Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fundu dauða ketti á meðan eigandi þeirra var erlendis

Aðrir lif­andi kettir voru teknir af eig­and­anum

Fundu dauða ketti á meðan eigandi þeirra var erlendis
Köttur í miðbæ Reykja­víkur Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Mat­væla­stofnun hefur á und­an­förnum miss­erum gripið til fjöl­breyttra aðgerða vegna brota á lögum um vel­ferð dýra. Málin spanna allt frá vörslu­svipt­ingum gælu­dýra til dag­sekta og stjórn­valds­sekta á búrekstri og slát­ur­húsum.

Kettir og hundar fjarlægðir af heimilum

Í nokkrum til­vikum var ákveðið að svipta eig­endur vörslu gælu­dýra vegna alvar­legrar van­rækslu. Í einu máli var köttur fjar­lægður af heim­ili eftir að ill með­ferð hafði stefnt lífi hans í hættu. Í öðru til­viki sam­þykkti umráða­maður kattar að dýrið yrði fjar­lægt var­an­lega vegna slæms aðbún­aðar.

Einnig voru umráða­menn hunds sviptir vörslu hans eftir að lög­regla heim­sótti heim­ili þeirra. Þar kom í ljós heilsu­spill­andi íbúð, slæmur aðbún­aður og ófull­nægj­andi umönnun hunds­ins.

Í öðru alvar­legu máli, þar sem eig­andi hafði farið í margra vikna ferða­lag til útlanda og falið öðrum að ann­ast marga ketti, leiddi eft­ir­lit til þess að nokkrir kettir fund­ust dauðir. Aðrir kettir voru fjar­lægðir af heim­il­inu í kjöl­farið.

Dagsektir vegna vanrækslu í búfjárhaldi

Nokkrir naut­gripa­bændur fengu áminn­ingar og dag­sektir vegna frá­vika í dýra­haldi. Í sumum til­fellum báru dag­sektir árangur. Einn bóndi fékk dag­sektir upp á 10.000 krónur á dag vegna ófull­nægj­andi bása og hrein­lætis, en bætti úr áður en til inn­heimtu kom og voru sektir því felldar niður.

Í öðru máli voru dag­sektir upp á 7.500 krónur á dag lagðar á bónda vegna skorts á klauf­hirðu og ófull­nægj­andi brynn­ingar og rýmis fyrir gripi. Þá voru einnig lagðar dag­sektir upp á 10.000 krónur á dag vegna ann­arra frá­vika í búrekstri.

Þegar dag­sektir skil­uðu ekki árangri í einu máli var gripið til frek­ari aðgerða og hluti naut­gripa­hjarðar fjar­lægður. Öll kven­dýr og ung­viði voru tekin úr umsjón bónd­ans til að tryggja vel­ferð grip­anna.

Stjórnvaldssektir og brot í sláturhúsi

Í einu til­viki var naut­gripa­bóndi sektaður um 288.000 krónur fyrir að binda naut á bása, sem er bannað sam­kvæmt reglu­gerð nema við sér­stakar aðstæður, svo sem við með­höndlun eða þegar kvígur eru nálægt burði.

Þá var fugla­slát­ur­hús sektað um 144.500 krónur vegna brota á vel­ferð fugla við aflífun. Óvænt raf­magns­leysi varð við slátrun og var ekki brugð­ist rétt við því, sem leiddi til ófull­nægj­andi með­ferðar fugla á slát­ur­línu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi