Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Brýn jafnréttismál er varða karlmenn í samfélaginu eru virt að vettugi“

Huginn Þór Grét­ars­son gagn­rýnir jafn­rétt­is­kerfið á Íslandi

„Brýn jafnréttismál er varða karlmenn í samfélaginu eru virt að vettugi“
Jafn­rétt­is­stofa er á Akureyri Huginn Þór er allt annað en ánægður með Jafn­rétt­is­stofu Mynd: Wikipedia/Skapti Hallgrímsson

Huginn Þór Grét­ars­son, rit­höf­undur og útgef­andi, skrifar að tími sé kom­inn til að bregð­ast við því mis­rétti sem hann segir að karlar verði fyrir í íslensku jafn­rétt­is­kerfi. Hann hvetur almenn­ing til að beita þrýst­ingi á stjórn­völd og krefj­ast jafn­ræðis.

Hann bendir á í pistli sem birt­ist á Vísi í dag, að í dag sé hald­inn fundur hins nýja jafn­rétt­is­ráðs, sem hefur tekið við af eldra ráð­inu. Í því fyrra hafi lög um kynja­hlut­föll í nefndum verið brotin árum saman, þar sem nær ein­göngu konur sátu í ráð­inu og jafn­vel for­mað­ur­inn var skip­aður úr sama hópi. Þrátt fyrir kvart­anir hafi Jafn­rétt­is­stofa, að hans sögn, ekki brugð­ist við.

Að sögn Hugins versn­aði kynja­hall­inn þegar nýtt ráð var stofnað, þar sem félaga­sam­tök á sviði jafn­réttis fengu sæti, en þar eru, að hans mati, nær ein­göngu kvenna­sam­tök. Hann segir að karla­sam­tök hafi ekki fengið sam­bæri­legan fjár­stuðn­ing og því ekki getað sinnt eigin hags­muna­gæslu.

„Lengi hafa stjórn­völd mis­munað stór­lega kynj­unum þegar kemur að stuðn­ingi félaga­sam­taka sem vinna að jafn­rétt­is­málum. Hreyf­ingar sem gæta hags­muna kvenna fá umtals­verða fjár­muni meðan sam­bæri­leg félög er reyna að tala máli karla og verja þeirra hags­muni fá litla sem enga fjár­muni,“ skrifar Huginn í pistl­inum.

Hann gagn­rýnir að á fundum ráðs­ins sé umræðan ein­hliða og snú­ist nán­ast ein­göngu um mál­efni kvenna og hinsegin fólks, en mál sem varða karla séu hunsuð.

„Gengd­ar­laust mis­rétti gagn­vart kynj­unum af hálfu stjórn­valda er við­haft, og brýn jafn­rétt­is­mál er varða karl­menn í sam­fé­lag­inu eru virt að vettugi.“

Hann seg­ist hafa orðið var við að þegar hann reyndi að tala fyrir mál­efnum karla hafi starfs­menn reynt að þagga niður í honum og ráðu­neytið ekki brugð­ist við kvört­unum.

„Á fundum mínum hjá þessu svo­kall­aða jafn­rétt­is­ráði hefur mér blöskrað yfir ein­hliða áróðr­inum, ég reynt að ljá máls á vanda karl­manna í umræðu­hópum en varð­hundar kven­rétt­inda hafa þá tekið það upp hjá sér að þagga niður í mér í miðju inn­leggi. Kvartaði ég undan þessu hátta­lagi starfs­manns Jafn­rétt­is­stofu án þess að fá nokkur við­brögð frá ráðu­neyti. Full­trúar karl­manna í jafn­rétt­is­ráð­inu fyrir breyt­ingar hafa einnig slæma reynslu af þessum þykjustu­vett­vangi jafn­rétt­is­mála. Allt starfið er á for­sendum kvenna og fjallar fyrst og fremst um rétt­indi þeirra.“

Huginn beinir einnig gagn­rýni að Jafn­rétt­is­stofu og segir hana vinna fyrst og fremst að hags­munum kvenna, á meðan algert tóm­læti ríki gagn­vart málum karla, til dæmis innan rétt­ar­kerfis, mennta­kerfis og í þjón­ustu við þolendur ofbeldis. Hann segir stofn­un­ina hafa misst trú­verð­ug­leika og þurfi gagn­gera end­ur­skoðun.

Hann gagn­rýnir jafn­framt Jafn­rétt­is­sjóð, sem hann segir nán­ast ein­göngu styrkja verk­efni á sviði kvenna. Þau fáu verk­efni sem snúa að karl­mennsku og hafa fengið styrk séu jafn­vel þau sem mála karl­menn í nei­kvæðu ljósi, en verk­efni sem raun­veru­lega styðja við karla fái ekki braut­ar­gengi.

„Samtök sem berj­ast fyrir jafn­rétti fyrir drengi og karla hafa ítrekað sótt um styrk í þennan sjóð með brýn verk­efni undir. Öllu hefur verið hafnað. Þegar litið er á hvaða verk­efni eru studd af þessum svo­kall­aða „jafn­rétt­is­sjóði“ kemur í ljós að sjóð­ur­inn ber ekki nafn með rentu, heldur er þetta kven­rétt­inda­sjóður, sem styður mál­efni kvenna.“

Huginn veltir því fyrir sér hvernig sam­fé­lagið myndi bregð­ast við ef jafn­rétt­is­kerfið sner­ist ein­göngu um karla, og segir að slíkt ástand yrði aldrei liðið. Þrátt fyrir það sé þetta veru­leik­inn fyrir karla í dag.

Að hans mati er Ísland langt frá því að vera jafn­réttispara­dís. Hann segir að á sviðum þar sem hallar á karla sé hvorki vilji né aðgerðir til að bæta stöð­una, á meðan for­gangur sé gef­inn málum kvenna, jafn­vel þótt mun­ur­inn þar sé orð­inn lít­ill. Í þetta, segir hann, bland­ist með­virkni í stjórn­sýslu og fjöl­miðlum.

Hann telur þó að breyt­ingar séu í loft­inu og að fleiri séu farnir að efast um núver­andi kerfi. Að lokum hvetur hann les­endur til að láta í sér heyra og mót­mæla því sem hann kallar kerf­is­lægt mis­rétti.

„Ég veit ekki með þig ágæti les­andi, en ég neita að sitja stund­inni lengur undir þessum lög­brotum framin af stjórn­völdum. Ég hef fengið nóg, og byrja þessa and­spyrnu gegn þessu rang­læti með því að gagn­rýna það opin­ber­lega. Við þurfum öll að mót­mæla!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi