Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tveir afar reyndu að bjarga lífi stúlku sem stungin var til bana

„Ég sé enn and­lit hennar“

Tveir afar reyndu að bjarga lífi stúlku sem stungin var til bana
Chloe Watson Chloe var aðeins 16 ára gömul þegar hún var myrt Mynd: Facebook

Maður lýsir því í breskum miðlum í dag, hvernig hann reyndi í örvænt­ingu að bjarga lífi 16 ára stúlku sem hann telur hafa verið stungin í bakið og háls­inn.

Sextíu og fjög­urra ára afi veitti stúlkunni end­ur­lífgun eftir að hún fannst með­vit­und­ar­laus í göt­unni hans, en hún lést síðar á sjúkra­húsi.

Morð­rann­sókn er hafin eftir að stúlkan lést snemma á laug­ar­dags­morgni. Þrír full­orðnir og eitt barn hafa verið hand­tekin í tengslum við málið.

Lögregla leit­aði lengi leiða til að bera kennsl á stúlk­una og óskaði eftir upp­lýs­ingum frá almenn­ingi. Síðar kom í ljós að hún bjó með móður sinni og fjöl­skyldu í Cleckheaton í Vestur Jór­vík­ur­skíri, um 27 kíló­metra frá vett­vangi.

Í dag var hún nafn­greind en hún hét Chloe Watson og vinir hennar minnt­ust hennar á sam­fé­lags­miðlum eftir að fjöl­skylda hennar hafði verið látin vita.

Samkvæmt Mirror reyndu tveir afar að bjarga Chloe eftir að þeir fundu hana slas­aða í rólegri íbúða­götu. Wayne Mallows, 64 ára, sagði að hann hefði vaknað um klukkan fimm um morg­un­inn en ekki orðið var við neitt fyrr en ein­hver bank­aði upp á um 50 mín­útum síðar.

„Ég var kall­aður út úr hús­inu um klukkan 5:50 á laug­ar­dags­morgni af konu sem var að ganga með hund­inn sinn. Hún sagði að nágranni minn væri úti að reyna að end­ur­lífga unga stúlku,“ sagði hann.

Hann sagði að nágrann­inn, sem hóf end­ur­lífg­un­ina, byggi hinum megin við göt­una.

Stúlkan lá á gang­stétt­inni beint á móti húsi nágrann­ans við Kenn­er­leigh Avenue í Crossgates-hverfi í aust­ur­hluta Leeds, þar sem svæðið er nú girt af lög­reglu.

Mallows sagð­ist hafa séð að nágranni hans væri orð­inn þreyttur. „Ég spurði hvort hringt hefði verið á sjúkra­bíl og þá sá ég síma á jörð­inni með hátal­ara í gangi. Starfs­fólk sjúkra­flutn­inga var að leið­beina honum,“ sagði hann.

Mallows, sem starfar í heyrn­ar­þjón­ustu hjá NHS, sagð­ist hafa fengið þjálfun í end­ur­lífgun en aldrei þurft að fram­kvæma hana á raun­veru­legri mann­eskju áður.

„Ég tók við þar til sjúkra­bíll­inn kom um tíu mín­útum síðar,“ sagði hann. „Þegar hann kom um klukkan sex byrj­uðu sjúkra­flutn­inga­menn að reyna að fá hjartað í gang og fram­kvæmdu hjarta­hnoð.

Þeir gerðu það í um fimm mín­útur áður en þeir fluttu hana í sjúkra­bíl­inn. Sífellt fleiri lög­reglu­menn voru að mæta á stað­inn.“

Hann sagði að stúlkan hefði verið stungin í bakið og einnig verið með sár á háls­inum.

Þrátt fyrir áfallið sagð­ist Mallows vera ágætur, en eiga erfitt með að losna við mynd­ina af and­liti hennar úr huga sínum. „Ég sé enn and­lit hennar í huga mér,“ sagði hann. „Mér fannst hún líta út fyrir að vera mjög ung, yngri en 16 ára.“

Hann bætti við að Kenn­er­leigh Avenue og nær­liggj­andi götur væru yfir­leitt mjög rólegar. „Hér býr aðal­lega eldra fólk sem hefur flutt hingað til að njóta elli­ár­anna,“ sagði hann.

Lögregla sagði að til­kynn­ing hefði borist um klukkan 5:55 á laug­ar­dag um stúlk­una sem fannst alvar­lega slösuð á svæð­inu.

Í fyrstu birti lög­regla lýs­ingu á henni til að bera kennsl á hana, sem granna konu um 157 cm á hæð á síð­ari hluta ung­lings­ára.

Nú hafa vinir og fjöl­skylda tjáð sorg sína á sam­fé­lags­miðlum. Einn sagði þau vera „miður sín“ og að hún hefði elskað litlu systur sínar mikið.

Vinir hennar skrif­uðu einnig: „Per­sónu­leiki þinn, skrýtni hlát­ur­inn þinn og klisju­kenndu brand­ar­arnir þínir verða óvið­jafn­an­legir. Þú pass­aðir alltaf upp á að öllum liði vel og væru elskaðir … þetta er ótrú­lega sárt.“

Fjórir ein­stak­lingar, tvær konur, 18 ára, karl­maður, 20 ára, og 17 ára drengur, hafa verið hand­tekin grunuð um morð og eru í haldi lög­reglu.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn Marc Bowes sagði: „Eftir að við óskuðum eftir upp­lýs­ingum höfum við nú borið kennsl á hina látnu sem 16 ára stúlku frá Cleckheaton-svæð­inu.

Fjöl­skylda hennar hefur verið látin vita og við styðjum hana á þessum erf­iða tíma.

Rannsókn á aðdrag­anda dauða hennar stendur yfir og við hvetjum alla sem voru á Kenn­er­leigh Avenue snemma morg­uns í gær til að hafa sam­band ef þeir hafa upp­lýs­ingar sem geta hjálpað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta