Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna er trítilóð út í RÚV

„Er mér ekki boðið í Viku­lokin afþví þeim finnst ég hund­leið­in­leg t***a?“

Sólveig Anna er trítilóð út í RÚV
Sólveig Anna Jóns­dóttir Verka­lýðs­for­ing­inn vill fá boð í útvarpið Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, lýsir yfir mik­illi óánægju með það sem hún kallar kerf­is­bundna úti­lokun sína frá umræðu­þætti RÚV, Viku­lok­unum á Viku­lokin á Rás 1. Hún segir sig hafa verið boð­aða í þátt­inn aðeins einu sinni frá árinu 2018, þrátt fyrir að hafa gegnt for­mennsku í einu stærsta verka­lýðs­fé­lagi lands­ins í nær sjö ár.

Í færslu á Facebook rekur Sólveig Anna umfangs­mikla reynslu sína í verka­lýðs­bar­áttu og for­ystu Eflingar. Hún segir hafa leitt „fjöl­margar verk­falls­að­gerðir“, staðið fyrir „næstum ótelj­andi atkvæða­greiðslum um vinnu­stöðv­anir“, sem allar hafi verið sam­þykktar með yfir­gnæf­andi meiri­hluta, og gert fjölda kjara­samn­inga. Þá hafi hún oft komið fram fyrir dóm­stólum fyrir hönd félags­ins og tekið virkan þátt í alþjóð­legri umræðu innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

Hún ber stöðu sína saman við núver­andi for­mann VR, sem hún segir hafa verið boðið í Viku­lokin „um það bil 270 sinnum“ á tæpu ári, meðal ann­ars til að ræða kjara­samn­inga sem Sólveig Anna sjálf samdi.

„Og nú, þessa dimmu helgi á glæ­nýju ári, er nóg komið – og ég krefst svara,“ skrifar hún og setur fram röð spurn­inga um mögu­legar ástæður úti­lok­un­ar­innar.

„Er mér ekki boðið í Viku­lokin afþví A. ég er bara með grunn­skóla­próf, B. ég er átaka­sæk­inn aðgerðasinni, C. ég er ekki vók, D. ég er ekki nógu dömu­leg, E. þeim finnst ég hund­leið­in­leg t***a, F. þeim finnst ég heimskt fífl sem veit ekki neitt, eða G. ég er for­maður í félagi verka­fólks þar sem meira en helm­ingur er af erlendu bergi brot­inn en ekki í félagi íslenskrar milli­stéttar? Eða allt af þessu? “

Sólveig Anna seg­ist hafa sýnt „mikið lang­lund­ar­geð“ og bælt niður bæði gildi sín og per­sónu­leika vegna þess sem hún kallar „ein­beitta og grófa móðgun“, en segir að nú sé mælir­inn fullur.

Hún setur fram úrslita­kosti í færsl­unni og segir að fái hún ekki skýr svör innan tveggja sól­ar­hringa muni hún neita að greiða útvarps­gjald, fara í mál og krefj­ast þess að and­virði gjalds­ins verði lagt inn á Litla Kisa, „svo að hann geti keypt sér rækjur“.

Færsl­unni lýkur hún með til­vitnun sem hún eignar útvarps­stjóra á síð­ustu öld:
„Í mér býr fól,“ skrifar hún og bætir við: „Fólið er bit­urt og krefst svara!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi