Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar - Annar kafli

Mis­vísandi vitn­is­burður

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar - Annar kafli

Í febr­úar 2023 rifj­aði Mannlíf upp eitt dul­ar­fyllsta flug­slys Íslands­sög­unnar, Glit­faxaslysið árið 1951, þar sem 20 manns lét lífið en flug­vélin fannst aldrei. Um var að ræða svo­kall­aðan Bak­sýn­is­spegil þar sem gömul frétta­mál voru rifjuð upp. Ekki óraði blaða­manni Mannlífs fyrir því sem gerð­ist í kjöl­far Bak­sýn­ins­speg­ils­ins en glæ­nýjar upp­lýs­ingar tóku að ber­ast Mannlífi varð­andi hið dul­ar­fulla flug­slys.

Hér fyrir neðan má sjá seinni kafl­ann í frétta­skýr­ingu um slysið og hinar nýju upp­lýs­ingar sem litu dags­ins ljós í kjöl­far Bak­sýn­is­speg­ils­ins en hún birt­ist í tölu­blaði Mannlífs árið 2023. Frétta­skýr­ing­arnar birt­ast óbreyttar frá 2023.

Annar kafli

Mannlíf hefur að und­an­förnu fjallað um eitt dul­ar­fyllsta sam­gönguslys Íslands­sög­unnar, Glit­faxaslysið 1951. Komið hafa fram nýjar upp­lýs­ingar en Mannlíf ræddi við Nikulás Sveins­son sem var staddur í flug­turn­inum í Keflavík dag­inn sem flug­vélin fórst. Heyrði hann allt sem fram fór á milli turns­ins í Reykja­vík og þess í Keflavík, flug­manni Glitfaxa var boðið í þrí­gang að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli en afþakk­aði í öll skiptin. Þá upp­ljóstr­aði Mannlíf einnig um kaf­ara sem seg­ist hafa fundið flakið, en neitar að gefa upp nákvæma stað­setn­ingu. Nú er sem sagt komið að næsta kafla í umfjöll­un­inni, en þar kemur aftur ýmis­legt nýtt og for­vitni­legt í ljós.

Kynntist aldrei föður sínum

Sig­ur­björg Sig­ur­björns­dóttir var í móð­ur­kviði þegar faðir hennar, Sig­ur­björn Mey­vants­son, fórst en hann var einn 17 far­þega í Glitfaxa, Dakota-flug­vél Flug­fé­lags Íslands sem fórst árið 1951.

Í við­tali við Mannlíf segir Sig­ur­björg föður sinn hafa verið þekktur sölu­maður hjá Ásbirni Ólafs­syni og hann hafi verið staddur í Vest­manna­eyjum þennan örlaga­ríka dag, 31. jan­úar fyrir 72 árum, í sölu­ferð. Móðir hennar var að bíða eftir að fá föður hennar heim og not­að­ist við útvarps­tæki þar sem hægt var að stilla inn á tal­stöðvasam­skipti. „Hún er að fylgj­ast með þessu í gegnum útvarpið, hvar hann er á leið­inni. Hún heyrir þetta þannig. Svo allt í einu sló þögn á allt,“ sagði Sig­ur­björg, en sú þögn hefur í raun varað allar götur síðan. Ætt­ingjar þeirra sem fór­ust velta því enn fyrir sér hvað hafi í raun komið fyrir Glitfaxa, en flakið hefur aldrei fund­ist, ekki opin­ber­lega að minnsta kosti.

Eldri systir Sig­ur­bjargar var á þrett­ánda ári þegar slysið varð, en hún lést fyrir stuttu. „Hún var mjög frökk. Hún tók þetta slys auð­vitað nærri sér eins og gefur að skilja og hún vildi fá að vita eitt­hvað meira. Hún tók vin­konu sína með sér og fór á Lækj­ar­götu þar sem Flug­fé­lag Íslands var til húsa og stóð þar úti á gólfi og var spurð hvaða erindi hún ætti þangað. Þá hóf hún upp raust sína og sagði: „Ég vil fá að vita hvað varð um Glitfaxa!“. Hún var þá spurð af hverju hún væri að spyrja um það. Þá sagði hún: „Pabbi minn var í flug­vél­inni“. Og þá sló bara þögn á allt starfs­fólkið á skrif­stof­unni. Og hún fékk engin svör.“

Að sögn Sig­ur­bjargar hafði slysið auð­vitað gríð­ar­leg áhrif á fjöl­skyld­una. „Jú, ég er nátt­úr­lega yngst og kynnt­ist aldrei pabba, en systur mínar mundu báðar eftir honum.“

Enn fremur segir hún að þöggun hafi alla tíð ein­kennt málið. „Þetta var aldrei neitt rætt að ráði. En stundum, þegar það var gert, þá var það oft rætt heima hjá mér, svona áður en mamma mín lést.“

Sig­ur­björg seg­ist vilja vita hvar flug­vél­ina sé að finna þótt hún vilji ekki að það verði hróflað við henni, en árið 2011 fór hún ásamt um það bil 20 öðrum ætt­ingjum þeirra sem lét­ust í slys­inu, út á Faxaflóa með blómsveiga til að minn­ast slyss­ins á 60 ára afmæli þess.

„Mér þætti mjög vænt um að fá að vita það,“ sagði hún aðspurð hvort hún myndi vilja vita hvar flug­vél­arflakið væri að finna. „En ekki það að það eigi eitt­hvað að hrófla við þessu, ekki að okkar hálfu.“

Hefur fengið nákvæma staðsetningu á flakinu

Miklar vanga­veltur eru um nákvæma stað­setn­ingu flaks Glitfaxa sem fórst árið 1951 ásamt öllum inn­an­borðs, 20 manns. Kafari sem Mannlíf ræddi við seg­ist hafa farið niður að því en vill ekki gefa upp nákvæma stað­setn­ingu. Þá telur þyrlu­flug­maður sig hafa séð flak við Straums­vík árið 1978. Sér­fræð­ingur í flaka­köfun sem Mannlíf ræddi við dregur í efa að um flak Glitfaxa hafi verið um að ræða, þótt hann úti­loki ekk­ert.

Þyrluflugmaðurinn

Fyrr­ver­andi þyrlu­flug­stjóri hjá Land­helg­is­gæsl­unni, Benóný Ásgríms­son, segir í sam­tali við Mannlíf að hann hafi árið 1978 séð flak flug­vélar í Straums­vík. „Ég get ekki stað­fest að ég hafi séð flak Glitfaxa, en ég sá eitt­hvað sem líkt­ist flug­vél, skammt undan Straums­vík. Þetta voru mjög sér­stök skil­yrði, glamp­andi sól og algjört logn,“ sagði Benóný og bætti því við að þetta hafi verið í kringum 1978. „Ég lét vita af þessu á sínum tíma, lét loft­ferða­eft­ir­litið vita, minnir mig.“

Kafarinn

Mannlíf birti frétt á dög­unum þar sem sagt var frá kaf­ara nokkrum sem sagð­ist hafa kafað niður að flaki Glitfaxa, en vildi ekki gefa nán­ari upp­lýs­ingar um stað­setn­ing­una. Ástæðan er sú að hann vildi ekki að „ein­hverjir kjánar færu að hræra í þessu“ en stjúp­móðir hans missti föður sinn og föð­ur­bróður í slys­inu.

Lögreglumaðurinn

Þá ræddi Mannlíf við lög­reglu­mann­inn og köf­un­ar­sér­fræð­ing­inn Arnar Þór Egilsson, sem sér­hæfir sig í að leita að flökum, en hann hefur kafað í um 20 ár. Sagðist hann draga í efa að menn­irnir sem talað er um hér að framan, hafi fundið flak Glitfaxa þótt hann úti­loki það ekki. Segist hann ekki hafa heyrt af flaki í námunda við Straums­vík, en að nokkur flök séu vissu­lega í Faxaflóa, önnur er en flak Glitfaxa. „Ef að hann sá flak þar, hlýtur það að hafa verið á miklu grunn­sævi. Ef við skoðum það, þá erum við til dæmis með annað flug­vél­arflak, Northrop-vél­ina sem er í Skerja­firði, en hún er frá því í stríð­inu, sem sagt fyrir tíma Glitfaxa. Og það flak er á 12 til 14 metra dýpi og það er ekki séns að sjá það nokkurn tím­ann. En svo er, við Álftanes, flak breskrar her­flug­vélar af gerð­inni Lockheed Ventura, sem fórst í stríð­inu líka. Hún er alveg í tætlum. Ég kaf­aði sjálfur að því flaki og þar er bara ekk­ert að sjá.“ Arnar Þór segir að miðað við sjón­stefnu Glitfaxa sem flug­vélin átti að vera í þegar sam­bandið rofn­aði, þá hafi hún farið í sjó­inn þar sem er um 30-35 metra dýpi. „Jú, það er mikið þannig séð, en miðað við tækn­ina í dag þá er þetta ekki ómögu­legt.“

Vill skoða svæðið betur

Arnar Þór seg­ist hafa fengið ábend­ingu um flak Glitfaxa fyrir nokkrum árum. „Fyrir nokkrum árum fékk ég ábend­ingu um það að flak Glitfaxa væri að finna undan ströndum Kúa­gerðis. Og mér var gef­inn ákveð­inn punktur og full­yrt við mig að þarna væri vélin. Ég fór út að leita og ég tók Side Scan-sónar með mér og kort­lagði svæðið alveg. Og ég sá ekki neitt. Bara alls ekki neitt. En nú er ég mjög vanur að leita að svona lög­uðu, en ég myndi ekki segja að mínar mæl­ingar eða mín leit hafi verið 100 pró­sent, því að ef við tökum þessa sviðs­mynd sem átti sér stað undan ströndum Álfta­ness, að þá er ekk­ert eftir. Þegar ég not­aði Side Scan-són­ar­inn við leit að því flaki sá ég ekki neitt, en ég vissi að þarna var eitt­hvað, því ég hafði kafað þangað niður. Þannig að það sem ég á eftir að gera í raun og veru er að kíkja á þennan stað þar sem full­yrt var við mig að flakið væri og fara með fjar­stýrða mynda­vél þangað niður og athuga hvort sá staður reyn­ist réttur. Við erum ekk­ert að leita að vél sem er í heilu lagi, þetta eru bara bútar eða brot. Allt álefni er bara farið í gegnum tíð­ina. En það geta alltaf verið ein­hverjir hlutir eftir eins og lend­ing­ar­bún­aður og svo er eitt sem fer aldrei og það eru mót­or­arnir.“

Flug­vél­arflak frá seinni heims­styrj­öld­inni sem fannst undan ströndum Papúa Nýju-Gíneu með hjálp Side Scan-són­ars, árið 2017.Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Hvað varðar full­yrð­ingu kaf­ar­ans um að hann hefði kafað að flak­inu, segir Arnar Þór að hann verði að heyra frekar um það til þess að trúa því: „Ég leyfi mér að draga þetta í efa. Segðu mér aðeins meira svo ég, sem er kaf­ari sem leitað hefur að flökum og fundið þau, geti fengið að vita þetta. Mér finnst þetta bara ótrú­verð­ugt.“ Þegar blaða­maður segir honum að kaf­ar­inn hafi ekki viljað segja hvar flakið væri að finna því stjúp­móðir hans hefði misst föður sinn og frænda í slys­inu og vilji ekki að „hrært“ væri í þessu, sagð­ist Arnar Þór skilja það. „Það er alveg full­kom­lega skilj­an­legt og hann hefur sínar ástæður, en eins og ég segi, þá vil ég enn þá svo­lítið draga þetta í efa. Ég hef heyrt svona sögur í gegnum þennan bransa í gegnum árin, en þar sem ég hef kafað niður að flökum, þar eru myndir og fleira skil­urðu? Ekki segja mér að það sé flak ein­hvers staðar í sjónum og þú viljir ekki að neinn kafi þangað því þú viljir ekki að neinn hrófli við því, því þetta sé vot gröf.“ Sagði Arnar einnig að hann skilji þá ætt­ingja sem vilji fá að vita hvar flakið sé að finna, svo það fái frið í sál­ina. „Þá væri þetta bara staður í sjónum þar sem fór­ust 20 manns og ég veit að þeir kaf­arar sem ég þekki að minnsta kosti, þeir myndu full­kom­lega virða þetta.“

Áður en sam­tali blaða­manns­ins við Arnar Þór lauk vildi hann koma því á fram­færi að það „gæti vel verið að flakið sé löngu fundið“ en að hann hefði heyrt svo margar svip­aðar sögur í gegnum tíð­ina að hann þurfi sönnun svo hann trúi því. „Og ég er ekki sá eini, heldur ætt­in­gj­arnir líka. Ég vil slá á sam­sær­is­kenn­ingar, ég vil slá á eitt­hvað sem er ekki satt,“ sagði Arnar Þór að lokum en hann heldur út frá­bærri heima­síðu þar sem hann fjallar um skips- og flug­vélaflaka­köfun við Íslands­strendur.

Mýtu eytt

Allt frá því að Glitfaxi, flug­vél Flug­fé­lags Íslands fórst þann 31. jan­úar 1951 í slæmu veðri, hafa ætt­ingjar og vinir þeirra sem lét­ust í slys­inu, velt fyrir sér ástæð­unni fyrir slys­inu. Ýmsar kenn­ingar hafa verið á lofti í gegnum árin, en engin almenn nið­ur­staða feng­ist enn.

