Maður ók sendiferðabíl beint í gegnum hóp mótmælenda í Los Angeles á sunnudaginn og náðist atburðurinn og eftirmálar hans á myndband.
Í myndböndum sem voru sett á samfélagsmiðla má heyra fólk sem mótmælti stjórninni í Íran öskra þegar stóra ökutækið ryðst beint í gegnum hópinn, að því er virðist án nokkurs tillits til með þeirra sem urðu á vegi þess.
Í öðru myndskeiði má sjá lögreglumenn draga manninn út úr sendibílnum
Heimildir innan lögreglu segja fjölmiðlum að enginn hafi slasast en ökumaðurinn er ennþá í haldi.































Athugasemdir