Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Unglingspiltur myrti móður sína eftir ráð frá gervigreind

„Ég er aðeins skugg­inn af sjálfum mér.“

Unglingspiltur myrti móður sína eftir ráð frá gervigreind
Mæðginin Tristan verður undir eft­ir­liti til dauða­dags Mynd: Samsett

Átján ára piltur, Tristan Thomas Roberts, hefur verið dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir að myrða móður sína, Angelu Jane Shellis, 45 ára, með hamri. Lík hennar fannst í gróðri við göngu­stíg nærri Morfa-friðland­inu í Wales, 24. októ­ber á síð­asta ári.

Roberts, sem er frá Presta­tyn, ját­aði verkn­að­inn fyrir dómi. Dán­ar­or­sök Shellis var alvar­legir höf­uð­á­verkar af völdum bar­eflis. Hún starf­aði sem stuðn­ings­full­trúi í Rhyl High School.

Hann bjó með móður sinni þegar árásin átti sér stað og var hand­tek­inn sama dag og lík hennar fannst. Lögregla sagði hann hafa fljótt fengið stöðu grun­aðs og var hann hand­tek­inn á heim­ili sínu, en fjórum dögum síðar var hann ákærður fyrir morð.

Fyrir morðið hafði Roberts birt ofbeld­is­full og kven­hatandi skila­boð á net­inu, meðal ann­ars á Discord.

Upptökur frá kvöld­inu sýna að hann leiddi móður sína um hverfi og yfir járn­braut­ar­teina áður en þau komu á afvik­inn stað. Þar bað hann hana að setj­ast á bekk og hóf að tala með amer­ískum hreim. Hún varð hrædd og bað hann að drepa sig ekki, en hann dró þá fram hamar og er talið að hann hafi slegið hana með honum fjórum sinnum.

Í hljóð­upp­tökum sem hann sjálfur tók heyr­ist hann segja að hann sé feg­inn að þessu sé lokið og að hann hafi drepið hana.

Fjöl­skylda og vinir lýstu Shellis sem hlý­legri og glað­værri mann­eskju sem hafði lagt sig fram í starfi sínu. „Hún var aðeins 45 ára og svo ynd­is­leg og glað­lynd, elskuð af öllum sem kynnt­ust henni,“ sagði systir hennar.

Fékk ráð frá gervigreind

Dóm­stóll­inn fékk að heyra að Roberts hefði skipu­lagt morðið í að minnsta kosti þrjár vikur. Hann keypti hamra, hnífa og hlífð­ar­búnað á net­inu og eyddi miklum tíma í að skoða morð á net­inu.

Árásin hófst um klukkan 23 og stóð fram til klukkan 3:30 um nótt­ina. Hann tók hana upp og geymdi upp­tökur sem þóttu of átak­an­legar til að spila fyrir dómi. Á meðan árásinni stóð var móð­irin með með­vit­und og bað hann ítrekað um að hringja í neyð­ar­lín­una.

Hann dró lík hennar um 100 metra og skildi það eftir í gróðri, áður en hann sendi skila­boð í hennar nafni til að láta líta út fyrir að hún væri enn á lífi.

Í færslum á Discord hafði hann sagst ætla að drepa móður sína til að ná „hefnd og rétt­læti“ og tal­aði um morð í anda kvik­mynd­ar­innar American Psycho. Hann leit­aði jafn­framt ráða hjá gervi­greind um hvernig mætti hreinsa blóð og hvort betra væri að nota hamar eða hníf.

Krufning sýndi að hún hafði fengið um sex högg í höf­uðið auk áverka sem bentu til kyrk­ingar.

Sonur hennar og bróðir Tristans, Ethan Roberts, sagði miss­inn „óbæri­legan“ og lýsti mik­illi sorg og reiði. Hann sagð­ist vera reiður út í bróður sinn, en einnig út í sjálfan sig fyrir að hafa ekki verið á staðnum til að koma í veg fyrir þetta. Hann sagði: „Ég er aðeins skugg­inn af sjálfum mér. Mik­il­væg­asta mann­eskjan í lífi mínu er nú farin. Mamma var alltaf til staðar fyrir mig, sama hvað.“

Verjandi Roberts vís­aði til þess að hann væri aðeins 18 ára, með grein­ingar um ein­hverfu og ADHD og hefði átt erf­iða æsku. Þá hefðu komið fram ein­kenni geð­rofs og versn­andi and­legs ástands.

Dómarinn sagði málið „afar óvenju­legt“ og benti á að Roberts hefði sýnt „hreina grimmd“, notið stjórn­un­ar­innar og hunsað bænir móður sinnar um hjálp. Hann taldi að and­leg vanda­mál drægju ekki úr ábyrgð hans.

Roberts var dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi með lág­marks­dóm 22 ár og sex mán­uði, sem lækkar lít­il­lega vegna gæslu­varð­halds. Að þeim tíma liðnum verður metið hvort hann fái reynslu­lausn, en hann verður undir eft­ir­liti það sem eftir er ævinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta