Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrír raðmorðingjar sem enn ganga lausir

Þrátt fyrir gríð­ar­miklar tækni­fram­farir og aukið lög­reglu­eft­ir­lit eru enn nokkrir raðmorð­ingjar enn lausir.

Þrír raðmorðingjar sem enn ganga lausir

Þrátt fyrir aukna tækni, eft­ir­lit og alþjóð­legt sam­starf lög­reglu­yf­ir­valda eru enn dæmi um raðmorð­ingja sem ganga lausir árum saman. Hér er smá yfir­ferð af þremur slíkum málum frá síð­ustu árum þar sem ger­endur hafa ekki náðst, eða sloppið úr haldi, og hafa skilið eftir sig ótta og spurn­ingar um öryggi.

„Little Rock Ristarinn“

Í Little Rock í Arkansas í Banda­ríkj­unum er enn leitað að óþekktum manni sem tengdur er við fjórar hnífa­árásir á árunum 2020 til 2021. Þrír lét­ust og einn lifði af.

Fórn­ar­lömbin sem lét­ust voru Larry McChristian, 64 ára, Jeff Welch, 62 ára, og Marlon Franklin, 40 ára. Debra Walker, 42 ára, lifði árás­ina af þrátt fyrir að hafa verið stungin 15 sinnum og er eini þekkti sjón­ar­vott­ur­inn. Lýsti hún mann­inum sem hávöxnum, grönnum og svörtum karl­manni, yfir sex fet á hæð, klæddur dökkum fötum.

Debra Walker

Árás­irnar áttu sér stað að næt­ur­lagi, yfir­leitt á milli klukkan eitt og fjögur, og beindust að ein­stak­lingum sem voru einir á ferð. Fórn­ar­lömbin virt­ust valin af handa­hófi og í sumum til­fellum voru þau í við­kvæmri stöðu, meðal ann­ars heim­il­is­laus.

Engin merki voru um rán eða kyn­ferð­is­brot, sem styrkir þá kenn­ingu að árás­irnar hafi verið drifnar áfram af hreinu ofbeldi. Þrátt fyrir að FBI hafi komið að rann­sókn­inni, eft­ir­lits­mynda­vélar hafi náð óskýrum myndum af grun­uðum og háar fjár­hæðir hafi verið boðnar fyrir upp­lýs­ingar, hefur eng­inn verið hand­tek­inn og er málið enn óupp­lýst.

Leikfangabílamorðinginn

Í borg­inni Culiacán í Mexíkó rann­saka yfir­völd röð morða sem hafa vakið sér­staka athygli vegna óvenju­legra og óhugn­an­legra ein­kenna.

Alls hafa fimm fórn­ar­lömb fund­ist á stuttum tíma eða frá 2019 til 2023, dreifð um borg­ina, og bera þau öll merki um pynt­ingar og skotá­verka. Eitt fórn­ar­lambanna hefur verið nafn­greint sem Carlos N., en nöfn hinna hafa ekki verið gerð opin­ber.

Það sem vekur þó hvað mestan óhug er að á líkum fórn­ar­lambanna hafa fund­ist leik­fanga­bílar en eitt þeirra var með inn­kaupa­kerru ofan á sér, atriði sem benda til ákveð­ins „und­ir­skriftar“ ger­and­ans.

Yfirvöld telja lík­legt að sami aðili standi að baki morð­unum, en enn sem komið er liggja hvorki fyrir skýr hvöt né tengsl milli fórn­ar­lamba en þau eiga það þó öll sam­eig­in­legt að vera bíla­þjófar.

Slátrarinn í Kware

Í Kenía er Collins Jumaisi Khalusha einn eft­ir­lýstasti maður lands­ins og mál hans hefur vakið alþjóð­lega athygli.

Hann var hand­tek­inn árið 2024 eftir að lík­ams­leifar fjölda kvenna fund­ust í Kware-fátækra­hverf­inu í Nairobi, meðal ann­ars í plast­pokum í yfir­gefnum námu­svæðum. Hann er tal­inn hafa myrt yfir 40 konur á tveggja ára tíma­bili.

Meðal fórn­ar­lamba hans er eig­in­kona hans, Imelda Judith Khalenya, en flest fórn­ar­lambanna voru ungar konur á aldr­inum 18 til 30 ára.

Skömmu eftir hand­töku slapp hann hins vegar úr haldi lög­reglu ásamt öðrum föngum eftir að hafa kom­ist út úr fanga­klefa og yfir girð­ingu fang­els­is­ins. Flóttinn vakti mikla reiði og gagn­rýni, ekki síst þar sem um var að ræða eitt örugg­asta lög­reglu­hús lands­ins.

Þrátt fyrir umfangs­mikla leit, hand­tökur tengdra aðila og pen­inga­verð­laun fyrir upp­lýs­ingar hefur honum enn ekki verið náð. Málið hefur orðið tákn um brotala­mir í örygg­is­kerfi lands­ins og tor­tryggni í garð yfir­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta