Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

„Við höfum nú setið undir rík­is­of­beldi í tvö ár og verið þving­aðar til þess að takast á við alls konar áreiti og árásir, hindr­anir, aðdrótt­anir og æru­meyð­ingar“

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Sema Erla Serdaroglu Tvö ár eru liðin frá því að lögð var fram kæra á hendur Semu og Maríu Mynd: Instagram

Sema Erla Serdaroglu, stjórn­mála­fræð­ingur og bar­áttu­kona, segir rann­sókn lög­reglu á fjár­söfnun fyrir Palest­ínu hafa staðið yfir í tvö ár án nið­ur­stöðu og telur málið vera póli­tískar ofsóknir. Þetta kemur fram í færslu sem hún birti í dag á sam­fé­lags­miðlum.

Sema rifjar upp að í dag, 4. mars, séu liðin tvö ár síðan kæra var lögð fram gegn henni og Maríu Lilju Ing­veldar-Þrast­ar­dóttur Kemp vegna fjár­söfn­unar sem ætlað var að hjálpa Palest­ínu­fólki að kom­ast frá Gaza til Íslands, í miðju þjóð­ar­morði Ísraela.

„Í dag, þann 4. mars 2026, eru tvö ár síðan Einar S. Hálf­dán­ar­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og end­ur­skoð­andi, „leyfði sér að bera fram kæru“ á hendur mér og Maríu Lilju Ing­veldar-Þrast­ar­dóttur Kemp vegna „meintrar refsi­verðar hátt­semi“ okkar við fjár­söfnun,“ skrifar hún.

Söfnunin var lands­söfnun til að koma Palest­ínu­fólki með dval­ar­leyfi á Íslandi undan stríð­inu á Gaza og til fjöl­skyldna sinna hér á landi. Að sögn Semu Erlu söfn­uð­ust um 90 millj­ónir króna og um 200 ein­stak­lingar, flest konur og börn, komust til lands­ins.

„Nið­ur­staðan var sú að um 90 millj­ónir söfn­uð­ust og um 200 ein­stak­lingar, flest konur og börn, komust undan þjóð­ern­is­hreins­unun og öll þau sem höfðu eða hafa síðan fengið útgefið dval­ar­leyfi af íslenskum yfir­völdum komu til lands­ins,“ segir hún.

Samtökin Solaris – hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, sem Sema Erla er í for­svari fyrir, voru í laga­legu for­svari fyrir söfn­un­ina og að sögn Semu Erlu komu fjöldi sjálf­boða­liða að verk­efn­inu.

Í kærunni sak­aði Einar þau meðal ann­ars um brot á lögum um opin­berar fjár­safn­anir, mútu­greiðslur og brot á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Sema segir þó að þegar hún mætti í skýrslu­töku hjá lög­reglu árið 2024 hafi komið í ljós að engin sönn­un­ar­gögn fylgdu kærunni.

„Þegar ég og lög­maður minn báðum um að sjá þau sönn­un­ar­gögn sem fylgdu kærunni var okkur tjáð að það væru engin gögn,“ skrifar hún og bætir við að hún hafi þá spurt „hvern fjand­ann ég væri eig­in­lega að gera þarna.“

Málið hefur verið fellt niður tvisvar sinnum af lög­reglu en tekið aftur upp eftir kærur til rík­is­sak­sókn­ara. Í dag er það til rann­sóknar í þriðja sinn og Sema segir að hún og María Lilja hafi enn stöðu sak­born­ings.

Hún segir jafn­framt að öll gögn um söfn­un­ina hafi verið afhent yfir­völdum, þar á meðal reikn­ings­yf­ir­lit, kvitt­anir og skýrslu sem end­ur­skoð­andi yfir­fór.

Sema telur að málið hafi haft veru­leg áhrif á líf þeirra sem í því hafa lent.

„Við höfum nú setið undir rík­is­of­beldi í tvö ár og verið þving­aðar til þess að takast á við alls konar áreiti og árásir, hindr­anir, aðdrótt­anir og æru­meyð­ingar,“ skrifar hún.

Hún segir jafn­framt að sú stað­reynd að málið hafi staðið yfir svo lengi án nið­ur­stöðu sé „áfell­is­dómur yfir íslensku sam­fé­lagi, lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og dóms­kerf­inu.“

Að hennar mati bendir allt til þess að kæran hafi verið póli­tískt drifin.

„Það er ekki hægt að kom­ast að annarri nið­ur­stöðu en að hér er fyrst og fremst um póli­tískar ofsóknir á hendur mér og Maríu Lilju að ræða,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi