Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fékk nálgunarbann á kærasta og lýsir rauðu flöggunum

„Ég vil ekki bera þetta ein lengur,“ segir Elísa

Fékk nálgunarbann á kærasta og lýsir rauðu flöggunum
Elísa Wilke Elínar Elísa vill skila skömminni Mynd: Aðsend

Elísa Wilke Elínar hefur stigið fram og greint frá langvar­andi áreiti og ógn­andi hegðun af hálfu fyrr­ver­andi kærasta síns, en hún segir málið hafa staðið yfir í um ár. Hún hefur kært mann­inn til lög­reglu og fengið á hann nálg­un­ar­bann.

Í sam­tali við Mannlíf segir Elísa, sem starfar sem renni­smiður, að sam­bandið hafi aðeins staðið í þrjá mán­uði en snemma hafi komið fram merki um óheil­brigt mynstur.

„Við erum saman í þrjá mán­uði í fyrra og hann fer að sýna furðu­lega hegðun, svona stjórnun og hálf­gert and­legt ofbeldi. Það var mjög mikið drama í gangi, þessir venju­legu litlu hlutir verða allt í einu alveg rosa miklir, springa og verða mjög miklir. Og þar sem ég hafði áður verið í ofbeld­is­sam­bandi sá ég þetta rauða flagg og hætti með honum.“

Ógnandi hegðun og ítrekað áreiti

Eftir sam­bands­slitin segir Elísa að áreitið hafi haldið áfram. Hún rifjar upp atvik í júlí þegar mað­ur­inn mætti óboð­inn heim til hennar, til að sækja dót sem hann átti hjá henni:

„Þannig að fjórða júlí, ég gleymi aldrei þessum degi. Þá mætir hann heim til mín eftir að ég bað hann um að gera það ekki, og er mjög ógn­andi... Svo þegar ég reyni að loka hurð­inni byrjar hann að skalla hurð­ina og neitar að leyfa mér að loka henni.“

Að hennar sögn urðu synir hennar, sjö og tíu ára á þessu ári, vitni að hluta af þessum átökum, sem leiddi til þess að barna­vernd kom að mál­inu. Hún kærði mann­inn í jan­úar, en segir áreitið ekki hafa stöðvast.

„Þetta byrj­aði sem sagt og var verst í júlí en svo eru bara enda­laus skila­boð og hring­ingar en ég svara þessu aldrei,“ segir hún og bætir við að skila­boðin hafi komið frá mis­mun­andi prófílum:

„Svo blokka ég og þá er bara búinn til nýr prófíll.“

Í des­em­ber hafi áreitið auk­ist veru­lega:

„Í des­em­ber byrjar þetta að verða mjög mikið, ein­hverra hluta vegna. Allt í einu rjúka upp skila­boðin og þvælan.“

Hún segir inni­hald skila­boð­anna sveifl­ast frá afsök­un­ar­beiðnum yfir í hót­anir:

„Eitt skipti baðst hann afsök­unar á að hafa hraunað yfir mig, eitt skipti sagði hann „ég elska þig og sakna þín“ og og svo er þetta komið út í „ég var að fá mynd af þér fáklæddri og er að fara að senda þann mann til himna­ríkis“ og „það er hættu­legt fólk á eftir þér og það er verið að tala illa um þig.“ Bara alls konar. Það er bara allt gert til þess að stuða mig svo ég svari.“

Lögregla kölluð til um helgina

Málið náði hámarki um síð­ustu helgi þegar mað­ur­inn kom aftur að heim­ili hennar. Elísa seg­ist hafa opnað með dyra­síma í þeirri trú að um væri að ræða vin hennar sem ætl­aði að kíkja í heim­sókn:

„Þá kemur hann upp og segir „ekki loka, það er hættu­legt fólk á eftir þér“ og ég loka hurð­inni strax. Þá byrjar hann að berja á hurð­ina og er með öskur og læti og vekur nágrann­ann.“

Hún hafði áður kært mann­inn og því hafði hún beint sam­band við lög­reglu. „Og af því að ég kærði hann í jan­úar er ég kom­inn með krækju á núm­erið hjá lög­regl­unni þannig að það komu nokkrir lög­reglu­bílar. Svo kom rann­sókn­ar­lög­reglan, Barna­vernd, Féló og lög­maður.“

Maðurinn komst undan af vett­vangi en var hand­tek­inn síðar sama kvöld. Daginn eftir fékk Elísa nálg­un­ar­bann á hann.

„Mjög hættulegur maður“

Samkvæmt Elísu höfðu lög­reglu­yf­ir­völd þegar safnað gögnum vegna end­ur­tek­inna til­kynn­inga hennar:

„Af því að eftir kæruna, hélt hann áfram að senda á mig skila­boð og ég sendi það alltaf á lög­regl­una. Þannig að þeir voru þá komnir með alveg mál fyrir því [nálg­unn­ar­bann­inu]. Og þetta er mjög hættu­legur maður, sam­kvæmt lög­reglu. Því hann á sögu af miklu ofbeldi og elti­hrelli og allt svona.“

Hún segir einnig að fleiri hafi lent í mann­inum og að sam­eig­in­legir vinir hafi þurft að loka á hann á Facebook vegna hót­ana.

Hrædd en ákveðin

Aðspurð hvort hún ótt­ist um öryggi sitt segir Elísa:

„Jú. Ég er mjög hrædd en ég neita að lifa í hræðsl­unni lengur.“

Hún segir sig hafa gott bak­land og að henni hafi verið boðið athvarf ef þörf krefur, bæði úti á land og í borg­inni. Lögregla hafi einnig boðið henni neyð­ar­hnapp, sem hún ætlar sér að þiggja.

Vildi ekki bera þetta ein

Elísa greindi fyrst frá mál­inu í færslu á sam­fé­lags­miðlum á dög­unum þar sem hún sagði:

„Síðasta ár hefur verið and­lega mjög erfitt hjá mér enda þurft að takast á við umsát­ursein­elti, áreiti og ógn­andi hegðun frá fyrrum kærasta.“

Hún bætti við:

„Ég vil ekki bera þetta ein lengur og skamm­ast mín.“

Í sam­tal­inu við Mannlíf segir hún mark­mið sitt með því að stíga fram vera að hjálpa öðrum í svip­aðri stöðu

„Maður má ekki bera þetta einn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi