Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég er ekki barnaníðingur“

Donald Trump reidd­ist í 60 Minutes við­tali

„Ég er ekki barnaníðingur“
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti var afar ósáttur við þátta­stjórn­and­ann Mynd: Shutterstock

Donald Trump lét reiði sína í ljós í við­tali við 60 Minutes eftir að þátta­stjórn­and­inn Norah O'Donnell vitn­aði í meinta yfir­lýs­ingu skot­manns­ins á kvöld­verði blaða­manna Hvíta húss­ins á laug­ar­dags­kvöld.

Skotárásin átti sér stað á laug­ar­dag á við­burði í Washington Hilton-hót­el­inu þar sem gestir, þar á meðal Trump og eig­in­kona hans, leit­uðu skjóls undir borðum þegar skotum var hleypt af. Einn lög­reglu­maður særð­ist en var í skot­heldu vesti og er ekki tal­inn í lífs­hættu. Yfirvöld telja að árásin hafi beinst að Trump og öðrum hátt­settum emb­ætt­is­mönnum í Banda­ríkj­unum.

Hinn grun­aði árás­armaður er 31 árs gam­all maður, Cole Tomas Allen að nafni en hann er frá Kali­forníu. Hann er sagður hafa sent fjöl­skyldu sinni skila­boð skömmu fyrir árás­ina þar sem hann kall­aði sig „Friendly Federal Assassin“ og lýsti óánægju með stjórn­völd. Hann á að koma fyrir dóm í dag.

Í við­tal­inu vitn­aði O'Donnell í texta úr meintri stefnu­yf­ir­lýs­ingu manns­ins þar sem vísað var til „barn­a­níð­ings, nauð­gara og land­ráða­manns“, sem vakti hörð við­brögð Trump. „Ég beið eftir að þú myndir lesa þetta því ég vissi að þú myndir gera það… þið eruð hræði­legt fólk. Hræði­legt fólk… Ég er ekki nauð­gari. Ég hef ekki nauðgað neinum. Ég er ekki barn­a­níð­ingur… Þú ættir að skamm­ast þín fyrir að lesa þetta,“ sagði hann og bætti við að hann hefði verið „alger­lega hreins­aður“ af slíkum ásök­unum.“

O´Donnell náði að skjóta inni í einni spurn­ingu áður en Trump hélt áfram reiði­lestri sínum: „Nú, tókstu því þannig að hann væri að tala um þig?“

Trump hélt áfram:

„Vinir ykkar hinum megin við borðið eru þeir sem tóku þátt í, segjum, Epstein eða annað slíkt. En ég sagði við sjálfan mig: „Veistu, ég fer í þetta við­tal og þeir munu lík­lega ... lesa stefnu­yf­ir­lýs­ing­una“. En þið ættuð að skamm­ast ykkar fyrir að lesa það því ég er ekk­ert af þessu.“

Allen sagði skot­mörk sín vera „emb­ætt­is­menn stjórn­valda: í for­gangs­röð frá þeim hæst settu til þeirra lægst settu“, þótt hann virt­ist und­an­skilja Kash Patel, for­stjóra FBI, af list­anum. Allen virð­ist vísa til Trumps þegar hann skrifar: „Ég er ekki lengur til­bú­inn að leyfa barn­a­níð­ingi, nauð­gara og svik­ara að ata hendur mínar út í glæpum sínum.“

Rann­sak­endur hafa einnig fundið efni á sam­fé­lags­miðlum hins grun­aða þar sem hann gagn­rýnir bæði Trump og kristni. Í einu slíkra skrifa hélt hann því fram að það væri ekki rétt að „bjóða hina kinn­inni“ þegar aðrir væru kúg­aðir.

„Að bjóða hina kinn­ina er fyrir þegar þú ert sjálfur kúg­aður. Ég er ekki mann­eskjan sem var nauðgað í fanga­búðum. Ég er ekki sjó­mað­ur­inn sem var tek­inn af lífi án dóms og laga. Ég er ekki skólakrakki sem var sprengdur í loft upp, eða barn sem sveltur, eða ung­lings­stúlka sem er mis­notuð af hinum mörgu glæpa­mönnum í þess­ari stjórn­sýslu. Að bjóða hina kinn­ina þegar ein­hver annar er kúg­aður er ekki kristi­leg hegðun; það er sam­sekt í glæpum kúg­ar­ans.“

Trump sagði jafn­framt að eig­in­kona hans, Melania Trump, hefði verið mjög brugðin eftir atvikið, þó hún hafi brugð­ist við af yfir­vegun. „Henni var mjög brugðið… hver væri það ekki í svona aðstæðum?“ sagði hann.

Hér fyrir neðan má sjá við­talið í heild sinni en reiði­lest­ur­inn hefst þegar 19 mín­útur og 40 sek­úndur eru liðnar af við­tal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta