Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rússneskir embættismenn óttast netlokanir Kremlar

„Þeir munu missa tökin á fólk­inu“

Rússneskir embættismenn óttast netlokanir Kremlar
Kreml Net­lok­anir hafa haft mikil áhrif á dag­legt líf Rússa Mynd: ALEXANDER NEMENOV / AFP

Rúss­neskir emb­ætt­is­menn eru farrnir að kvarta yfir far­síma­nets­lok­unum og lok­unum á spjall­for­ritum í land­inu. Trufl­an­irnar hafa ekki ein­ungis áhrif á dag­leg störf emb­ætt­is­manna, þær slíta einnig á boð­leiðir sem svæð­is­stjórnir treysta á til að hafa sam­skipti sín á milli og fylgj­ast með almenn­ings­á­lit­inu.

Á sama tíma og Kreml neyðir íbúa yfir á rík­is­for­ritið Max og gefur í skyn að heild­ar­lokun á Telegram gæti verið á næsta leyti, er upp­lýs­inga­kerfið sem opin­berir starfs­menn reiða sig á farið að gefa sig. Sér­fræð­ingur Meduza, Andrey Pertsev, ræddi við emb­ætt­is­menn og póli­tíska ráð­gjafa um hvernig upp­lýs­inga­læs­ing stjórn­valda er farin að snú­ast gegn eigin stjórn­kerfi.

„Það er ekki hægt að koma skilaboðum í gegn“

Seint í nóv­em­ber var far­síma­net­inu lokað í Belgorod-hér­aði í fyrsta sinn. Læsingin kom jafn­vel stjórn hér­aðs­ins í opna skjöldu. Hér­aðs­stjór­inn, Vyacheslav Gladkov, birti á Telegram:

„Far­síma­net hefur verið að hluta til lokað. Þetta var auð­vitað gert í örygg­is­skyni. En á sama tíma truflar þetta hluta af þeim sam­skipta­innviðum sem við treystum á hér í Belgorod-hér­að­inu, sér­stak­lega þegar kemur að við­vör­unum og örygg­is­málum.“

Gladkov var eini emb­ætt­is­mað­ur­inn sem gagn­rýndi lok­un­ina, þó var­lega. Síðan þá hafa margra daga far­síma­nets­trufl­anir riðið yfir Sankti Pét­urs­borg, Smolensk, Ark­hang­elsk og fleiri svæði í Rúss­landi.

Samkvæmt emb­ætt­is­mönnum í Mið-Rúss­landi taka örygg­is­stofn­anir svæð­anna ákvörðun um net­lok­anir að mestu leyti sjálfar, „án sam­ráðs og oft án þess að til­kynna það fyr­ir­fram“ til svæð­is­stjórna. Þetta var stað­fest af tveimur öðrum emb­ætt­is­mönnum.

Reglu­bundnar lok­anir hófust í maí 2025, á sama tíma og alrík­is­stjórnin tók að þrýsta á Rússa að hætta að nota erlend spjall­for­rit og færa sig yfir á hið rík­is­rekna Max. Skömmu síðar voru ýmis nauð­syn­leg dag­leg þjón­usta færð yfir á Max til að neyða almenn­ing á spjall­for­ritið.

Max er á svoköll­uðum „hvít­lista“, sem þýðir að for­ritið á að halda áfram að virka jafn­vel þegar far­síma­net­inu er lokað. Á hvít­list­anum eru einnig rík­is­þjón­ustu­vef­ur­inn Gos­uslugi, helstu fjöl­miðlar sem eru hlið­hollir stjórn­völdum, stórar net­versl­anir og jafn­vel skyndi­bita­keðjan Vkusno i Tochka.

Í lok nóv­em­ber til­kynnti Roskomnadzor að WhatsApp yrði alfarið lokað í Rúss­landi (sím­töl í WhatsApp og Telegram höfðu þegar verið gerð óvirk í ágúst). Þar að auki hefur Roskomnadzor haldið áfram að loka öðrum for­ritum sem Rússar reyna að nota til að halda sam­bandi, þar á meðal Zangi og FaceTime.

En þessar lok­anir, sem gera stjórn­inni kleift að tak­marka aðgengi að óháðum upp­lýs­ingum mun betur, eru farnar að valda veru­legum höf­uð­verk fyrir svæð­is­bundin stjórn­kerfi. Emb­ætt­is­menn og póli­tískir ráð­gjafar sögðu Meduza að lok­an­irnar kyntu undir reiði almenn­ings og trufl­uðu vinnu þeirra. Og þeir ótt­ast að Kreml loki að lokum líka fyrir Telegram.

Emb­ætt­is­maður í Mið-Rúss­landi sagði að Gladkov hefði ein­fald­lega sagt það sem margir hugs­uðu:

„Hann er einn af mönnum Sergey Kiri­yenko [hátt­settur innan Kremlar], þannig að hann kemst upp með meira. Og svo er hann nálægt víg­lín­unni, það hefur lík­lega gert hann djarfari.“

Emb­ætt­is­menn sögðu að reiði almenn­ings væri stærsta afleið­ing net­lokan­anna.

„Þetta ruglar fólk í rím­inu,“ sagði einn. „Að hætta að nota WhatsApp, truflar sjálf­sagt ekki marga, en þegar fólk getur ekki borgað með korti, ekki pantað leigu­bíl, ekki verslað á net­inu … þá bitnar það beint á dag­legu lífi fólks.“

Þeir bentu einnig á að fjöl­margir Rússar treysti alfarið á far­síma­net, og í sumum afskekktum þorpum er engin önnur netteng­ing.

„Þeir enda bara án nets, heima og úti. Þá detta niður öll greiðslu­kerfi og krakkar kom­ast ekki í skóla­störf.“

Stjórn­ar­starfs­menn upp­lifa sömu vanda­mál:

„Fólk er ekki alltaf á skrif­stofu með Wi-Fi. Það er oft úti í vinnu. Þá kemst ekki neitt í gegn,“ sagði póli­tískur ráð­gjafi. „Ferlar brotna niður.“

Einn emb­ætt­is­maður sagði að skila­boð væru stundum seinkað um nokkrar klukku­stundir, sem hefði tafið ákvörð­un­ar­töku. Allt fari úr skorðum.

„Þeir munu missa tökin á fólkinu“

Gladkov sagði að trufl­anir á far­síma­neti lam­aði við­vör­un­ar­kerfi hér­aðs­ins. Emb­ætt­is­menn sögðu að þetta ætti ekki aðeins við um við­var­anir um dróna­árásir, heldur öll sam­skipti við íbúa, og jafn­vel dag­legt ímynd­ar­sköp­un­ar­starf hér­aðs­stjóra og bæj­ar­stjórn­enda.

Flestir rúss­neskir svæð­is­stjórar og borg­ar­stjórar reka nú Telegram-rásir. Þær eru not­aðar til að „mæla hita­stigið“ með athuga­semdum og við­brögðum íbúa. En með net­lok­unum er hætta á að það kerfi hrynji, jafn­vel þó margir hafi opnað rásir á Max.

Emb­ætt­is­maður spurði:

„Fólk sem fylgdi okkur á Telegram, það bara mun ekki fylgja okkur yfir á Max. Hvernig eigum við þá að tala við það?“

Póli­tískir ráð­gjafar sögðu að Telegram væri lyk­il­verk­færi til að móta narra­tív, stýra umræðu og „koma jákvæðum fréttum á fram­færi“. En rík­is­rekið for­rit eins og Max verði ein­fald­lega talið „eins og annað rík­is­sjón­varp“ og fólk muni tor­tryggja allar upp­lýs­ingar þar inni.

„Ef við flytjum allt yfir á Max, missum við tökin á fólk­inu,“ sagði einn þeirra.

Sumir ráð­gjafar sögðu að þeim hefði verið sagt fyrir 6–8 vikum að „allt verði lokað, þar með talið Telegram“ og að þeir ættu að end­urstilla verk­færi sín fyrir þing­kosn­ing­arnar 2026. En engin end­an­leg ákvörðun hefði verið tekin.

Þeir þóttu sam­mála um eft­ir­far­andi:

„Til­raunir til algerrar upp­lýs­inga­stýr­ingar virka illa. Fólk finnur alltaf nýjar leiðir.“

Tveir emb­ætt­is­menn sögðu að jafn­vel vef­síður á hvít­list­anum hrynji stundum í lok­unum, sem lama dag­legt líf.

„Þeir ýttu öllum inn í staf­ræna þjón­ustu, og núna virkar þetta helm­ing­inn af tím­anum ekki. Þeir brutu fólk niður, og síðan bilar kerfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife