Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Framleiðandi þáttaraðarinnar Tehran fannst látinn á hótelherbergi

„Við syrgjum frá­fall sam­starfs­konu okkar og sam­starfs­að­ila“

Framleiðandi þáttaraðarinnar Tehran fannst látinn á hótelherbergi
Dana Eden Dana var aðeins 52 ára er hún lést Mynd: DIA DIPASUPIL / AFP

Dana Eden, 52 ára fram­leið­andi og einn höf­undur ísra­elsku drama­ser­í­unnar Tehran, lést skyndi­lega í Aþenu í gær, þar sem verið var að taka upp fjórðu þátta­röð ser­í­unnar í Grikk­landi. Þetta stað­festi Kan, rík­is­út­varp Ísraels.

Samkvæmt hebr­eskum fjöl­miðlum fann bróðir Eden hana látna á hót­eli í Aþenu eftir að hún svar­aði ekki skila­boðum hans. Hann hóf leit að henni og fann hana þá líf­vana.

Lögregla á staðnum fyr­ir­skip­aði krufn­ingu til að skera úr um dán­ar­or­sök og hóf jafn­framt söfnun myndefnis úr örygg­is­mynda­vélum og tók skýrslur af starfs­fólki hót­els­ins. Samkvæmt frétt Reuters rann­sakar lög­regla málið sem mögu­legt sjálfs­víg, byggt á fyr­ir­liggj­andi gögnum og vitn­is­burðum.

Minnst sem áhrifamikils leiðtoga í ísraelsku sjónvarpi

Israeli Public Broadcasting Corporation birti yfir­lýs­ingu þar sem and­láts Eden var minnst.

„Við syrgjum frá­fall sam­starfs­konu okkar og sam­starfs­að­ila í fjöl­mörgum fram­leiðslum, þátta­röðum og dag­skrám hjá ísra­elska rík­is­út­varp­inu – Dana Eden,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni. „Dana var meðal fremstu ein­stak­linga í ísra­elskum sjón­varps­iðn­aði og gegndi lyk­il­hlut­verki í sköpun og for­ystu nokk­urra af áhrifa­mestu og áber­andi verkum stofn­un­ar­innar. Fagleg og per­sónu­leg arf­leifð hennar mun móta ísra­elskt sjón­varp um ókomin ár.“

Þar kom einnig fram að Eden hefði ferð­ast til Grikk­lands til að fylgj­ast náið með tökum á fjórðu þátta­röð­inni.

Hafna orðrómi um að andlátið

Fram­leiðslu­fyr­ir­tækið á bak við Tehran sagði engar vís­bend­ingar vera um að and­lát Eden tengd­ist refsi­verðri hátt­semi, í kjöl­far orðróms á sam­fé­lags­miðlum um að hún hefði mögu­lega verið myrt af írönskum leyni­þjón­ustu­að­ilum.

„Fram­leiðslu­fyr­ir­tækið vill taka skýrt fram að orðrómur um að and­látið sé glæp­sam­legt eða þjóð­ern­ispóli­tískt er rangur og á sér enga stoð í raun­veru­leik­anum,“ sagði Donna and Shula Productions í yfir­lýs­ingu.

„Við hvetjum fjöl­miðla og almenn­ing til að birta ekki órök­studdar kenn­ingar og sýna ábyrgð og nær­gætni. Þetta er tími mik­illar sorgar fyrir fjöl­skyldu, vini og sam­starfs­fólk,“ sagði enn fremur. „Við viljum varð­veita reisn Dönu og frið­helgi einka­lífs hennar.“

Alþjóðlega verðlaunuð þáttaröð

Tehran hefur hlotið alþjóð­leg verð­laun, þar á meðal International Emmy Awards, og hefur verið sýnd á Apple TV. Serían var skrifuð og sköpuð af Moshe Zonder, Eden og Maor Kohn.

Ákvörð­unin um að nota hluta Aþenu sem stað­gengil fyrir Teheran var tekin eftir að Eden heim­sótti borg­ina í fjöl­skyldu­ferð og varð hrifin af sjón­rænum lík­indum borg­anna. Ísra­elskum rík­is­borg­urum er bannað að ferð­ast til Írans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta