Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Takmarka upplýsinga­miðlun til Bandaríkjanna vegna aðgerða í Venesúela

Takmarka upplýsinga­miðlun til Bandaríkjanna vegna aðgerða í Venesúela
Banda­rískt her­skip Banda­rískt her­skip á leið á æfingu nærri Venes­ú­ela Mynd: MARTIN BERNETTI / AFP

Banda­rískar hern­að­ar­að­gerðir gegn meintum eit­ur­lyfja­sölum í Venes­ú­ela, ásamt hót­unum Donalds Trump um mögu­lega inn­rás til að steypa Nicolás Maduro for­seta af stóli, hafa vakið mik­inn ugg hjá Evr­ópu­ríkjum sem eiga yfir­ráða­svæði á Karí­ba­hafi, að mati sér­fræð­inga.

Áhyggjur Frakk­lands, Hollands og Bret­lands eru slíkar að þau hafa hafið tak­mörkun á upp­lýs­inga- og njósn­a­miðlun til Banda­ríkj­anna um Karí­ba­hafið af ótta við að upp­lýs­ing­arnar verði not­aðar til árása sem teld­ust ólög­legar sam­kvæmt lögum þeirra ríkja, sam­kvæmt emb­ætt­is­mönnum og heim­ild­ar­mönnum sem AFP ræddi við.

Bretland á nokkur smærri erlend svæði frá nýlendu­tím­anum, en eyj­arnar Martiník og Gvadelúpeyjar sem og Franska Gvæjana á meg­in­landi Suður-Ameríku eru form­legt hluti af Frakk­landi. Holland er í land­fræði­lega við­kvæm­astri stöðu, en eyj­arnar Aruba, Bonaire og Curacao, svo­kall­aðar ABC-eyjar, eru allar hluti hol­lenska kon­ungs­rík­is­ins og liggja rétt undan ströndum Venes­ú­ela.

Venes­ú­ela hefur sakað Washington um að ætla sér stjórn­ar­skipti í Caracas með síauknum hern­að­ar­við­bún­aði, þar á meðal með flug­véla­móð­ur­skipi, her­skipum og nokkrum hul­iðs­sprengju­flug­vélum.

Banda­ríkin saka Maduro um að stýra „hryðju­verka­sam­tökum á vegum eit­ur­lyfjakar­tels“, ásökun sem hann neitar. Frá sept­em­ber hafa banda­rískir her­menn drepið að minnsta kosti 83 manns í loft­árásum á báta sem þeir segja flytja eit­ur­lyf á alþjóð­legu haf­svæði, sam­kvæmt sam­an­tekt AFP úr opin­berum gögnum.

Banda­ríkin hafa hins vegar ekki birt neinar sann­anir fyrir því að fólkið sem varð fyrir árás­unum á Karí­ba­hafi og í aust­ur­hluta Kyrra­hafs hafi í raun verið eit­ur­lyfja­salar.

Trump sagði nýverið að dagar Maduro væru taldir og neit­aði að úti­loka hern­að­ar­að­gerðir á landi, en bætti við að hann væri opinn fyrir samn­inga­við­ræðum við leið­tog­ann.

„Hol­lend­ingar hafa áhyggjur af ABC-eyj­unum sem eru um 50 kíló­metra frá ströndum Venes­ú­ela,“ sagði franskur hern­að­ar­emb­ætt­is­maður sem ekki vildi láta nafns síns getið.

Þær „væru á fremstu víg­línu“ ef til átaka kæmi, sagði evr­ópskur hern­að­ar­ráð­gjafi, sem einnig tal­aði nafn­laus.

Hætta að miðla rekstrartengdum upplýsingum

Í ljósi tak­mark­aðra val­kosta gagn­vart afdrátt­ar­lausri stefnu Trump, hafa þessi þrjú ríki ákveðið að hætta að láta Banda­ríkja­menn hafa ákveðnar upp­lýs­ingar, sögðu fjöl­margar heim­ildir.

„Við erum sér­stak­lega á varð­bergi gagn­vart póli­tískri mis­notkun þjón­ust­unnar og brotum á mann­rétt­indum,“ sagði Erik Akerboom, yfir­maður leyni- og örygg­is­þjón­ustu Hollands, við De Volkskr­ant.

„Engin Evr­ópu­þjóð, þar með talin Frakk­land, mun senda Banda­ríkja­mönnum rekstr­ar­tengdar upp­lýs­ingar í núver­andi ástandi ef þær gætu verið not­aðar sem grund­völlur fyrir árás á skip,“ sagði Dimitri Zoulas, yfir­maður OFAST, frönsku eit­ur­lyfja­deild­ar­innar, við Radio Caraibes (RCI).

Þetta hefur ekki verið stað­fest opin­ber­lega af frönskum yfir­völdum, en örygg­is­heim­ild­ar­maður sagði: „Það er 100 pró­sent ljóst að Evr­ópu­menn senda Banda­ríkj­unum ekki neinar upp­lýs­ingar sem geta leitt til árása.“

Í Bret­landi greindi The Times frá því að Richard Hermer, rík­is­lög­fræð­ingur og helsti laga­legi ráð­gjafi stjórn­valda, hafi hvatt ráð­herra til að stöðva upp­lýs­inga­miðlun af ótta við að Trump gæti „myrt“ eit­ur­lyfja­sala í Karí­ba­hafi.

Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Marco Rubio, vís­aði þó slíkum fréttum á bug og sagði þær „fals­fréttir“.

Telja ekki að sambandið raskist

Richard Dearlove, fyrr­ver­andi yfir­maður bresku leyni­þjón­ust­unnar MI6, sagði við AFP að staðan væri ekki for­dæma­laus og að hún hefði áður komið upp til að koma í veg fyrir að Evr­ópu­ríki yrðu sam­sek í aðgerðum sem væru lög­legar í Banda­ríkj­unum en ólög­legar í Evrópu.

„Þetta hefur ekki áhrif á heild­ar­miðlun upp­lýs­inga. Þetta er stað­bundið og sér­tækt mál. Og þetta hefur gerst áður að mínu viti,“ sagði hann.

Evr­ópu­ríkin eru með­vituð um áhætt­una við að ögra stjórn Trump.

„Áður en við segjum nei við Banda­ríkin og látum það ber­ast út, verðum við að hugsa okkur tvisvar um, því þau láta okkur hafa mikla vit­neskju,“ sagði heim­ild­ar­maður úr evr­ópskri njósn­a­þjón­ustu.

Að sögn fyrr­ver­andi banda­rísks her­for­ingja sem starf­aði að eit­ur­lyfja­málum á svæð­inu, er fram­lag Evr­ópu­ríkja til upp­lýs­inga­öfl­unar Banda­ríkja­manna þó mjög tak­markað.

Samkvæmt frönskum heim­ild­ar­manni hefur þessi var­færni Evr­ópu­ríkj­anna aðal­lega „fræði­legar afleið­ingar“, því Banda­ríkja­menn hafi ein­fald­lega ekki þörf fyrir upp­lýs­ing­arnar.

Dearlove lagði áherslu á að þar sem málið sé „í raun­inni laga­legt“ þá muni það ekki hafa áhrif á stærra sam­hengi upp­lýs­inga­öfl­unar yfir Atl­ants­hafið.

„CIA skilur þetta mjög vel. Þetta er vel þekkt við­fangs­efni sem stundum veldur vand­ræðum, en það bendir ekki til grund­vall­ar­breyt­ingar á sam­skiptum í grein­ing­ar­starfi,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife