Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

„Í hrein­skilni sagt er þetta komið gott.“

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu
Amanda Knox Amanda fékk ekki að sýna heim­ild­ar­mynd sína í Bret­landi Mynd: THEO WARGO / GETTY IMAGES VIA AFP

Heimsókn Amöndu Knox til Bret­lands hefur tekið óvænta stefnu, aðeins nokkrum klukku­stundum áður en hún átti að stíga á svið til að kynna nýja heim­ild­ar­mynd sína um morðið á Meredith Kercher.

Hin 38 ára gamla Knox, sem var dæmd en síðar sýknuð í mál­inu, kom nýverið til Lundúna til að kynna mynd­ina. Til stóð að hún og eig­in­maður hennar, Christopher Robinson, myndu taka þátt í tveimur sér­stökum sýn­ingum á mynd­inni Mouth of the Wolf dag­ana 21. og 22. apríl.

Sýningum aflýst

Áformin fóru þó út um þúfur þar sem myndin hefur ekki flokkun frá British Board of Film Classification (BBFC) og því má ekki sýna hana opin­ber­lega.

Í stað­inn munu Knox og Robinson stíga á svið, ræða mynd­ina, svara spurn­ingum og halda bóka­á­ritun.

Í til­kynn­ingu til þátt­tak­enda segir:

„Vegna þess að heim­ild­ar­myndin hefur ekki flokkun frá BBFC er ekki heim­ilt að sýna hana opin­ber­lega. Því verður við­burð­inum breytt í umræðu og spurn­ingar og svör, að því loknu bóka­á­ritun.“

Gagnrýni frá fjölskyldu fórnarlambs

Myndin fjallar um Knox þegar hún snýr aftur til Perugia á Ítalíu, þar sem Kercher var myrt árið 2007. Hún syngur einnig sjálf í mynd­inni.

Gagn­rýnendur hafa þó sakað Knox um að reyna áfram að hagn­ast á mál­inu. Lögmaður fjöl­skyldu Kercher, Francesco Maresca, sagði hana nýta rangar sak­fell­ingar sínar til fjár­hags­legs ávinn­ings.

„Það virð­ist sem Knox komi á nokk­urra mán­aða fresti með nýtt efni, hlað­varp, við­tal, heim­ild­ar­mynd eða kvik­mynd,“ sagði hann og bætti við:

„Í hrein­skilni sagt er þetta komið gott.“

Sagði frá „óhugnanlegum“ niðurstöðum

Fréttin kemur skömmu eftir að Knox kom fram í þætt­inum Good Morning Britain þar sem hún ræddi mál Lucy Letby í tengslum við nýtt hlað­varp sitt.

Hún sagði þar að rann­sókn hennar hefði leitt í ljós atriði sem hefðu valdið henni miklum áhyggjum.

„Ég varð ekki bara áhyggju­full, ég varð bein­línis ótta­slegin yfir sumu sem við fundum,“ sagði Knox.

Knox var hand­tekin árið 2007 og sat tæp fjögur ár í fang­elsi áður en hún var látin laus árið 2011. Hún var síðar end­an­lega sýknuð árið 2015 þegar dómur hennar var felldur úr gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta