Áhrifavaldurinn og ofurbakarinn Linda Benediktsdóttir, betur þekkt sem Linda Ben, hefur heldur betur haft það gott undanfarna daga en hún hefur verið að njóta sín í sólinni og hefur leyft fylgjendum sínum að fylgjast með á samfélagsmiðlum.
Linda er stödd á Tenerife með Ragnari Einarssyni, eiginmanni sínum, en hann starfar sem forstöðumaður færsluhirðingar Landsbankans og eru börn hjónanna með í för. Þau hafa verið að hafa gaman saman eins og gerist hjá uppátækjasömum fjölskyldum eins og þeirra.
Ragnar og Linda hafa verið dugleg að skella sér í golf en Ragnar er mikill golfáhugamaður og er sagður hafa eina bestu golfsveifluna í Landsbankanum.

Mynd: Instagram

Mynd: Instagram

Mynd: Instagram

Mynd: Instagram






















Athugasemdir