Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gær og nótt samkvæmt upplýsingum frá dagbók hennar.
Ökumaður var stöðvaður í akstri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við nánari athugun kom í ljós að hann var einnig grunaður um akstur án réttinda, brot á lyfjalögum og vörslu fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni sýnatöku hjá lögreglu.
Þá var lögregla kölluð til vegna þjófnaðar í verslun. Málið var leyst á vettvangi án frekari aðgerða.
Annar ökumaður var stöðvaður fyrir of hraðan akstur en hann mældist á 130 km/klst þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. Málið er í viðeigandi farvegi hjá lögreglu.
Einnig var ökumaður stöðvaður síðar, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá var einnig látinn laus að lokinni sýnatöku.





















Athugasemdir