Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karakterleikarinn Peter Greene er látinn

„Hann var góður vinur sem hefði gefið þér skyrt­una af bak­inu á sér“

Karakterleikarinn Peter Greene er látinn
Peter Greene Greene er lát­inn, aðeins sex­tugur að aldri Mynd: Rob DiCaterino/Wikipedia

Leik­ar­inn Peter Greene, sem var þekktur fyrir að leika ill­menni í kvik­myndum á borð við Pulp Fiction og The Mask, er lát­inn, sex­tugur að aldri. Greene fannst lát­inn í íbúð sinni á Man­hattan í gær og stað­festi umboðs­maður hans, Gregg Edwards, and­látið í sam­tali við Deadline. Dán­ar­or­sök liggur ekki fyrir að svo stöddu en hann hafði á árum áður glímt við heróin og kóka­ín­fíkn.

Greene fædd­ist 8. októ­ber 1965 í Montclair í New Jersey. Hann steig sín fyrstu skref í sjón­varpi í einum þætti af skamm­lífri glæpa­þátta­röð NBC, Hardball, árið 1990. Kvik­mynda­frumraun sína átti hann tveimur árum síðar í mynd­inni Laws of Gravity, þar sem hann lék á móti Edie Falco.

Ferill hans tók fljótt kipp. Árið 1993 lék Greene aðal­hlut­verk í mynd­inni Clean, Shaven, sem var sýnd á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes árið 1994. Sama ár kom hann fram í tveimur stór­myndum: hann lék ill­mennið Zed í Pulp Fiction eftir Quentin Tar­antino, sem hlaut Gullpálmann í Cannes, og aða­l­and­stæð­ing Jim Carrey, Dorian Tyrell, í The Mask.

Greene hélt áfram að vinna jafnt og þétt í kvik­myndum og sjón­varpi. Hann lék í myndum á borð við Kiss & Tell, Blue Streak, End Game og The Bounty Hunter og átti eft­ir­minni­leg hlut­verk í The Usual Suspects og Training Day. Í sjón­varpi var hann fasta­leik­ari í þátta­röð­inni The Black Donn­ellys á NBC og fór með end­ur­tekin hlut­verk í Life on Mars á ABC og Chicago P.D. á NBC. Hann kom síð­ast fram í þætti úr for­sögu­þátta­röð­inni The Continental, sem byggir á John Wick-mynd­unum.

„Hann var einn besti karakt­er­leik­ari heims,“ sagði Edwards og greindi jafn­framt frá því að Greene ætti tvö verk­efni fram undan, kvik­mynd­ina Mascots með Mickey Rourke og heim­ild­ar­mynd sem hann var að lesa inn á, From the American People: The Withdrawal of USAID, ásamt Jason Alex­ander og Kathleen Turner.

„Hann var mik­ill áhuga­maður um að varpa ljósi á þau dauðs­föll sem orðið hafa víðs vegar um heim­inn í kjöl­far þess að Banda­ríkin drógu úr starf­semi USAID,“ sagði Edwards. „Hann var góður vinur sem hefði gefið þér skyrt­una af bak­inu á sér. Hann var elsk­aður og hans verður sárt saknað.“

Í nýlegu mynd­skeiði af Peter, sem birt var á YouTbue, mátti sjá að hann var í slæmu ásig­komu­lagi af ein­hverjum ástæðum.

Peter Greene lætur eftir sig bróður og systur, sem hefur verið til­kynnt um and­látið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife