Karlmaður fæddur árið 1986 hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Vesturlands.
Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn barnaverndarlögum og líkamsárás með því að hafa laugardag árið 2024, slegið með belti í læri stúlku og með þessu jafnframt sýnt af sér ósiðlegt og ruddalegt athæfi gagnvart stúlkunni en í dómnum er tekið fram að stúlkan sé dóttir mannsins.
Hann játaði brot sitt en samkvæmt dómnum sýndi faðirinn einbeittan brotavilja þar sem hann fór sérstaklega og sótti beltið inn í skáp.
Hann var dæmdur í 30 daga fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða verjanda sínum 350.000 krónur og réttargæslumanni brotaþola 785.000 krónur.































Athugasemdir