Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Barnabarn JFK greindist með ólæknandi bráðahvítblæði

„Ég trúði ekki, gat ekki trúað, að þau væru að tala um mig“

Barnabarn JFK greindist með ólæknandi bráðahvítblæði
Tatiana Schlossberg Tatiana ver nú öllum stundum með börnum sínum Mynd: AMBER DE VOS / GETTY IMAGES VIA AFP

Tatiana Schlossberg, 35 ára dóttir Caroline Kennedy og Edwin Schlossberg, og barna­barn John F. Kennedy, hefur opin­berað að hún sé með bráða­hvít­blæði (acute myeloid leu­kemia), sjald­gæft og alvar­legt blóð­krabba­mein, en læknar töldu hana eiga um ár eftir ólifað við grein­ingu.

Í grein sem hún skrif­aði í The New Yorker í dag lýsir hún því hvernig hún fékk grein­ing­una nokkrum klukku­stundum eftir að hún hafði fætt sitt annað barn í maí 2024. Þá kom í ljós að fjöldi hvítra blóð­korna hennar var óeðli­lega hár.

„Þetta gæti tengst með­göngu og fæð­ingu, sagði lækn­ir­inn, eða það gæti verið hvít­blæði,“ rifjar hún upp. „‘Þetta er ekki hvít­blæði,’ sagði ég við George. ‘Hvað eru þau að tala um?’“

Eftir grein­ing­una var henni tjáð að hún þyrfti mán­uði af lyfja­með­ferð og bein­merg­s­skipti. Hún segir erfitt að skilja hversu skyndi­lega lífið breytt­ist.

„Ég trúði ekki, gat ekki trúað, að þau væru að tala um mig,“ segir hún. „Daginn áður hafði ég synt kíló­meter í sund­laug, níu mán­aða ólétt. Ég var ekki veik. Mér leið ekki eins og ég væri veik. Ég var í raun ein­heil­brigð­asta mann­eskja sem ég þekkti.“

„Ég átti son sem ég elskaði meira en allt og nýfætt barn sem ég þurfti að hugsa um,“ heldur hún áfram. „Þetta gat ekki verið mitt líf.“

Í jan­úar hóf hún þátt­töku í klínískri rann­sókn með CAR-T-cell með­ferð, ónæm­is­með­ferð sem beitt er við ákveðnum teg­undum blóð­krabba­meins. Eftir nokkrar lotur fékk hún þær fréttir frá læknum að hún ætti lík­lega eitt ár eftir ólifað.

Á meðan á með­ferð­inni hefur staðið segir hún eig­in­mann sinn hafa staðið við hlið hennar í einu og öllu, og fjöl­skyldan einnig, þar á meðal systk­ini hennar Jack og Rose.

„For­eldrar mínir og bróðir og systir hafa séð um börnin mín og setið inni á spít­ala­stofum með mér næstum á hverjum degi síð­asta eina og hálfa árið,“ skrifar hún. „Þau hafa haldið í hönd­ina á mér af óbilandi styrk á meðan ég hef þjáðst, reynt að sýna ekki sína sorg til að hlífa mér við henni. Það hefur verið stór gjöf, þó ég finni sárs­auka þeirra á hverjum degi.“

Tatiana opnar einnig á eigin til­finn­ingar gagn­vart örlögum sínum.

„Alla mína ævi hef ég reynt að vera góð, góður náms­maður, góð systir og góð dóttir og að vernda mömmu mína, aldrei gera hana sorg­mædda eða reiða,“ skrifar hún. „Nú hef ég bætt nýrri sorg við líf hennar og fjöl­skyldu okkar, og ég get ekk­ert gert til að stöðva það.“

Í dag ein­blínir hún á það sem hún getur stjórnað, að verja sem mestum tíma með börn­unum sínum.

„Að mestu leyti reyni ég að lifa og vera með þeim núna,“ segir hún. „En að vera í augna­blik­inu er erf­ið­ara en það hljómar, svo ég leyfi minn­ing­unum að koma og fara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta