Íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur af Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot á hegningarlögum, umferðarlögum og lögreglulögum.
Hann var ákærður fyrir að hafa miðvikudaginn 3. janúar 2024 ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja, án þess að hlýða fyrirmælum lögreglu, sem reyndi að stöðva bifreiðina með forgangsakstursljósum lögreglubifreiðar, svo að eftirför lögreglu hófst þar sem ákærði ók án nægjanlegrar tillitssemi og varúðar og yfir óbrotnar miðlínur og ógætilega á milli bifreiða án þess að gefa stefnumerki og án þess að miða ökuhraða við aðstæður með sérstöku tilliti til öryggis annarra og yfir leyfilegum hámarkshraða í þéttbýli.
Maðurinn játaði brot sín en hann hefur áður gerst sekur um refsiverð athæfi.
Hann var dæmdur í 4 mánaða fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða 540.000 króna fésekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu, en sæti ella fangelsi í 30 daga. Hann var sömuleiðis sviptur ökurétti í fjögur ár frá 15. maí 2027 en hafði verið sviptur ökurétti til þess dags áður.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir