Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bendir á tvískinnung í viðbrögðum við banvænum skotárásum í Bandaríkjunum

„Trump-stjórnin og þeir sem nú kalla sig hægri­menn gerðu hann að hetju, tákni um rétt­inn til að bera vopn“

Bendir á tvískinnung í viðbrögðum við banvænum skotárásum í Bandaríkjunum

Karen Kjart­ans­dóttir, almanna­teng­ill og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­kona, bendir á tví­skinn­ung í við­brögðum banda­rískra stjórn­valda og hægri­afla við tvær ban­vænar skotárásir sem áttu sér stað með fimm ára milli­bili í Banda­ríkj­unum.

Í færslu á Facebook ber hún saman málið þar sem Kyle Rittenhouse skaut þrjá menn, þar af tvo þeirra til bana í Kenosha í Wisconsin árið 2020 og nýlegt mál þar sem Alex Pretti, 37 ára gjör­gæslu­hjúkr­un­ar­fræð­ingur í Minn­ea­polis, var skot­inn til bana af Ice-full­trúum í gær.

Karen rifjar upp að Rittenhouse hafi verið 17 ára gam­all þegar hann mætti vopn­aður AR-15 riffli á Black Lives Matter-mót­mæli í öðru fylki en því sem hann bjó í.

„Rittenhouse var ólög­ráða, með vopn sem hann hafði ekki leyfi fyrir og kom til ann­ars fylkis til að „verja eignir“ sem voru ekki hans,“ skrifar hún.

Þrátt fyrir það hafi hann skotið þrjá menn sem reyndu að afvopna hann, tveir þeirra lét­ust. Rittenhouse hélt því fram að hann hefði verið að verja sig og var síðar sýkn­aður af öllum ákærum.

„Trump-stjórnin og þeir sem nú kalla sig hægri­menn gerðu hann að hetju, tákni um rétt­inn til að bera vopn,“ skrifar Karen.

Í and­stæðu við það bendir hún á atvikið í Minn­ea­polis í gær, fimm árum síðar. Þar var Alex Pretti skot­inn til bana af alrík­is­full­trúum á mót­mælum.

„Pretti var að taka upp lög­reglu­að­gerð á mynd­band og aðstoða konu sem lög­reglan hafði hrint,“ segir Karen í færsl­unni.

Hún leggur áherslu á að Pretti hafi verið með lög­lega byssu og gilt leyfi til að bera hana, en að mynd­bönd sýni að hann hafi aldrei notað hana né reynt að gera það.

„Myndbönd sýna að hann not­aði hana aldrei og reyndi það aldrei. Pretti lá á jörð­inni þegar lög­reglan hleypti skot­unum af,“ skrifar hún.

Þrátt fyrir það hafi við­brögð stjórn­valda verið gjör­ó­lík þeim sem Rittenhouse naut. Karen bendir á að Stephen Miller, einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Trump-stjórn­ar­innar, hafi kallað Pretti „morð­ingja“ og „hryðju­verka­mann“. Þá hafi Donald Trump sjálfur sagt að byssa Pretti hafi verið „hlaðin og til­búin til notk­unar“.

„Eins og það eitt og sér rétt­læti aftöku án dóms og laga,“ skrifar Karen og bætir við að Pretti hafi verið „myrtur í aðgerðum sem sagðar eru snú­ast um öryggi og lög og reglu“.

Færsla Karenar hefur vakið tals­verða athygli en yfir tvö­hund­rað manns hefur líkað við hana og hefur henni verið deilt 14 sinnum, þegar þessi frétt er skrifuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi