Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag kröfu Lögreglunnar á Suðurnesjum um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknahagsmuna yfir kvenmanni vegna alvarlegt umsáturseineltis en þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu en um er að ræða Írisi Helgu Jóntansdóttur.
Hún er því laus úr haldi. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort úrskurðurinn verði kærður til Landsréttar.
Íris var í gær handtekin eftir að hún var sökuð um að hafa birta dánartilkynningu í Morgunblaðinu af manni sem er lifandi. Voru þau í sambandi um skamma stund.
Að minnsta kosti níu einstaklingar hafa leitað til lögreglu vegna ofsókna og umsáturseineltis henni tengdu og sjö kært hana vegna slíks áreitis.





















Athugasemdir