Ein af kenn­ing­unum var sú að vélin hefði orðið bens­ín­laus og því hrapað í Faxaflóa. Mannlíf hefur rætt við nokkra ætt­ingja þeirra sem lét­ust og hafa þeir flestir heyrt minnst á þessa kenn­ingu, en sam­kvæmt gögnum um slysið frá 1951, er þetta ekki rétt. Nógu mikið elds­neyti var á vél­inni til að end­ast í um tvo og hálfan klukku­tíma til við­bótar.

Samkvæmt skjölum frá árinu 1951, sem Mannlíf fékk að blaða í á Þjóð­skjala­safni Íslands, kemur fram að nægi­legt elds­neyti hafi verið í vél­inni. Í nið­ur­stöðu rann­sóknar á slys­inu segir: „Elds­neyt­is­forði flug­vél­ar­innar var 600 U.S. gallon af bens­íni fyrir flug­tak til Sauð­ár­króks, fyrr um dag­inn, en ekk­ert elds­neyti var síðan látið á flug­vél­ina, eða áður, en hún hóf flug til Vestm.eyja. Bens­ín­magn þetta nægði til þess­ara 2ja flug­ferða og 2 - 2,5 klst. að auki.“

Aðrar nið­ur­stöður voru eft­ir­far­andi:

  1. Flug­vélin var í flug­hæfu ástandi og skjöl hennar í lagi.
    2. Réttindi flug­stjór­ans náðu til þess­arar teg­undar flug­vélar og skír­teini hans var í gildi en rétt­indi aðstoð­ar­flug­manns náðu ekki til þess­arar teg­undar flug­véla, en skír­teini hans var í gildi.
    3. Þungi flug­vél­ar­innar við flug­tak í Vest­manna­eyjum var innan leyfðs hámarks­þunga og hleðslu­markið innan til­skil­inna tak­marka.
    4. Í flug­vél­inni voru öll nauð­syn­leg radíó-tæki, en sér­stakur loft­skeyta­maður var ekki með, enda ekki venja í inn­an­lands­flugi.

Vitnisburður starfsmanna flugturnsins í Keflavík

Mannlíf ræddi á dög­unum við Nikulás Sveins­son sem staddur var í flug­turn­inum í Keflavík dag­inn sem Glit­faxaslysið átti sér stað. Sagðist hinn 94 ára fyrr­ver­andi raf­virki á Vellinum, muna hvert ein­asta orð sem fór á milli flug­turn­anna í Reykja­vík og Keflavík og vita að flug­maður Glitfaxa hafi í þrí­gang neitað að lenda í Keflavík, þrátt fyrir ítrek­anir um að ekki væri hægt að lenda í Reykja­vík sökum veð­urs.

En ef gögn um málið eru skoðuð má sjá að Banda­ríkja­menn­irnir tveir, Robert H. Bauerle og Harry Jacob Getz, sem störf­uðu í flug­turn­inum í Keflavík þann 31. jan­úar 1951, neit­uðu fyrir svoköll­uðum lög­reglu­rétti, að hafa boðið Glitfaxa að lenda og er það þvert á það sem Nikulás sagði Mannlífi. „Aðspurður skýrir hann svo frá, að flug­turn­inn hér hafi ekki beðið þá að aðstoða hina óþekktu flug­vél,“ stendur í skýrslu lög­reglu­rétt­ar­ins sem Mannlíf hefur skoðað. Sagði hann að flug­turn­inn hafi ein­ungis verið beð­inn um að svip­ast um eftir tveimur flug­vélum, en þeir hafi bara séð aðra þeirra. Ekki gátu þeir vitað hvora vél­ina þeir sáu.

Stangast þessi vitn­is­burður Banda­ríkja­mann­anna algjör­lega á vitn­is­burð Niku­lásar. Ætt­ingjar þeirra sem lét­ust í flug­slys­inu, hafa sumir talað um ákveðna þöggun um slysið. Að ekki hafi komið fram nákvæm­lega hvað gerð­ist þennan örlaga­ríka dag fyrir 72 árum, en bent hefur verið á að faðir flug­manns­ins, Ólafs Jóhanns­sonar, hafi verið þing­mað­ur­inn og fyrr­ver­andi ráð­herr­ann Jóhann Þ. Jós­efs­son frá Vest­manna­eyjum, en hann var meðal ann­ars sam­göngu- og iðn­að­ar­mála­ráð­herra frá 1949-1950. Skal það látið ósagt hvort þessi tengsl hafi haft ein­hver áhrif á vitn­is­burði Banda­ríkja­mann­anna tveggja, en þau eru áhuga­verð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi