Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý

Fyrr­ver­andi heim­ili Andrews gæti orðið heim­ili Harrýs og Meghan.

Karl konungur sagður vilja sættast við Harrý
Karl kon­ungur og Harrý Feðgarnir á leið í serimóníu árið 2022 Mynd: DAVID ROSE / POOL / AFP

Talið er að Karl III Breta­kon­ungur vilji grafa stríðs­öx­ina við son sinn, Harrý prins, og í því skyni hygg­ist hann bjóða honum og Meghan Markle að flytja í Royal Lodge, fyrr­ver­andi heim­ili Andrews Mountbatten-Windsor.

Greint er frá því að kon­ung­ur­inn vilji bæta sam­skiptin við hinn 41 árs Harrý, eftir þann klofn­ing sem tal­inn er hafa mynd­ast frá því hann og Meghan yfir­gáfu kon­ungs­fjöl­skyld­una árið 2020 og hófu nýtt líf í Kali­forníu. Royal Lodge stendur nú autt eftir að Karl vís­aði bróður sínum, Andrew, úr hús­inu seint á síð­asta ári, og heim­ild­ar­menn segja kon­ung­inn líta á eign­ina sem tæki­færi fyrir son sinn og tengda­dóttur.

Einn heim­ild­ar­maður sagði: „Þetta væri hin full­komna frið­ar­gjöf. Karl vill ein­ingu. Að bjóða Harry glæsi­lega eign í Windsor myndi senda skýr skila­boð um að dyrnar séu enn opnar.“

Talið er þó að slíkt myndi ekki falla Andrew vel í geð, en hann bjó í Royal Lodge í um 20 ár. Hann hefur sam­kvæmt fréttum átt erfitt með að flytja í bráða­birgða­hús­næði sitt, Wood Farm, sem hann á að hafa lýst sem „fyrir neðan sig“.

Í pistli sínum á Substack segir kon­ungs­fjöl­skyldu­sér­fræð­ing­ur­inn Rob Shuter að hann hafi rætt við ýmsa heim­ild­ar­menn sem telja að hinn 77 ára Karl sé til­bú­inn að láta for­tíð vera for­tíð og sætt­ast við Harry. Heim­ildir lýsa Royal Lodge, sem stendur í Windsor Great Park, sem „dýru í rekstri, í þörf fyrir umfangs­miklar við­gerðir og þjök­uðu af ára­langri nei­kvæðri umræðu.“

Royal Lodge hafði verið heim­ili Andrews og Söruh Ferguson frá árinu 2004, en umræðan í kjöl­far Epstein-skjal­anna hefur leitt til þess að Andrew flutti í Wood Farm og Sarah ann­ars staðar. Myndir sem Daily Mirror birti í fyrra sýndu jafn­framt umfang mik­illa við­gerða sem 30 her­bergja húsið þarfn­ast.

Óvíst er þó hvort Harry og hin 44 ára Meghan hygg­ist snúa aftur til kon­ung­legra starfa. Í fyrra virt­ist sem þau hefðu íhugað að flytja frá Banda­ríkj­unum aftur til Bret­lands, meðal ann­ars þegar vega­bréfsum­sóknir barna þeirra, Boga prins og Lísabetu prinsessu, inni­héldu tit­il­inn HRH (Hans/Hennar Kon­ung­lega Hátign) ásamt eft­ir­nafn­inu Sussex. Talið er að Harry og Meghan vilji að börnin geti síðar sjálf ákveðið hvort þau vilji sinna opin­berum skyldum eða halda sig utan sviðs­ljóss­ins.

Í Substack-pistli sem birt­ist í vik­unni sagði þó einn heim­ild­ar­maður: „Ímyndin er flókin. Að flytja Harry og Meghan í gamla húsið hans Andrews tengir þau við eign sem hefur orðið sam­ofin hneyksl­is­málum.“

Í síð­asta mán­uði var einnig greint frá því að kon­ung­ur­inn hefði boðið Sussex-hjón­unum gist­ingu í Hig­hgrove House á meðan Invictus-leik­arnir fara fram árið 2027 í Birming­ham. Borgin hlaut rétt­inn til að halda leik­ana vegna sterkrar áherslu á vel­ferð og end­ur­hæf­ingu her­manna og fyrr­ver­andi her­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta