Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bandaríkin formlega hætt í Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni

Segja að WHO hafi „sví­virt og eyði­lagt allt það sem Banda­ríkin hafa lagt til“.

Bandaríkin formlega hætt í Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni
Við höf­uð­stöðvar WHO Fáni Banda­ríkj­anna tek­inn niður Mynd: Facebook

Banda­ríkin hafa nú form­lega sagt sig úr Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO), sem þýðir að stofn­unin missir einn stærsta fjár­hags­lega bak­hjarl sinn.

Forseti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, und­ir­rit­aði for­seta­til­skipun um úrsögn­ina fyrir ári síðan, eftir að hafa gagn­rýnt stofn­un­ina harð­lega og sagt hana hafa verið of „Kína-mið­aða“ í við­brögðum sínum við Covid-19 far­aldr­inum.

Banda­ríska heil­brigð­is­ráðu­neytið (HHS) segir ákvörð­un­ina byggða á meintri „van­stjórn“ WHO á heims­far­aldr­inum, skorti á umbóta­vilja og póli­tískum afskiptum aðild­ar­ríkja. WHO hefur hafnað þessum ásök­unum alfarið og sagði fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar, Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, að brott­hvarf Banda­ríkj­anna væri tap, bæði fyrir Banda­ríkin sjálf og heim­inn allan.

WHO bendir á mik­il­vægt hlut­verk sitt í alþjóð­legri bar­áttu gegn mænu­sótt, HIV/alnæmi, mæðra­dauða og í inn­leið­ingu alþjóð­legs tóbaks­varn­ar­samn­ings. Eftir heims­far­ald­ur­inn var einnig samið um alþjóð­legan far­sótta­samn­ing sem miðar að betri við­bún­aði og sann­gjarn­ari dreif­ingu bólu­efna og lyfja. Allar aðild­ar­þjóðir WHO sam­þykktu samn­ing­inn í apríl í fyrra, nema Banda­ríkin.

Banda­ríkin hafa lengi verið meðal stærstu styrkt­ar­að­ila WHO en hafa ekki greitt aðild­ar­gjöld sín fyrir árin 2024 og 2025. Það hefur þegar leitt til umfangs­mik­illa upp­sagna innan stofn­un­ar­innar. Lög­fræð­ingar WHO telja Banda­ríkin skuld­bundin til að greiða van­goldin gjöld, sem nema um 260 millj­ónum dala, en stjórn­völd í Washington hafna því.

Í yfir­lýs­ingu segir að öll banda­rísk fjár­mögnun til WHO hafi verið stöðvuð, banda­rískir starfs­menn kall­aðir heim frá höf­uð­stöðvum stofn­un­ar­innar í Genf og sam­starf Banda­ríkj­anna við WHO víða um heim fellt niður.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu heil­brigð­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Robert F. Kennedy, og utan­rík­is­ráð­herr­ans Marco Rubio segir að WHO hafi „sví­virt og eyði­lagt allt það sem Banda­ríkin hafa lagt til“. Þeir segja stofn­un­ina hafa „yfir­gefið kjarna­hlut­verk sitt og starfað ítrekað gegn hags­munum Banda­ríkj­anna“.

WHO sagði á föstu­dag að brott­hvarf Banda­ríkj­anna yrði til umræðu á næsta stjórn­ar­fundi stofn­un­ar­innar, sem fer fram dag­ana 2.–7. febr­úar, og að brugð­ist yrði við í sam­ræmi við leið­bein­ingar stjórn­valda hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife