Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Albert Einstein gengur laus

Talinn hafa skipu­lagt stór­fellt fíkni­efna­smygl með Norrænu.

Albert Einstein gengur laus
Norræna Þrír hafa verið dæmdir í fang­elsi í mál­inu Mynd: Shutterstock

Þrír erlendir rík­is­borg­arar hafa hlotið fimm ára óskil­orðs­bundna fang­els­is­dóma fyrir til­raun til að smygla um 10 kílóum af kóka­ínklór­íði til lands­ins með Norrænu í nóv­em­ber á síð­asta ári. Skipu­lagn­ing smygls­ins var rakin til aðila sem not­aði dul­nefnið Albert Einstein, en hver sá aðili er hefur ekki verið upp­lýst. Þetta kemur fram í frétt Aust­ur­fréttar.

Fíkni­efnin fund­ust í bif­reið sem einn mann­anna flutti til Seyð­is­fjarðar eftir ferð frá Frakk­landi. Við hefð­bundna grein­ing­ar­vinnu lög­reglu kvikn­aði grunur um ólög­legan farm og var óskað eftir aðstoð lög­reglu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Bíllinn var í kjöl­farið tek­inn til ítar­legrar skoð­unar við kom­una til lands­ins.

Á meðan skoðun fór fram hélt öku­mað­ur­inn til í bænum. Hann bar síðar fyrir dómi að hann hefði fengið pakka frá manni að nafni Albert og grunað að eitt­hvað væri óeðli­legt við inni­haldið. Hann kaus þó að svara ekki spurn­ingum nema í gegnum verj­anda sinn.

Í ljós kom að efnið var falið í tveimur rauð­víns­beljum sem virt­ust eðli­legar við fyrstu sýn. Úr efn­inu hefði mátt vinna um 6,2 kíló af kóka­íni og var áætlað að mark­aðsvirði þess næmi að minnsta kosti 100 millj­ónum króna.

Eftir að bif­reiðin hafði verið haldin í um fjórar klukku­stundir var henni skilað til öku­manns. Hann og tengiliðir hans skipt­ust þá á skila­boðum um að „skipið væri lent“, án þess að vita að lög­regla hafði þegar skipt efn­inu út fyrir gervi­efni og komið fyrir hler­unar- og eft­ir­far­ar­bún­aði. Öku­mað­ur­inn hélt í kjöl­farið til Reykja­víkur og gisti þar á hót­eli.

Daginn eftir afhenti hann öðrum manni rauð­víns­belj­urnar. Þeir heils­uð­ust og kvödd­ust með handa­bandi, sem vakti athygli lög­reglu sem fylgd­ist með aðgerð­inni. Sá maður fór síðan til móts við þriðja mann­inn og voru þeir allir hand­teknir skömmu síðar í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð.

Tveir mann­anna höfðu ferð­ast til Íslands frá Spáni um Ítalíu. Þeir sögð­ust hafa ferð­ast saman þar sem annar þekkti landið betur og þeir hefðu viljað deila kostn­aði og verk­efnum.

Yngri mað­ur­inn sagð­ist hafa verið beð­inn um að taka við pakka og afhenda hann síðar. Hann vís­aði einnig til sam­skipta við aðila sem not­uðu dul­nefnin Albert Einstein og Mad Drugs á sam­skipta­for­rit­inu Signal, en talið er að þeir hafi skipu­lagt smyglið. Hann kvaðst hafa grunað að um fíkni­efni væri að ræða, en talið lík­legra að um MDMA væri að ræða fremur en kókaín.

Dómurinn tók fram að fram­burður mann­anna væri mis­mun­andi trú­verð­ugur. Sá sem flutti efnið til lands­ins þótti almennt trú­verð­ugur, þó talið væri að hann hefði ekki sagt allt. Yngri mað­ur­inn þótti einnig trú­verð­ugur að hluta, einkum í skýrslu­tökum lög­reglu. Fram­burður elsta manns­ins var hins vegar tal­inn ótrú­verð­ugur og í and­stöðu við gögn máls­ins.

Dómurinn lagði áherslu á að þrátt fyrir mis­mun­andi hlut­verk hefði öllum mátt vera ljóst að þeir væru þátt­tak­endur í inn­flutn­ingi ólög­legra fíkni­efna. Ekki skipti máli hvort þeir hefðu vitað nákvæm­lega hvaða efni var um að ræða, enda hefðu þeir að minnsta kosti sýnt af sér kæru­leysi gagn­vart því.

Málið var talið bera öll ein­kenni skipu­lagðrar og lag­skiptrar brota­starf­semi þar sem fleiri aðilar komu að verki. Af þeim sökum var ekki gerður grein­ar­munur á sök mann­anna þriggja.

Þrátt fyrir að tveir þeirra hefðu sýnt iðrun og góða hegðun hafði það ekki áhrif til lækk­unar refs­ingar. Allir þrír voru dæmdir í fimm ára fang­elsi. Auk þess voru þeir dæmdir til að greiða verj­endum sínum á bil­inu 3,5 til 3,9 millj­ónir króna hver og sam­eig­in­lega tæp­lega hálfa milljón í sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi