Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Veribest hrísgrjónum sem Garri ehf. flytur inn vegna leysiefna (MAOH) sem fundust í vörunni. Hrísgrjónin voru seld til stóreldhúsa og í eina verslun. Fyrirtækin hafa innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlitssvæði.
Varan var seld í 800g pokum á tímabilinu 2. september 2025 til 25. janúar 2026.
Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila til Matarbúðarinnar Nándin Austurgötu 47, 220 Hafnarfirði

Mynd: MAST































Athugasemdir