta andað betur þegar þeir fara að sofa. Fólk sem finnur ekki fyrir sárs­auka í hnjám, fólk sem fær ekki hjarta­á­fall, nýrna­bilun, heila­bilun. Allt sem við vitum að teng­ist offitu og meira til.“

Upp­lýs­inga­full­trúi Hvíta húss­ins, Karoline Leavitt, sagði í yfir­lýs­ingu að mað­ur­inn sem missti með­vit­und kæmi frá einu af fyr­ir­tækj­unum sem tóku þátt í samn­ingnum. Hún sagði

„Heil­brigðisteymi Hvíta húss­ins brást fljótt við og mað­ur­inn er í lagi.“ Þegar blaða­mönnum var síðar hleypt inn aftur sagði Trump að mað­ur­inn væri „Í fínu lagi.“

Trump hefur nýverið brugð­ist við orðrómi um heilsu sína og upp­lýst að hann hafi fengið „full­komna“ seg­u­l­ómun (MRI) í síð­ustu sjúkra­hús­heim­sókn. Hinn 79 ára for­seti sagði blaða­mönnum um borð í Air Force One að hann hefði fengið ómun­ina á Walter Reed National Military Medical Center í Bethesda, Maryland, en útskýrði ekki hvers vegna.

Sjúkra­húsið hefur löngum verið valið til að fram­kvæma lækn­is­skoð­anir og með­ferðir fyrir banda­ríska for­seta. Trump, sem mun verða elsti for­seti í sögu Banda­ríkj­anna ef hann lýkur kjör­tíma­bil­inu, hefur verið undir auk­inni athygli síð­ustu mán­uði eftir að fólk tók eftir óvenju­legum mar­blettum á bak­hönd hans.

Í júlí stað­festi Hvíta húsið að Trump hefði verið skoð­aður vegna bólgu í fótum og að hann hafi greinst með langvar­andi blá­æða­bilun.

Í svar við spurn­ingu um hvort hann hefði heim­sótt sjúkra­húsið um borð í Air Force One, sagði hann

„Já, ég fór. Ég fékk seg­u­l­ómun. Hún var full­komin.“

Hér má sjá mynd­skeiðið þar sem Trump sefur. Já eða hvílir augun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta