Tveir karlar og ein kona voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald, eða til 2. janúar, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á auðgunarbrotum en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Þremenningarnir, erlendir ríkisborgarar á þrítugs- og fertugsaldri, voru handteknir í fyrradag vegna ætlaðra brota í Reykjavík sem beindust gegn öldruðu fólki og varðar háar fjárhæðir.
Þessir erlendu ríkisborgarar komu til Íslands í byrjun vikunnar, en talið er að tilgangur ferðarinnar hafi verið að stunda brotastarfsemi hérlendis.































Athugasemdir