Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leyniáætlun Mossad um uppreisn í Íran rann út í sandinn

Trump og Net­anyahu studd­ust við umdeilda áætlun Mossad um stjórn­ar­skipti

Leyniáætlun Mossad um uppreisn í Íran rann út í sandinn
Trump og Net­anyahu Stríðs­fé­lag­arnir á góðri stundu

Ísra­elska leyni­þjón­ustan Mossad hafði áform um að kynda undir mót­mælum í Íran sem gætu leitt til falls stjórn­valda þar í landi, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times.

Yfir­maður Mossad, David Barnea, átti fund með Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, nokkrum dögum áður en Banda­ríkin og Ísrael hófu hernað gegn Íran. Þar sagði hann að stofn­unin gæti virkjað stjórn­ar­and­stöðu í Íran og þannig stuðlað að stjórn­ar­skiptum.

Samkvæmt frétt­inni, sem byggir á við­tölum við banda­ríska og ísra­elska emb­ætt­is­menn, kynnti Barnea einnig hug­mynd­ina fyrir hátt­settum banda­rískum ráða­mönnum í heim­sókn til Washington um miðjan jan­úar.

Net­anyahu og Donald Trump tóku hug­mynd­ina upp þrátt fyrir efa­semdir sumra hátt­settra banda­rískra emb­ætt­is­manna og hern­að­ar­grein­ing­ar­að­ila í Ísrael. Full­yrð­ingar Mossad voru sagðar hafa verið not­aðar til að sann­færa Trump um að mögu­legt væri að fella írönsk stjórn­völd.

Samkvæmt áætl­un­inni átti stríðið að hefj­ast með því að drepa leið­toga Írans, og síðan fylgja „röð leyni­þjón­ustu­að­gerða sem ættu að hvetja til stjórn­ar­skipta“. Mossad taldi að þetta gæti leitt til fjölda­upp­reisnar og sig­urs fyrir Ísrael og Banda­ríkin.

Í upp­hafi stríðs­ins end­ur­spegl­aði opin­ber orð­ræða Trump þessa nálgun. Í mynd­bandi sagði hann meðal ann­ars: „Að lokum segi ég við hina stoltu þjóð Írans að stund frelsis ykkar sé runnin upp … þegar við erum búin, takið yfir stjórn­ina. Hún verður ykkar.“

Slík umræða fjar­aði þó fljótt út. Innan tveggja vikna sögðu banda­rískir öld­unga­deild­ar­þing­menn eftir kynn­ingu á stöð­unni að það væri ekki mark­mið stríðs­ins að fella írönsku stjórn­ina, og að í raun væri „engin áætlun“ til staðar.

Efasemdir innan leyniþjónusta

Mat banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar CIA er að írönsk stjórn­völd muni ekki falla. Þar hefur einnig verið varað við því að ef leið­tog­arnir yrðu drepnir gæti enn rót­tæk­ari stjórn tekið við.

Ísraelsk leyni­þjón­usta telur stjórn­völd í Íran veikluð en þó enn við völd.

Í frétt New York Times segir að sú trú að Ísrael og Banda­ríkin gætu startað fjölda­upp­reisn hafi verið grund­vall­armis­tök í und­ir­bún­ingi stríðs­ins.

Net­anyahu er sagður hafa orðið ósáttur eftir að lof­orð Mossad um upp­reisn hafi ekki gengið eftir. Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins sagði hann á örygg­is­fundi að Trump gæti stöðvað stríðið hvenær sem er ef aðgerðir Mossad skil­uðu ekki árangri.

Margir hátt­settir emb­ætt­is­menn í Banda­ríkj­unum og sér­fræð­ingar innan ísra­elsku her­leyni­þjón­ust­unnar Aman höfðu dregið í efa þessar for­sendur.

Banda­rískir her­for­ingjar sögðu Trump að ólík­legt væri að Íranar færu út á götur á meðan sprengjur féllu, og leyni­þjón­ustu­mat benti til þess að líkur á fjölda­upp­reisn væru litlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta