Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Börn Dönu Jóhannsdóttur stíga fram eftir ákæru á hendur Skúla

„Skúli Tómas Gunn­laugs­son hefur látið hafa eftir sér að sann­leik­ur­inn muni sigra að lokum. Við vonum inni­lega að honum verði að þeirri ósk.“

Börn Dönu Jóhannsdóttur stíga fram eftir ákæru á hendur Skúla
Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja Meint brot átti sér stað á Heil­brigð­is­stofun Suð­ur­nesja Mynd: Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Börn Dönu Jóhanns­dóttur hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­far þess að ákæra var gefin út á hendur lækn­inum Skúla Tómasi Gunn­laugs­syni fyrir mann­dráp í starfi. Þau segja móður sína hafa lát­ist af afleið­ingum með­ferðar sem ekki hafi verið rétt­læt­an­leg.

Í yfir­lýs­ing­unni segja þau:

„Við und­ir­rituð erum upp­komin börn Dönu Jóhanns­dóttur, sem hér­aðs­sak­sókn­ari telur að hafi verið drepin á opin­beru sjúkra­húsi. Dán­ar­or­sök hennar var fjöl­kerfa­bilun, sem er fyr­ir­sjá­an­leg afleið­ing af því að hneppa mann­eskju í lyfja­fjötra sem valda því aftur að hún getur ekki borið sig eftir nær­ingu og vökva.“

Segja málið ekki flókið

Börnin hafna þeim sjón­ar­miðum Skúla að málið sé flókið og erfitt fyrir ákæru­valdið að meta:

„Þessi ummæli eru ótta­leg þvæla. Það er löngu búið að fara yfir málið heild­stætt á þessum fimm árum sem það hefur verið í rann­sókn.“

Þau benda á að umfangs­mikil rann­sókn hafi farið fram með aðkomu mats­manna og fjölda vitna úr heil­brigð­is­geir­anum.

Í yfir­lýs­ing­unni er vitnað til nið­ur­stöðu dóm­kvaddra mats­manna:

„Nei, það voru ekki for­sendur til að hefja lífsloka­með­ferð en það voru for­sendur til að halda áfram líkn­ar­með­ferð. Verklagi við fram­kvæmd líkn­andi/lífsloka­með­ferð var ekki fylgt.“

Þá kom­ist mats­menn einnig að þeirri nið­ur­stöðu að lyfja­með­ferð móður þeirra hafi ekki verið eðli­leg miðað við ástand hennar.

Börn Dönu segja að skýr­ingar Skúla á því að hug­takið „lífsloka­með­ferð“ hafi verið notað í víð­ari merk­ingu stand­ist ekki:

„Það er í ósam­ræmi við fram­burð heil­brigð­is­starfs­fólks.“

Þau benda einnig á að móðir þeirra hafi verið sett á lífsloka­með­ferð skömmu eftir inn­lögn, þrátt fyrir að hafa verið skráð á fulla end­ur­lífg­un­ar­með­ferð þremur vikum áður.

Löng málsmeðferð

Í yfir­lýs­ing­unni er rakin tíma­lína máls­ins, frá and­láti Dönu 19. októ­ber 2019 til kæru til lög­reglu og margra ára rann­sóknar. Und­ir­rituð gagn­rýna jafn­framt að lækn­ir­inn hafi starfað áfram á Land­spít­al­anum á meðan rann­sókn stóð yfir.

Þau segja:

„Það þótti aftur á móti ekk­ert að því að hafa mann­inn í starfi á opin­beru sjúkra­húsi, árum saman, þótt hann væri grun­aður um að hafa valdið dauða a.m.k. 6 sjúk­linga.“

Gagnrýna kerfið harðlega

Í yfir­lýs­ing­unni er einnig gagn­rýnt það sem þau kalla skort á aðhaldi innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og laga­breyt­ingar sem þau telja hafa tor­veldað rann­sókn mála af þessu tagi.

Þau segja meðal ann­ars:

„Nánar til­tekið er lög­reglu bannað að nota rann­sókn­ar­gögn frá land­lækn­is­emb­ætt­inu við rann­sókn saka­mála. Það er baga­legt í þessu máli því gögn kvört­un­ar­máls­ins hafa mik­il­vægt sönn­un­ar­gildi sem nú fer for­görðum.“

Vonast eftir réttlæti

Að lokum vísa þau til orða Skúla um að sann­leik­ur­inn muni koma í ljós:

„Skúli Tómas Gunn­laugs­son hefur látið hafa eftir sér að sann­leik­ur­inn muni sigra að lokum. Við vonum inni­lega að honum verði að þeirri ósk.“

Yfir­lýs­ingin er und­ir­rituð af Begga Dan Gunn­ars­syni, Borg­hildi B. Hauks­dóttur, Evu Hauks­dóttur og Hugljúfu Dan Jensen.

Hér má sjá yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

Yfirlýsing frá börnum Dönu Jóhannsdóttur

Skúli Tómas Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi yfir­læknir á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja, hefur nú verið ákærður fyrir mann­dráp í starfi. Við und­ir­rituð erum upp­komin börn Dönu Jóhanns­dóttur, sem hér­aðs­sak­sókn­ari telur að hafi verið drepin á opin­beru sjúkra­húsi. Dán­ar­or­sök hennar var fjöl­kerfa­bilun, sem er fyr­ir­sjá­an­leg afleið­ing af því að hneppa mann­eskju í lyfja­fjötra sem valda því aftur að hún getur ekki borið sig eftir nær­ingu og vökva.

