Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hulin ráðgáta í Tver-skógum: Saga yfirgefinnar hvelfingar

Dul­ar­full kúla birt­ist í rúss­neskum skógi á níunda ára­tugnum en eng­inn vissi hvaðan hún kom

Hulin ráðgáta í Tver-skógum: Saga yfirgefinnar hvelfingar
Hin dul­ar­fulla kúla Enginn veit með vissu hvaðan kúlan kom Mynd: Wikimedia Commons

Á níunda ára­tug síð­ustu aldar reis óvænt risa­vaxin hvelf­ing úr trefja­plasti djúpt í skógum Tver-hér­aðs í Rúss­landi. Enginn virt­ist vita með vissu hvers vegna hún var þar eða hvert hlut­verk hennar átti að vera. Í ára­tugi varð þessi dul­ar­fulla bygg­ing, sem gekk ein­fald­lega undir nafn­inu Kúlan, að sér­kenni­legu aðdrátt­ar­afli fyrir alls kyns fólk, allt frá jeppa­mönnum og göngu­fólki til tón­list­ar­manna, lista­fólks, hippa og sam­sær­is­kenn­ing­arsmiði. Þegar hún hrundi loks árið 2021 lauk löngu ævi­skeiði þessa óvenju­lega kenni­leitis, sem nú lifir aðeins áfram í minn­ingum og brotum á skóg­ar­botn­inum. Rúss­neski fjöl­mið­ill­inn Meduza fjall­aði um málið nýverið.

Kúlan stóð á afskekktu rjóðri sem aðeins var hægt að nálg­ast eftir krók­óttar leiðir um skóga og smá­þorp. Þar sem áður blasti við 18 metra breið hvelf­ing, sem margir sóttu heim af for­vitni eða lotn­ingu, eru nú aðeins dreifð brot úr trefja­plasti.

Óvissan um upp­runa hennar kveikti ímynd­un­ar­aflið. Sumir töldu hana hafa tengst sov­éskum hern­að­ar­til­raunum, aðrir sögðu hana vera ósam­hverfa svörun Sov­ét­ríkj­anna við Strategic Defense Ini­ti­ative-áætlun Banda­ríkj­anna, tál­beita sem ætlað var að draga að sér skot­hríð óvin­ar­ins frá loft­varna­kerfum í kalda stríð­inu og enn aðri töldu þetta vera hluta af yfir­gefnu bygg­ing­ar­verk­efni hers­ins. Heima­menn og fyrr­ver­andi starfs­menn opin­berra stofn­ana gáfu ólíkar skýr­ingar, allt frá því að hún hefði átt að vera dans­salur yfir í að vera veð­ur­hlíf fyrir hern­að­ar­leg loft­net með sér­staka hljóð­vist. Í rann­sókn rúss­neska slúð­ur­blaðs­ins Komsomol­skaya Pravda var vitnað í heima­menn sem full­yrtu að her­inn hefði varpað risakúl­unni úr þyrlu, ann­að­hvort fyrir slysni á æfingum eða af ásettu ráði í æfinga­flugi áður en haldið var á úti­lok­un­ar­svæðið í Tsjerno­byl.

„Þetta var helgistaður“

Hver sem sann­leik­ur­inn var, hafði Kúlan ein­stakt aðdrátt­ar­afl. Hún varð fljótt vin­sæl meðal fólks sem leit­aði að óvenju­legum stöðum. Þar var gist, kveikt upp í, spilað á hljóð­færi og haldnir tón­leikar. Sérstök hljóð­vist hvelf­ing­ar­innar heill­aði marga, og margir lýstu upp­lifun­inni inni í henni sem nán­ast and­legri.

Fyrst kom jeppa­fólk, síðan hjól­reiða­fólk og göngu­hópar. „Þetta var helgi­staður,“ segir Vitaly Balykin, leið­sögu­maður frá bænum Kimry. „Fyrir tíu árum, ef þú varst á leið til Dubna, þá varðstu að sjá Kúluna.“

Hann man eftir staðnum áður en veggjakrot og rusl tóku yfir. Eitt sinn hittu hann fólk sem hafði gist inni í hvelf­ing­unni í óveðri og hitað te yfir eldi. Annað sinn mætti hann ungum hippum sem höfðu kveikt kerti og prófað hljóð­vist­ina með flautum og bjöllum. „Hljóðin voru ólýs­an­leg,“ rifjar hann upp.

Árið 2012 kom Alexey Reznikov, þá eðl­is­fræði­nemi, fyrst að Kúlunni eftir að hafa lesið um hana á bloggi. Hann og kærasta hans gistu þar í tjaldi. Hún, sem sjaldan söng, fór allt í einu að syngja. Sú upp­lifun varð kveikjan að tón­leikum sem Reznikov skipu­lagði síðar, þar sem yfir hund­rað manns komu saman í við­burð­inum Venju­legt krafta­verk: sin­fónía í Kúlunni, með tón­list, ljóðum, dansi og mynd­list.

Eftir það urðu tón­leikar reglu­legir. „Ég er ekki hneigður til dul­hyggju,“ sagði Reznikov, „en Kúlan… maður vildi með­höndla hana eins og eitt­hvað and­legt.“

Hnignun og endalok

Árið 2014 ristu með­limir mót­or­hjóla­klúbbs nafn sitt í hvelf­ing­una með keðju­sög, sem vakti mikla reiði. Sjálf­boða­liðar reyndu að hreinsa og mála yfir, en skemmd­irnar héldu áfram. Smám saman fór Kúlan að klofna og síga í mýr­ina. Árið 2021 hrundi hún loks.

„Það er synd að hún skuli vera farin,“ segir Val­ent­ina, sem bjó í Lartsevo í nær 30 ár. „Eins og eitt­hvað hafi verið tekið.“

Íbúar þorp­anna sem fólk fór um á leið­inni að Kúlunni fundu líka fyrir breyt­ing­unum. Sumir nýttu brot úr hvelf­ing­unni í húsa­skjól fyrir dýr eða hug­leiddu að selja minja­gripi. Eldri kona, Lida, sem átti Kúlu-segul, sagði ein­fald­lega: „Hún var góð Kúla. Fólk kom, spil­aði á gít­ara, en braut svo allt.“

Einn heima­maður, Misha, telur að í raun hafi verið tvær slíkar hvelf­ingar, fluttar á stað­inn í þyrlu snemma á níunda ára­tugnum. Önnur brotn­aði, hin átti að verða menn­ing­ar­hús fyrir ungt fólk. Eftir Tsjernóbýls­slysið 1986 hafi fjár­mun­irnir horfið annað.

„Fyrir okkur var hún ekk­ert stór­mál,“ segir hann. „Fólk fór þangað til að tína sveppi, fela sig fyrir rign­ing­unni eða hlusta á berg­málið.“

Hér fyrir neðan má sjá nokk­urra ára gam­alt mynd­skeið þar sem tveir menn kanna kúl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife