Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í nótt og í gærkvöldi miðað við dagbók hennar.
Lögregla handtók þrjá menn sem grunaðir eru um að hafa brotist inn í verslun. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu og liggja ekki fyrir frekari upplýsingar að svo stöddu.
Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir við akstur, hvor í sínu lagi, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis. Báðir voru látnir lausir að lokinni sýnatöku og bíða niðurstöðu rannsóknar.
Á sama tímabili bárust einnig fjórar tilkynningar um þjófnað í verslunum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru öll málin afgreidd með vettvangsskýrslu.





















Athugasemdir