Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Karl Ágúst minntist föður síns á jóladag

„Í mínum augum var hann óhemju ríkur, en samt ekki fjáður, heldur ham­ingju­ríkur, skiln­ings­ríkur, hug­mynda­ríkur og kær­leiks­ríkur“

Karl Ágúst minntist föður síns á jóladag
Karl Ágúst Úlfsson Leik­ar­inn minn­ist föður síns á fal­legan hátt Mynd: Þjóðleikhúsið

Leik­ar­inn og rit­höf­und­ur­inn Karl Ágúst Úlfsson birti á jóla­dag ein­læga og per­sónu­lega færslu þar sem hann minn­ist föður síns, Úlfs Þórs Ragn­ars­sonar, sem lést fyrir fjórum árum.

Í færsl­unni segir Karl Ágúst að jólin færi sér jafnt gleði sem sorg. Hann birtir gamla ljós­mynd af föður sínum sem tekin var í Sómalíu, þar sem Úlfur starf­aði sem verk­stæð­is­for­maður í Hargeysa og sá um við­hald bíla­flota Rauða kross­ins á svæð­inu.

Karl Ágúst segir föður sinn ung­legan á mynd­inni, þótt hann hafi þá þegar verið orð­inn afi. Hann giskar á að á mynd­inni hafi Úlfur annað hvort verið að rita ást­ar­bréf til móður hans eða skrifa í dag­bók­ina sem hann hélt af mik­illi nákvæmni á meðan dvöl hans í Afríku stóð.

Úlfur hafði orðið 82 ára á aðfanga­dag, dag­inn áður en hann lést, og segir Karl Ágúst að jóla­dagur hafi síðan þá alltaf borið með sér „glaðan sorg­ar­kökk í hálsi og döpur gleði­tár í augum.“

Hann lýsir föð­urnum sem ham­ingju­ríkum og skap­góðum manni:

„Í mínum augum var hann óhemju ríkur, en samt ekki fjáður, heldur ham­ingju­ríkur, skiln­ings­ríkur, hug­mynda­ríkur og kær­leiks­ríkur,“ skrifar hann og bætir við að hann sakni hans og þakki fyrir að hafa alltaf getað leitað til hans.

„Jólin færa okkur oft bæði gleði og sorg.

Þetta er hann pabbi minn, Úlfur Þór Ragn­ars­son. Myndin var tekin af honum í Sómalíu þegar hann var verk­stæð­is­for­maður í Hargeysa og sá um við­hald á bíla­flota Rauða kross­ins á því svæði. Þarna er hann lík­lega að skrifa mömmu ást­ar­bréf - eitt af þeim fjöl­mörgu sem hún geymdi í nátt­borðs­skúff­unni sinni fram á hinsta dag. Nema hann hafi verið að skrifa þá nákvæmu og stór­merki­legu dag­bók sem hann hélt allan tím­ann sem hann dvald­ist í Afríku. Hann lítur út eins og ung­lingur þar sem hann situr í skýl­inu sem hann gisti í á þessum tíma - samt var hann þegar orð­inn afi.

Í dag eru fjögur ár síðan hann kvaddi það við­burða­ríka líf sem hanni átti. Daginn áður, á aðfanga­dag, hafði hann orðið átta­tíu og tveggja ára.

Nú bæði klökkna ég og gleðst á jóla­dag allar götur síðan. Sakna hans sann­ar­lega og allra þeirra góðu og glað­væru stunda sem við áttum saman. Þakka líka inni­lega fyrir að hafa átt hann að og mátt leita til hans enda­laust. Í mínum augum var hann óhemju ríkur, en samt ekki fjáður, heldur ham­ingju­ríkur, skiln­ings­ríkur, hug­mynda­ríkur og kær­leiks­ríkur.

Já, ég hugsa til þín í dag, elsku pabbi minn, með glaðan sorg­ar­kökk í hálsi og döpur gleði­tár í augum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá