Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðrún lýsir hryllingi á fósturheimili í Mosfellssveit

Segir eig­anda fóst­ur­heim­il­is­ins hafa neytt fjög­urra ára gamlan dreng að borða eigin ælu.

Guðrún lýsir hryllingi á fósturheimili í Mosfellssveit
Mos­fells­bær Waltraud er enn á lífi Mynd: Mosfellsbær

Leik­konan og söng­konan Guðrún Glódís Gunn­ar­dóttir lýsti hrotta­legri með­ferð sem hún og önnur börn upp­lifðu á fóst­ur­heim­ili í Mos­fells­sveit, í þætt­inum Þetta helst á Rás 1 í dag.

Guðrún Glódís, sem var í vist á fóst­ur­heim­ili í Mos­fells­sveit á átt­unda ára­tugnum lýsir dvöl­inni þar sem afar erf­iðri og krefst þess að heim­ilið verði tekið til rann­sóknar. Segist hún hafa orðið fyrir alvar­legu ofbeldi á meðan á dvöl­inni stóð, þar á meðal kyn­ferð­is­of­beldi, bar­smíðum og svelti.

Hún lýsir reynslu sinni af eig­anda heim­il­is­ins með þessum orðum:

„Það er með ólík­indum hvernig hún fór með okkur börnin í sinni umsjá. Mis­kunn­ar­laus, gjör­sam­lega mis­kunn­ar­laus, og kvik­indi, kvik­ind­is­leg, naut þess að kvelja okkur, naut þess,“ segir Guðrún Glódís Gunn­ars­dóttir, leik­kona og söng­kona.

Heimilið var rekið af þýskri konu, Waltraud Paulsen, sem bjó þar ásamt fjöl­skyldu sinni en hún er enn á lífi en gengur nú undir nafn­inu Anna María Paulsen en hún er með heila­bilun og býr á stofnun. Guðrún segir að ofbeldið hafi verið alls­konar og stöðugt:

„Það var kyn­ferð­is­leg mis­notkun, það var svelti, það voru bar­smíðar, það var heila­þvottur, af öllum toga. Þetta var svona pín­ing og kvöl.“

Guðrún var aðeins fimm og sex ára gömul þegar hún dvaldi á heim­il­inu, sumrin 1973 og 1974. Hún segir að þrátt fyrir að dvölin hafi aðeins staðið í um tvo mán­uði hafi áhrifin verið djúp­stæð og var­an­leg.

Hún rifjar einnig upp atvik þegar hún kom aftur á heim­ilið síð­ara sum­arið:

„Hún tekur á móti mér, tekur mig í fangið, sem er nú bara fal­legt af henni að bjóða mig vel­komna, en um leið og hún gerir það, af því ég var í kjól, þá rekur hún fing­ur­inn beint upp í leggöngin á mér og hélt honum þar. Það var faðm­lagið sem ég fékk við að vera vel­komin aftur.“

Fleiri sem dvöldu á heim­il­inu á þessum tíma hafa sagt frá svip­aðri reynslu. Einn þeirra, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að hann hafi verið beittur ofbeldi og neyddur til erf­ið­is­vinnu. Hann lýsir því að hafa verið vak­inn snemma til að vinna lík­am­lega erf­iða vinnu og jafn­framt orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi.

Guðrún lýsir því í þætt­inum hvernig einn drengur á heim­il­inu var tek­inn hrotta­lega fyrir af Waltraud:

„Honum var stillt upp við enda gangs­ins, hann hefur verið sirka níu ára gam­all, á við­kvæmum aldri. Hún girti niður um hann og lét okkur standa þarna og hía á hann og gera grín að typp­inu, af því að það væri svo lítið. Og það tók heill­angan tíma því við vorum ekki að hlæja en hún gafst ekki upp, það átti að nið­ur­lægja þennan dreng.“

Þá segir Guðrún einnig frá því að drengur sem var yngri en hún, sirka fjög­urra ára gam­all, hafi verið lát­inn borða sína eigin ælu. „Hann fékk ælu­pest og hún neyddi hann til þess að borða úr sér æluna. Hún stóð yfir honum og hann skyldi borða æluna aftur. Hann fékk tauga­á­fall í kjöl­farið.“

Guðrún Glódís kallar nú eftir því að heim­ilið verði rann­sakað sem hluti af víð­tæk­ari athugun á fóst­ur­heim­ilum á Íslandi. Til stendur að skipa rann­sókn­ar­nefnd í kjöl­far umræðu um sam­bæri­leg mál, meðal ann­ars eftir umfjöllun um Bakka­kots­málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi