Þrjár konur og fimm karlmenn hafi verið ákærð fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum á Keflavíkurflugvelli í ágúst í fyrra en ákærurnar voru birtar í Lögbirtingablaðinu.
Heimildin greindi frá málinu á sínum tíma.
Ferðaðist fólkið með fölsuð vegabréf frá Hong Kong, Japan, Taívan og Suður-Kóreu til landsins og notaðist við fölsuð nöfn. Elsta manneskjan er fædd árið 1970 og sú yngsta árið 1989.
Ákærandi í málinu lögreglustjórinn á Suðurnesjum og er krafist þess að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.































Athugasemdir