Í til­efni af ákvörðun hér­aðs­sak­sókn­ara um að gefa út ákæru, hefur lækn­ir­inn látið hafa eftir sér að málið snú­ist um flókin lækn­is­fræði­leg atriði sem sé erfitt fyrir ákæru­valdið að átta sig á og að loks­ins verði nú hægt að fara yfir þetta heild­stætt. Þessi ummæli eru ótta­leg þvæla. Það er löngu búið að fara yfir málið heild­stætt á þessum fimm árum sem það hefur verið í rann­sókn. Ákæru­valdið átt­aði sig á máls­at­vikum með aðstoð dóm­kvaddra mats­manna auk þess sem vitna­skýrslur voru teknar af miklum fjölda heil­brigð­is­starfs­fólks.

Ein helsta nið­ur­staða hinna dóm­kvöddu mats­manna var þessi: "Nei, það voru ekki for­sendur til að hefja lífsloka­með­ferð en það voru for­sendur til að halda áfram líkn­ar­með­ferð. Verklagi við fram­kvæmd líkn­andi/lífsloka­með­ferð var ekki fylgt." Einnig kom­ast hinir dóm­kvöddu mats­menn að þeirri nið­ur­stöðu að sú lyfja­með­ferð sem móðir okkar sætti hafi ekki verið eðli­leg að teknu til­liti til ástands hennar og sjúk­dóms­grein­ingar.

Skúli hefur borið því við að á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja hafi "lífsloka­með­ferð" verið notað um líkn­ar­með­ferð í víð­tækri merk­ingu. Það er í ósam­ræmi við fram­burð heil­brigð­is­starfs­fólks. Það er einnig í ósam­ræmi við þá skjal­festu stað­reynd að Skúli setti móður okkar á fulla með­ferð að end­ur­lífgun þrem vikum áður en hún kom í hvíld­ar­inn­lögn á HSS, þann 1. ágúst 2019, en þá var hún umsvifa­laust sett á lífsloka­með­ferð.

Við með­ferð máls móður okkar hjá emb­ætti land­læknis var óháður sér­fræð­ingur feng­inn til að skrifa álits­gerð um málið. Nið­ur­staða hans var sú að ekki hefðu verið for­sendur fyrir lífsloka­með­ferð. Sér­fræð­ingar emb­ætt­is­ins komust að sömu nið­ur­stöðu og töldu með­ferð­ina hafa borið öll ein­kenni lífsloka­með­ferðar. Tveir dóm­kvaddir mats­menn komust einnig að þeirri nið­ur­stöðu að sú með­ferð sem hún fékk í síð­ustu legu sinni á HSS hafi borið ein­kenni lífsloka­með­ferðar sem ekki voru for­sendur fyrir. Að kröfu Skúla voru þeir látnir end­ur­skoða mats­gerð­ina og komust þá aftur að sömu nið­ur­stöðu.

Móðir okkar dó 19. októ­ber 2019. Við sendum kvörtun til land­læknis þrem vikum síðar, þann 11. nóv­em­ber 2019. Málið var í rann­sókn í fimmtán mán­uði, lauk þann 17. febr­úar 2021. Okkur þótti það langur tími en í ljósi þess að máls­með­ferð­ar­tími land­læknis er á bil­inu 1-4 ár megum við víst telj­ast heppin. Kæra var lögð fram hjá lög­reglu þann 23. febr­úar 2021 og var svo rúm fimm ár í rann­sókn, fyrst hjá lög­reglu og svo hér­aðs­sak­sókn­ara. Lækn­ir­inn var sviptur starfs­leyfi tíma­bundið en var fljótt kom­inn aftur í vinnu á Land­spít­al­anum og hefur starfað þar við að sinna sjúk­lingum meiri­hluta þess tíma sem málið hefur verið til rann­sóknar.

Þegar ákæra var gefin út afþakk­aði Land­spít­al­inn vinnu­fram­lag lífsloka­lækn­is­ins. Það þótti aftur á móti ekk­ert að því að hafa mann­inn í starfi á opin­beru sjúkra­húsi, árum saman, þótt hann væri grun­aður um að hafa valdið dauða a.m.k. 6 sjúk­linga. Læknama­f­ían lýsti yfir stuðn­ingi við Skúla og heil­brigð­is­ráð­herra kom í gegn lögum til verndar heil­brigð­is­starfs­fólki sem skaðar og drepur sjúk­linga. Nánar til­tekið er lög­reglu bannað að nota rann­sókn­ar­gögn frá land­lækn­is­emb­ætt­inu við rann­sókn saka­mála. Það er baga­legt í þessu máli því gögn kvört­un­ar­máls­ins hafa mik­il­vægt sönn­un­ar­gildi sem nú fer for­görðum.

Skúli Tómas Gunn­laugs­son hefur látið hafa eftir sér að sann­leik­ur­inn muni sigra að lokum. Við vonum inni­lega að honum verði að þeirri ósk.

Beggi Dan Gunn­ars­son

Borg­hildur B. Hauks­dóttir

Eva Hauks­dóttir

Hugljúf Dan Jensen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi