Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ríkir bandamenn Trumps hafa fjárhagslega hagsmuni af Grænlandi

Áhugi for­set­ans á Græn­landi ekki endi­lega vegna þjóðar­ör­ygg­is­hags­muna, að sögn sér­fræð­inga.

Ríkir bandamenn Trumps hafa fjárhagslega hagsmuni af Grænlandi
Donald Trump Áhuga ríkra banda­manna Trumps er mik­ill á Græn­landi Mynd: Brandon Bell / Getty Images

Nokkrir af rík­ustu tækni­jöfrum heims gætu haft veru­legan fjár­hags­legan ávinn­ing af því ef Donald Trump nær fram áformum sínum um að auka banda­rísk yfir­ráð og umsvif á Græn­landi, þrátt fyrir að for­set­inn leggi helst áherslu á þjóðar­ör­yggi sem ástæðu áhug­ans. Þetta kemur fram í frétt Nyheder.

Meðal þeirra sem hafa fjár­fest í námu­vinnslu á Græn­landi eru Jeff Bezos, Bill Gates og Mark Zuckerberg, sem hafa lagt fé í banda­ríska námu­fyr­ir­tækið Kobold Metals, sem vinnur sjald­gæfa málma. Þá hefur Sam Altman, for­stjóri OpenAI, einnig fjár­fest í fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2022.

Sér­fræð­ingar segja að þótt erfitt sé að meta mögu­legan hagnað sé ljóst að auk­inn aðgangur Banda­ríkj­anna að auð­lindum Græn­lands gæti reynst sumum fjár­festum „vatn á myllu“. Samhliða þessu hefur komið fram að stórir styrkt­ar­að­ilar úr tækni-, olíu- og dul­rit­un­ar­geir­anum lögðu hund­ruð millj­óna doll­ara til kosn­inga­bar­áttu Trumps árið 2024.

Á sama tíma eru fleiri banda­rísk fyr­ir­tæki að hasla sér völl á Græn­landi, meðal ann­ars Critical Metals Corp, og hefur hluta­bréfa­verð félags­ins rokið upp eftir að Trump herti orð­ræðu sína um Grænland.

Þá hefur komið í ljós að auð­kýf­ing­ur­inn Ronald Lauder, náinn banda­maður Trumps, hefur fjár­fest í græn­lenskum fyr­ir­tækjum og er sagður hafa átt þátt í að vekja áhuga for­set­ans á eyj­unni. Sér­fræð­ingar telja slíkar fjár­fest­ingar fremur stefnu­mark­andi en hefð­bundnar.

Auk námu­vinnslu hefur Grænland vakið áhuga tækni­el­ít­unnar sem mögu­legur staður fyrir gagna­ver, þar sem kalt lofts­lag og víð­áttu­mikil land­svæði þykja henta vel. Þróun gervi­greindar hefur aukið orku­þörf gríð­ar­lega, á sama tíma og mót­staða við gagna­ver hefur tafið slík verk­efni víða í Banda­ríkj­unum.

Grein­endur telja þró­un­ina sýna að áhugi Banda­ríkj­anna á Græn­landi snú­ist ekki aðeins um þjóðar­ör­yggi, heldur einnig um efna­hags­lega og tækni­lega hags­muni áhrifa­mik­illa aðila í kringum for­set­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta