Lárus Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og oddviti Miðflokksins í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum, vill leggja niður Matvælastofnun. Hann greindi frá þessu í Rauða borðinu á Samstöðinni í gær.
Margt var rætt í þættinum í gær og þar á meðal ESB, verðbólga og fjölmiðlaumhverfið á Íslandi.
Lárus var spurður í þættinum hvað hann myndi gera ef hann væri forsætisráðherra eða fjármálaráðherra.
„Lausnin væri fyrst og fremst sú að lækka ríkisútgjöld, það er útgangspunkturinn. Um leið og það kemur þá verða fjöláhrif út í samfélagið,“ sagði Lárus og að það þurfi að taka til í fjármálum ríkisins og mögulega segja upp fólki. Ríkið þurfi að spara eins og heimili landsins. Hann telur ríkisstjórnina skorta skynsemi og framtíðarsýn.
Björn Þorláksson, stjórnandi Rauða borðsins, spurði í kjölfarið um dæmi um hvernig Lárus myndi lækka ríkisútgjöldin.
„Ég myndi leggja niður nokkrar stofnanir. Ég myndi til dæmis byrja á MAST sem, að mínu mati, er að gera lítið gagn og maður er alltaf að fylgjast með fleiri og fleiri sögum af því sem illa gengur þar,“ svaraði Lárus.
Rétt er að benda á að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur sagt að til standi að sameina MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu og sú stofnun eigi að taka til starfa í janúar á næsta ári ef allt gengur eftir.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent
Fertugur maður ákærður fyrir 267 kannabisplöntur í bíl
Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Athugasemdir