Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Umræða án virðingar er ekki frjáls umræða“

Steinunn Ólína talar um „sið­fræð­ings­vanda­mál“

„Umræða án virðingar er ekki frjáls umræða“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona skrifar hnit­mið­aðan pistil í Vísi þar sem hún fjallar um ábyrgð fjöl­miðla, vald almenn­ings og þá byrði sem konur hafa í gegnum tíð­ina borið þegar kemur að því að takast á við það sem hún kallar „sið­fræð­ings­vanda­mál“. Hún leggur áherslu á að raun­veru­leg ábyrgð birt­ist ekki í umræðu einni saman heldur í gjörðum, bæði ein­stak­linga, fjöl­miðla og sam­fé­lags­ins í heild.

„Ábyrgð liggur EKKI í orða­skaki heldur í gjörðum. Sama gildir um vald. Á end­anum ræður almenn­ingur,“ skrifar Steinunn í upp­hafi pistils síns.

Hún beinir sjónum sínum sér­stak­lega að fjöl­miðlum og þeirri stöðu sem þeir hafa í opin­berri umræðu. Að hennar mati er birt­ing niðr­andi ummæla ekki til­viljun heldur með­vitað val, sem beri með sér afleið­ingar.

„Fjöl­miðlar lifa á athygli, trausti og stuðn­ingi les­enda og aug­lýsenda. Þegar mið­ill birtir eða ver niðr­andi ummæli um konur eða karla, þá er það með­vitað val, og val hefur afleið­ingar. Þegar aðrir fjöl­miðlar end­ur­birta eða verja sömu niðr­andi ummæli gildir það sama,“ skrifar hún.

Steinunn bendir á að almenn­ingur hafi raun­veru­legt vald til að móta fjöl­miðlaum­hverfið með því að velja hvað hann styður og hvað ekki. Hún leggur áherslu á að slíkar ákvarð­anir snú­ist ekki um rit­skoðun heldur ábyrgð.

„Enginn er skuld­bund­inn til að styðja þá fjöl­miðla sem gera lít­ils­virð­ingu að afþr­ey­ingu. Lesendur geta dregið mörk með því að hafna slíku efni, hætta áskriftum, beina við­skiptum sínum til ann­arra, en aug­lýsenda slíks fjöl­mið­ils og beina heldur athygli sinni og stuðn­ingi frekar að miðlum sem sýna virð­ingu og fag­mennsku.
Þetta snýst ekki um að þagga niður í fólki, heldur um að VELJA af ábyrgð hvað við styðjum,“ skrifar hún.

Í pistl­inum hafnar Steinunn þeirri hug­mynd að umræðu megi rétt­læta með vísan í tján­ing­ar­frelsi ef virð­ing skorti.

„Umræða án virð­ingar er ekki frjáls umræða, hún er merki um ábyrgð­ar­leysi. Ef við viljum betri opin­bera umræðu, þá verðum við að umb­una þeim sem standa sig betur og hafna þeim sem gera það ekki,“ segir hún.

Steinunn fjallar jafn­framt um það sem hún kallar kerf­is­bundið upp­eld­is­brest, þar sem ábyrgðin á að „leið­rétta“ hegðun karla hafi ítrekað verið lögð á herðar kvenna.

„Við ölum sið­fræð­ing­inn ekki upp með vand­læt­ingu og hneykslun einni saman. Það verk­efni átti að eiga sér stað í for­eldra­húsum, en þar virð­ist eitt­hvað hafa brugð­ist. Þegar grunn-upp­eldi skortir, lendir ábyrgðin síðar ann­ars staðar og í þessu til­felli hjá konum.“

Hún segir slíkt hvorki sann­gjarnt né eðli­legt og að þetta sé ekki vanda­mál kvenna heldur sam­fé­lags­ins alls.

„Í reynd hafa svokölluð „sið­fræð­ings­vanda­mál“ verið lögð á herðar góð­hjart­aðra og þol­in­móðra kvenna frá örófi alda… Þetta er gert í kyrr­þey, af ábyrgð og sam­visku, en án þess að ábyrgðin sé þeirra að bera.
Það er hvorki sann­gjarnt né sjálf­sagt,“ skrifar hún.

Að mati Stein­unnar bera fjöl­miðlar sér­staka ábyrgð í þessu sam­hengi, þar sem þeir ákveði hverjir fá rými og hverjir ekki.

„Þetta er afleið­ing upp­eld­is­brests, og ábyrgð sam­fé­lags­ins að bregð­ast við honum. Þar bera fjöl­miðlar sér­staka skyldu, því þeir velja hverjir fá skjá­inn og hverjir vaða þar á súðum,“ segir hún.

Í lok pistils­ins beinir Steinunn skýru ákalli til karla á Íslandi og hvetur þá til að velta eigin afstöðu fyrir sér.

„Allir karl­menn á Íslandi ættu að spyrja sig einnar ein­faldar spurn­ingar:
Mynduð þið líða slík ummæli um eigin móður?
Svarið er aug­ljóst.
Sýnið í verki að ykkur þyki vænt um konur.
Strákar — í alvöru.“

Hún und­ir­strikar að lausnin felist ekki í hetju­dáð ein­stakra kvenna heldur í sam­eig­in­legri, yfir­veg­aðri sam­stöðu.

„Í raun er það almenn sam­staða — yfir­veguð og skýr — sem ein getur hjálpað til við að leysa þetta sér­staka sið­fræð­ings­vanda­mál. Engin ein kona, sama hversu sterk eða hæf hún er, á að bera þessa byrði,“ skrifar Steinunn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi