Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svona myrtu Ísraelar blaðakonuna Amal Khalil

Khalil og aðstoð­ar­kona hennar náðu í fyrstu að kom­ast í skjól en það dugði skammt

Svona myrtu Ísraelar blaðakonuna Amal Khalil
Amal Khalil Khalil var aðeins 42 ára gömul er hún var myrt Mynd: AFP

For­sæt­is­ráð­herra Líbanons, Nawaf Salam, hefur sakað Ísrael um glæpi gegn mann­kyni eftir að blaða­konan Amal Khalil var drepin og sam­starfs­kona hennar Zeinab Faraj særð í loft­árás í þorp­inu al-Tayri í suð­ur­hluta lands­ins.

Khalil og Faraj voru að fjalla um fyrri árás Ísraela á bif­reið á mið­viku­dag þegar þær urðu sjálfar fyrir árás á meðan þær reyndu að kom­ast í skjól í bygg­ingu.

Faraj var bjargað af sjúkra­flutn­inga­mönnum en lík Khalil fannst síðar undir rústum nokkrum klukku­stundum eftir árás­ina.

Samkvæmt heim­ildum heyrð­ist síð­ast frá Khalil um klukkan 16:10 að stað­ar­tíma þegar hún hringdi í fjöl­skyldu sína og líbanska her­inn. Hún hafði leitað skjóls í húsi eftir að fyrri loft­árás drap tvo ein­stak­linga nærri bif­reið­inni sem hún og Faraj voru í.

Björg­un­ar­að­ilar reyndu í fyrstu að kom­ast að henni en urðu fyrir skot­hríð og neydd­ust til að hörfa, að sögn heil­brigð­is­yf­ir­valda í Líbanon. Síðar var gerð önnur árás á húsið þar sem þær höfðu leitað skjóls. Lík Khalil fannst skömmu fyrir mið­nætti, meira en sjö klukku­stundum eftir árás­ina.

Yfirvöld í Líbanon lýstu árásinni sem svo­kall­aðri „tvö­faldri“ árás (e. „double tap“), þar sem ráð­ist er aftur á sama stað eftir fyrstu árás.

Khalil hafði fjallað um aukna spennu milli Ísraels og Hezbollah, sem bloss­aði upp að nýju í mars í tengslum við víð­tæk­ari átök á svæð­inu. Hún er níundi blaða­mað­ur­inn sem fellur í Líbanon á þessu ári.

Alþjóða­sam­tökin Committee to Protect Journalists for­dæmdu morðið og sögðu það kalla á taf­ar­lausa rann­sókn og ábyrgð þeirra sem stæðu að baki. Samtökin gagn­rýndu einnig að björg­un­ar­að­ilar hefðu verið hindr­aðir í störfum sínum.

Forseti Líbanons, Joseph Aoun, sendi sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyldu Khalil og sak­aði Ísrael um að miða mark­visst á blaða­menn til að hylma yfir hern­að­ar­að­gerðir sínar.

Ísra­elski her­inn hafn­aði því að hafa hindrað björg­un­ar­að­gerðir og sagði að hann beindi ekki árásum að blaða­mönnum.

Atvikið kemur í kjöl­far ann­ars svip­aðs máls fyrir skömmu þar sem þrír blaða­menn lét­ust í sam­bæri­legri „tvö­faldri“ árás í suð­ur­hluta Líbanons.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife